„Hann hefði kannski átt að segja þingflokknum þetta fyrst“

„Hann hefði kannski átt að segja þing­flokknum frá þessu fyrst,“ sagði Karl Garð­ars­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í fréttum RÚV, um yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Yfir­lýs­ingin hafi komið honum á óvart.

Karl stað­festi þannig að Sig­mundur Davíð bar það ekki undir sinn eigin þing­flokk að hann vildi rjúfa þing og boða til kosn­inga, eins og hann til­kynnti að hann væri reiðu­bú­inn að gera á Facebook í morgun.

For­sæt­is­ráð­herra sagði í morgun að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysti sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum hennar myndi hann rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann setti inn. Hann seg­ist stoltur af verkum sínum og óhræddur við að leggja þau í dóm kjós­enda hvort sem það ger­ist nú eða síðar.

Sig­mundur seg­ist hafa átt mjög góðan fund með Bjarna Bene­dikts­syni í morgun þar sem þeir hafi rætt árangur rík­is­stjórn­ar­innar og mik­il­vægi þess að klára þau stóru verk­efni sem und­ir­búin hafi verið síð­ustu miss­eri og ár. Það þurfi að klára ýmis­leg verk­efni, „sé vilj­inn fyrir hendi.“

Ef hins vegar sjálf­stæð­is­menn treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum þeirra „myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár