Fordæmalaus einleikur Sigmundar Davíðs

For­sæt­is­ráð­herra hafði ekki sam­ráð við þing­flokk sinn né sam­starfs­flokk áður en að hann fór á fund for­seta Íslands og óskaði eftir heim­ild til þing­rofs. Hann virð­ist algjör­lega ein­angr­aður í þeim aðgerðum sem hann leikur um þessar mundir.

Sig­mundur Davið Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er að leika mik­inn ein­leik um þessar mundir. Fundur hans með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í morgun fór ekki vel, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans. Hann leiddi til þess að for­sæt­is­ráð­herr­ann ákvað að setja stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann sagði að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysti sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum hennar myndi hann rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta. Í kjöl­farið flýtti for­sæt­is­ráð­herra fundi sínum með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, og hélt á Bessa­staði. Þar óskaði hann eftir því að fá heim­ild til þing­rofs, sem Ólafur Ragnar hafn­aði þar sem Sigmundi Davíð tókst ekki að sann­færa hann um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sam­starfs­flokkur hans, styddi slíka til­lögu.

Það sem gerir þetta útspil Sig­mundar Davíð afar athygl­is­vert er að hann hefur ekk­ert rætt, að minnsta kosti form­lega, við þing­flokk sinn um þessa leið. Það kom ber­sýni­lega í ljós í við­tali við Karl Garð­ars­son, þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, hjá RÚV í hádeg­inu. Þar sagði Karl að Sig­mundur Davíð hefði ekki borið hótun sína um að rjúfa þing og boða til kosn­inga, sem hann setti fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-færslu í morgun, undir þing­flokk­inn. „Hann hefði kannski átt að segja þing­flokknum frá þessu fyrst,“ sagði Karl.

Forsætisráðherra einangraður

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa ekki viljað styðja Sigmund Davíð til áfram­hald­andi setu sem for­sæt­is­ráð­herra opin­ber­lega en hafa heldur ekki viljað segj­ast vilja afsögn hans fyrr en Bjarni hefði haft tíma til að funda með honum. Það gerð­ist í morgun, nokkrum klukku­tímum eftir að hafa komið aftur til lands­ins frá Banda­ríkj­unum. Nokkuð ljóst var orðið í gær að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætl­aði sér ekki að styðja Sigmund Davíð áfram í stól for­sæt­is­ráð­herra. Það kom ber­sýni­lega fram í sam­tölum við þá. Auk þess fjar­aði hratt undan stuðn­ingi við hann innan Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar leið á dag­inn, og mót­mælin á Aust­ur­velli ágerð­ust. Þar mættu alls á milli 15-20 þús­und manns í gær, og kröfð­ust þess að Sig­mundur Davíð myndi víkja. Svo virt­ist vera sem allir, jafnt sam­herjar og and­stæð­ingar Sig­mundar Davíðs í póli­tík, almenn­ingur og fjöl­miðlar væru búnir að átta sig á því að dagar hans sem for­sæt­is­ráð­herra væru taldir. Þ.e. allir nema hann sjálfur og mjög þröngur hópur í kringum hann.

Í morgun mætti Sig­mundur Davíð hins vegar kok­hraustur í við­tal í morg­un­þátt Bylgj­unnar og sagði rík­is­stjórn­ar­sam­starfið ekki hanga á blá­þræði. Síðan fór hann til fundar með Bjarna Bene­dikts­syni og þá breytt­ist allt. For­sæt­is­ráð­herra ákvað í kjöl­farið, einn og án sam­ráðs við þing­flokk sinn eða sam­starfs­flokk, að boða þing­rof ef rík­is­stjórn undir for­sæti hans yrði ekki studd af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í kjöl­farið ók hann til Bessa­staða og krafð­ist þess af for­seta lands­ins að hann und­ir­rit­aði plagg sem veitti honum heim­ild til að rjúfa þing og boða til kosn­inga. Því hafn­aði for­set­inn, með þeim rökum að Sigmundi Davíð hefði ekki tek­ist að sann­færa sig um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri þess­ari ráða­gerð fylgj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár