Sigmundur Davíð segist tilbúinn að rjúfa þing og boða til kosninga

For­sæt­is­ráð­herra setur fram­vind­una í hendur sam­starfs­flokks­ins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysti sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum hennar myndi hann rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann setti inn rétt í þessu. Hann seg­ist stoltur af verkum sínum og óhræddur við að leggja þau í dóm kjós­enda hvort sem það ger­ist nú eða síðar.

Sig­mundur seg­ist hafa átt mjög góðan fund með Bjarna Bene­dikts­syni í morgun þar sem þeir hafi rætt árangur rík­is­stjórn­ar­innar og mik­il­vægi þess að klára þau stóru verk­efni sem und­ir­búin hafi verið síð­ustu miss­eri og ár. Það þurfi að klára ýmis­leg verk­efni, „sé vilj­inn fyrir hendi.“

Ef hins vegar sjálf­stæð­is­menn treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum þeirra „myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.“

Færsluna má lesa hér að neðan. 

„Nú í morgun átti ég mjög góðan fund með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Við ræddum árangur rík­is­stjórn­ar­innar og mik­il­vægi þess að klára þau stóru verk­efni sem und­ir­búin hafa verið síð­ustu miss­eri og ár. Mörg þeirra eru gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir íslenskt sam­fé­lag. Meðal ann­ars þarf að ljúka afnámi fjár­magns­hafta, end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið svo að það virki í þágu almenn­ings, ljúka því sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir höfðu sam­þykkt um afnám verð­trygg­ingar og inn­leiða umfangs­miklar úrbætur í hús­næð­is­málum. Mörgum þess­ara verk­efna hefði ég viljað sjá vinda hraðar fram en enn er þó nægur tími til að klára þau, sé vilj­inn fyrir hendi.

Jafn­framt fór ég yfir það með for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að ef þing­menn flokks­ins treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.

Ég er stoltur af verkum mínum í stjórn­málum til þessa og óhræddur við að leggja þau í dóm kjós­enda hvort sem það verður gert nú eða síðar. Ég er líka stoltur af eig­in­konu minni og þeim heið­ar­leika og fórn­fýsi sem hún hefur ætíð sýnt.

Hvort sem litið er til stjórn­mála­bar­áttu und­an­far­inna ára og alls þess sem þar hefur gengið á, bæði opin­ber­lega og inn­byrðis, eða til per­sónu­legra mál­efna fjöl­skyldu minnar get ég óhræddur, óhikað og með ánægju svarað fyrir verk mín og ákvarð­anir. Þegar ég ákvað að hefja þátt­töku í stjórn­málum gerði ég það vegna þess að ég hafði ákveðna sýn á hvað væri nauð­syn­legt að gera til að koma íslensku sam­fé­lagi á réttan kjöl og gera því kleift að nýta þau óþrjót­andi tæki­færi sem þjóðin býr yfir, sam­fé­lag­inu öllu til heilla. Það hefur gengið betur en jafn­vel ég þorði að vona að vinna að þeirri fram­tíð­ar­sýn og henni mun ég fylgja áfram á meðan mér gefst tæki­færi til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár