Neita að svara spurningum um skattamál

Kjarninn hefur í tæpar tvær vikur spurst fyrir um það hvort for­sæt­is­ráð­herra­hjónin hafi skilað CFC fram­tali með skatt­skýrslum sínum eins og lög gera ráð fyrir. Ítrek­uðum fyr­ir­spurnum hefur ekki verið svarað.

For­sæt­is­ráðu­neytið neitar að svara því hvort Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, hafi skilað sér­stöku CFC fram­tali vegna félags­ins Wintris, sem hún á á Tortóla. Ellefu dagar eru liðnir frá því að Kjarninn sendi fyrst fyr­ir­spurn um málið til aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra, Jóhann­esar Þórs Skúla­sonar. Ítrek­uðum fyr­ir­spurnum í tölvu­pósti, sím­tölum og smá­skila­boðum hefur ekki verið svarað.

CFC stendur fyrir Controlled Foreign Corporation, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­ríkjum, en lög um slík félög voru sett á Íslandi árið 2009 og lög­gjöfin inn­leidd í kjöl­farið. Lögin kveða meðal ann­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­ríki. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­svæðum eiga að skila sér­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­ar­gerð þar sem meðal ann­ars eru sund­ur­lið­aðar tekjur, skatta­legar leið­rétt­ingar, arðsút­hlutun og útreikn­ingur á hlut­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

Anna Sig­ur­laug greindi frá því þegar hún sagði frá til­vist félags­ins Wintris að hún hefði gert það að skil­yrði við stofnun að allir skattar væru greiddir strax á Íslandi. Gerð hafi verið grein fyrir öllum tekjum og félagið hafi verið talið fram á skatt­fram­tölum hennar og Sig­mundar Davíðs alla tíð. Þau birtu síðar stað­fest­ingu frá KPMG þar sem sagt er að félagið hafi verið fært til eignar alla tíð, sem og verð­bréfa­eign og kröfur, auk þess sem tekjur hafi verið færðar á skatt­fram­töl eftir því sem þær féllu til. 

Í kjöl­far þess sendi Kjarninn fyr­ir­spurn til aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra. Fyr­ir­spurnin snýr að því hvernig gerð hafi verið grein fyrir félag­inu, og hvort CFC fram­tali hafi verið skilað með fram­tali hennar. Þessu hefur ekki verið svarað, eins og fyrr segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár