Þingflokkur Framsóknar var búinn að ákveða að Sigmundur Davíð hætti

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins var búinn að taka ákvörðun um að setja Sigmund Davíð Gunn­laugs­son af sem for­sæt­is­ráð­herra á þing­flokks­fundi 5. apríl síð­ast­lið­inn, áður en að for­mað­ur­inn kom á fund­inn. Þing­flokk­ur­inn var búinn að taka ákvörðun um að biðja vara­for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sigurð Inga Jóhanns­son, og þing­flokks­for­mann­inn, Ásmund Einar Daðason, um að fara til Sjálf­stæð­is­flokks­ins og biðja um áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf, en setja for­sæt­is­ráð­herr­ann af. Þetta kom fram í við­tali við Sigurð Inga í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag.

Ástæðan var trún­að­ar­brestur milli þing­flokks­ins og Sig­mundar Davíðs vegna Wintris-máls­ins og eft­ir­mála þess. Sig­mundur Davíð kom síðar til fund­ar­ins en aðrir þing­menn, en hann hafði m.a. farið til Bessa­staða til að sækj­ast eftir þing­rofs­heim­ild fyrr sama dag án sam­ráðs við þing­flokk­inn. Þegar Sig­mundur Davíð kom á fund­inn ræddi Sigurður Ingi eins­lega við hann og sagði honum frá stöð­unni og að for­sæt­is­ráð­herr­ann væri búinn að missa stuðn­ing þing­flokks­ins. Síðan fóru þeir saman inn á fund þing­flokks­ins og 10-15 mín­útum síðar leggur Sig­mundur Davíð sjálfur fram sömu til­lögu og þing­flokk­ur­inn hafði þegar sam­þykkt áður en til atkvæða­greiðslu kæmi. Hún var sam­þykkt. Opin­ber­lega var greint frá mál­inu á þann veg að Sig­mundur Davíð hefði sjálfur lagt fram til­lögu um að stíga til hliðar, en ekk­ert sagt frá því að þing­flokk­ur­inn hafi verið búinn að taka þá ákvörðun fyrir hann.

Erfitt að vera með aftursætisbílstjóra

Sigurður Ingi segir að hann og Sig­mundur Davíð hafi síðan fundað aftur tveir saman og samið þá ályktun sem síðar var til­kynnt almenn­ingi. Sig­mundur Davíð hefur sagt að Sigurður Ingi hafi á þeim fundi lofað honum að halda sér upp­lýstum og að bjóða sig ekki fram gegn honum sem for­maður. Sigurður Ingi segir þetta ekki að öllu leyti rétt.

Þegar Sigurður Ingi hafi verið kjör­inn vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2013 hafi ýmsir haft sam­band við hann og sagt að sam­band hans við Sigmund Davíð myndi nú breyt­ast. Hann myndi fara að líta á Sigurð Inga sem ógn og lík­legan kandídat til að keppa við hann. Þá hafi þeir sest niður og Sigurður Ingi sagt for­manni sínum að hann hefði engan hug á að keppa við hann um for­manns­emb­ættið. Síðan hafi hins vegar gríð­ar­lega mikið breyst. Sigurður Ingi segir Sigmund Davíð vera að vísa í þennan fund þegar hann seg­ist hafa lof­orð um að vara­for­mað­ur­inn ætli ekki gegn honum.

Á þriðju­deg­inum í apríl, áður en Sig­mundur Davíð sagði af sér, hafi hann sagt for­mann­inum að það væri sjálf­sagt að leyfa honum að fylgj­ast með málum. Það hafi hann gert þótt að hann hefði haft áhyggjur af því að vera með „aft­ur­sæt­is­bíl­stjóra“. Það hafi hins vegar ekki gef­ist tími til þess að þeir tveir og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gætu sest niður þrír. „Menn voru ýmist að taka ein­hver frí, kom­ast út úr arga­þras­inu og jafna sig,“ segir Sigurður Ingi.

Vildi gefa Sigmundi Davíð svigrúm

Sigurður Ingi til­kynnti á föstu­dag að hann ætl­aði að bjóða sig fram til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins gegn Sigmundi Davíð. Við það var ágrein­ingur og ólga sem verið hefur innan flokks­ins end­an­lega opin­ber­aður. Sig­mundur Davíð hefur brugð­ist illa við fram­boði Sigurðar Inga og sagði í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í gær að hann hefði svikið sig.

Sigurður Ingi segir að hann hafi viljað gefa Sigmundi Davíð svig­rúm til að vinna til baka traust og trú­verð­ug­leika eftir Wintris-málið, þrátt fyrir að mjög skiptar skoð­anir hafi verið innan Fram­sókn­ar­flokks­ins um hvort að Sig­mundur Davíð ætti að víkja sem for­maður líka. Hann vildi ekki að það yrðu til fylk­ingar á bak við sig gegn Sigmundi Davíð. Þess vegna varði Sigurður Ingi Sigmund Davíð grimmi­lega á opin­berum vett­vangi næstu mán­uð­ina, þrátt fyrir skammir vina, flokks­manna og ýmissa ann­arra.

Þegar liðið hafi á sum­arið og sér­stak­lega eftir að Sig­mundur Davíð sendi bréf á flokks­menn í lok júlí til að til­kynna um end­ur­komu sína, sem margir túlk­uðu sem gagn­rýni á rík­is­stjórn­ina og Sigurð Inga, hafi orðið breyt­ing á afstöðu margra flokks­manna. Sigmundi Davíð hafði ekki tek­ist að end­ur­vinna traustið að þeirra mat. Nú séu þessar fylk­ingar komnar upp á yfir­borðið og því sé heið­ar­leg­ast að kjósa á milli manna á flokks­þingi, sem fram fer næstu helgi.

Sigurður Ingi sagði í lok við­tals­ins að hann hefði rætt við Sigmund Davíð að það hefði vantað auð­mýkt og afsök­un­ar­beiðni í við­brögð hans við Wintris-mál­inu. Það væri mik­il­vægur eig­in­leiki í póli­tík að gera beðist afsök­unar ef menn geri mis­tök jafn­vel þótt að þeir geri ekk­ert af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár