Tíu ótrúlegar staðreyndir um mál Roberts Downeys

Róbert Árni Hreið­ars­son, nú Robert Downey, var með 335 kven­mannsnöfn á skrá, not­aði nöfn og banka­reikn­ing sona sinna við að tæla ung­lings­stúlkur og hélt áfram að brjóta af sér eftir að lög­reglu­rann­sókn hófst í mál­inu. Hér eru tíu ótrú­legar stað­reyndir í mál­inu.

Tíu ótrúlegar staðreyndir um mál Roberts Downeys

1 Byrjaði á Ircinu

Róbert Árni Hreið­ars­son byrj­aði að tæla til sín ung­lings­stúlkur í gegnum „Ircið“, en færði sig yfir á sam­skipta­for­ritið MSN þegar það náði yfir­hönd­inni meðal ung­linga. Halla Ólöf Jóns­dóttir segir hann hafa nálg­ast sig á „Ircinu“ fljót­lega eftir að hún fermd­ist, árið 2001. Róbert var þá 55 ára.

2 Peningar í veski unglingsstúlku komu upp um hann

Upp komst um brot Róberts Árna haustið 2005 eftir að Bergur Þór Ing­ólfs­son og Eva Vala Guð­jóns­dóttir fundu 32 þús­und krónur í veski Nínu Rúnar Bergs­dóttur, þá 14 ára. Hún við­ur­kenndi að lokum að hafa fengið pen­ing­ana frá gömlum „barna­perra“ sem hafi greitt henni fyrir kyn­líf.

3 335 kvenmannsnöfn í minnisbók

Við hús­leit fund­ust meðal ann­ars tveir far­símar, fjögur sím­kort og minn­is­bók sem inni­hélt 335 kven­mannsnöfn með ýmist eða bæði síma­núm­erum eða net­föngum. Athygli vakti að við umrædd kven­mannsnöfn mátti víða sjá skráðar tölur sem lög­regla taldi vísa á aldur stúlkn­anna.

4 Notaði nöfn sona sinna

Á bak­hlið minn­is­bók­ar­innar voru þrjú karl­mannsnöfn, Rikki, Árni og Robbi, og síma­númer við hvert nafn. Þetta eru nöfnin sem hann not­aði til að blekkja og tæla stúlk­urnar. Róbert Árni átti fimm syni. Sá elsti heitir Árni, næstelstur er Róbert, kall­aður Robbi, og næst yngstur var Rík­harður, kall­aður Rikki. Í til­felli Höllu Ólafar not­aði hann einnig banka­reikn­ing undir nafni og kenni­tölu Árna, sonar síns, til að leggja inn á hana pen­ing.

5 Hélt áfram þrátt fyrir lögreglurannsókn

Róbert Árni hélt áfram að brjóta á stúlkum eftir að hús­leit var gerð á heim­ili og vinnu­stað hans og honum varð kunn­ugt um að hann væri til rann­sóknar vegna gruns um kyn­ferð­is­brot.  Árið 2006 braut hann gegn þremur 15 ára stúlkum, einni allt að fimmtán sinnum. 

6 Hélt lögmannsréttindunum og varði barnaníðinga

Róbert Árni hélt lög­manns­rétt­indum sínum á meðan á rann­sókn máls­ins stóð og eftir að ákæra hafði verið gefin út. Á þessu tíma­bili sinnti hann meðal ann­ars rétt­ar­gæslu í saka­málum og verj­enda­störfum í kyn­ferð­is­brota­málum. Sem verj­andi meintra barn­a­níð­inga fékk hann meðal ann­ars að sitja yfir­heyrslur yfir börnum í Barna­húsi.

7 Þótti þungur dómur

Í sept­em­ber 2007 var Róbert Árni dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir brot gegn fjórum ung­lings­stúlkum. „Þetta var nú þungur dómur og allir sem töldu það“, sagði Jón Steinar Gunn­laugs­son, lög­maður Róberts, um dóm­inn á dög­unum. 

8 Yfirheyrður einu og hálfu ári eftir kæru

Halla Ólöf Jóns­dóttir, fimmta stúlkan, lagði fram kæru gegn Róberti Árna í nóv­em­ber 2007. Hann var ekki tek­inn í skýrslu­töku vegna máls­ins fyrr en í apríl 2009. Í dómnum segir að lög­reglu­mað­ur­inn sem tók skýrsl­una af honum hafi ekki náð á Róbert Árna fyrr þar sem hann hafi dvalið erlendis. Þess ber að geta að dómur Hæsta­réttar í fyrra mál­inu féll í milli­tíð­inni, í maí 2008, og Róbert Árni hóf afplánun í febr­úar 2009.

9 Ekki gerð þyngri refsing

Þrátt fyrir að vera dæmdur var Róberti Árna ekki gerð refs­ing í máli Höllu Ólafar. Rökin voru þau að refs­ing hans hefði ekki orðið þyngri ef mál Höllu hefði verið dæmt með í máli hinna stúlkn­anna. Halla fékk hins vegar greiddar 300 þús­und krónur í miska­bætur. Mál Höllu sýndi að Róbert var byrj­aður að blekkja og tæla ung­lings­stúlkur mun fyrr en áður var talið.

10 Engin ábyrgð

Róbert Árni, nú Robert Downey, hefur aldrei tekið ábyrgð á brot­unum og aldrei við­ur­kennt að hafa gert neitt rangt. Hann hefur nú fengið upp­reist æru, en eng­inn vill bera ábyrgð á þeirri ákvörðun. Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti segir ákvörð­un­ina liggja hjá ráðu­neyt­inu og Bjarni Bene­dikts­son, sem þá var settur inn­an­rík­is­ráð­herra, seg­ist ekki hafa haft neina aðkomu að mál­inu. 

Nánar er fjallað um mál Roberts Downey í 50. tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár