Sigmundur Davíð bað Ólaf Ragnar um leyfi til að rjúfa þing - Forsetinn hafnaði því

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra óskaði eftir því við Ólaf Ragnar Grímsson, for­seta Íslands, að hann veitti honum heim­ild til að rjúfa þing. Ólafur Ragnar sagð­ist ekki til­bú­inn til að veita honum slíka heim­ild þar sem for­sæt­is­ráð­herra náði ekki að sann­færa for­set­ann um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri sam­þykkur slíku. Þetta kom fram á skyndi­legum blaða­manna­fundi sem nú stendur yfir á Bessa­stöðum.

Ólafur Ragnar hefur þess í stað ákveðið að eiga fund með Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, síðar í dag. Eftir atvikum mun hann ræða við for­menn eða leið­toga ann­arra flokka. 

Ólafur Ragnar sagði það ekki við hæfi að for­set­inn væri dreg­inn inn í þá atburð­ar­rás sem hófst með ein­hliða yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs á Facebook í morgun um að hann væri til­bú­inn í þing­rof og kosn­ingar með þeim hætti sem for­sæt­is­ráð­herra hafði lagt upp. Eftir að hafa rætt við Sigmund Davíð í síma í gær höfðu þeir ákveðið að hitt­ast klukkan 13 í dag. Í morgun klukkan 11, eftir fund sinn með Bjarna Bene­dikts­syni, hafi for­sæt­is­ráð­herra farið fram á að fund­inum yrði flýtt. Ólafur Ragnar frestaði því fundi sínum með for­seta kýp­verska þings­ins sem fyr­ir­hug­aður var og hitti Sigmund Davíð þess í stað. Þar var beiðni hans um að for­seti veitti honum heim­ild til að rjúfa þing, annað hvort strax eða í náinni fram­tíð, yrði veitt. Því hafn­aði Ólafur Ragnar.

Sig­mundur Davíð sagði í morgun að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysti sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum hennar myndi hann rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta. Þetta kom fram í Facebook-færslu sem hann setti inn rétt í þessu. Hann sagð­ist stoltur af verkum sínum og óhræddur við að leggja þau í dóm kjós­enda hvort sem það ger­ist nú eða síðar. 

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í fréttum RÚV að Sig­mundur Davíð hefði ekki borið þessar hug­myndir undir þing­flokk flokks­ins áður en hann birti yfir­lýs­ingu sína. Það hefði hann kannski átt að gera. Karl stað­festi þannig að Sig­mundur Davíð bar það ekki undir sinn eigin þing­flokk að hann vildi rjúfa þing og boða til kosn­inga, eins og hann til­kynnti að hann væri reiðu­bú­inn að gera á Facebook í morgun.

Sig­mundur Davíð vildi ekki ræða við fjöl­miðla þegar hann fór af fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár