Theodóra komin með sömu tekjur og forseti Íslands

Theodóra S. Þor­steins­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, hækk­aði í launum um 185 þús­und krónur eftir að bæj­ar­stjórn Kópavogs hækk­aði laun sín um 26 pró­sent í dag. Theodóra ákvað að gegna þing­mennsku og sitja í bæj­ar­stjórn Kópavogs bæði í einu og er komin með 2,5 millj­ónir króna í laun.

Theodóra komin með sömu tekjur og forseti Íslands
Theodóra S. Þor­steins­dóttir Segir að for­dæmi séu fyrir því að þing­menn sitji í bæj­ar­stjórnum. Hún er for­maður bæj­ar­ráðs í Kópavogi og þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar. Mynd: Pressphotos / Geiri

Tekjur Theodóru S. Þor­steins­dóttur, þing­manns Bjartrar fram­tíðar og for­manns bæj­ar­ráðs í Kópavogi, hækka um 186 þús­und krónur á mán­uði með ákvörðun bæj­ar­stjórnar Kópavogs um 26 pró­sent launa­hækkun bæj­ar­full­trúa í dag. 

Stundin greindi frá því í lok jan­úar að Theodóra, sem hefur ákveðið að gegna bæði þing­mennsku og sitja í bæj­ar­stjórn Kópavogs á sama tíma, þrátt fyrir að þing­mennska sé álitin fullt starf, var með um 2,3 millj­ónir króna á mán­uði í laun sem kjör­inn full­trúi. Eftir launa­hækk­un­ina er hún því með 2,5 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun, þar til breyt­ingar verða gerðar á stöðu hennar eða öðrum greiðslum til hennar.

Tilkynnt var um launa­hækkun bæj­ar­stjórnar í tölvu­pósti frá Kópa­vogsbæ í kvöld. Ekki kemur fram að nein breyt­ing verði á högum Theodóru með öðrum hætti. Hún hefur nú sömu tekjur og Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, að með­töldum öllum greiðslum sem hún á rétt á. 

Guðni hafnaði launahækkun sinni

Sú breyt­ing verður á kjörum bæj­ar­full­trúa í Kópavogi að launa­þróun tekur fram­vegis mið af hækkun launa­vísi­tölu, frekar en þing­far­ar­kaupi. Ef launa­kjörin hefðu áfram verið bundin við þing­far­ar­kaup hefði launa­hækk­unin orðið 44,3 pró­sent.

Guðni Th. Jóhann­es­sonLýsti vilja til að launa­hækkun til hans yrði aft­ur­kölluð.

Laun þing­manna voru hækkuð langt umfram hækkun almennrar launa­vísi­tölu á kjör­dag, 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Hækkunin hefur verið rök­studd með því að þing­menn hafi orðið eftir á í kjara­þróun. Hins vegar sýnir sam­an­burður þing­far­ar­kaups við þróun launa­vísi­tölu að þing­menn hafa hækkað 28 pró­sentu­stigum meira í launum en almenn­ingur síð­ustu tíu árin. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, ákvað að gefa launa­hækk­un­ina til góð­gerð­ar­mála og skor­aði á þing­menn að „vinda ofan af“ hækk­un­inni. „Ég bað ekki um þessa kaup­hækkun. Ég vissi ekki af þess­ari kaup­hækkun. Ég þarf ekki þessa kaup­hækkun. Margir þing­menn hafa lýst andúð sinni á þess­ari ákvörðun kjara­ráðs. Ég vænti þess að þingið vindi þá ofan af þess­ari ákvörðun,“ sagði hann.

Þingmenn urðu ekki við þeirri áskorun, en for­sætis­nefnd Alþingis ákvað að end­ur­skoða veru­legar end­ur­greiðslur á kostn­aði til þing­manna þess í stað.

For­sætis­nefnd Alþingis ákvað í lok jan­úar að leggja til að end­ur­greiðslur til þing­manna verði skertar vegna veru­legra launa­hækk­ana þeirra. Þannig verði skatt­frjálsar end­ur­greiðslur ferða­kostn­aðar lækk­aðar um 54 þús­und krónur á mán­uði og end­ur­greiðsla starfs­kostn­aðar skert um 50 þús­und krónur.  Ferða­kostn­aður þing­manna verður því endu­greiddur um 30 þús­und krónur á mán­uði frekar en 84 þús­und krónur og fastar greiðslur vegna starfs­kostn­aðar færðar niður í 40 þús­und krónur á mán­uði úr 90 þús­und krónum.

Greindi frá fyrirætlun um að sinna báðum stöðum

Theodóra, sem sinnir nú um 200 pró­sent starfi, og þiggur laun upp á 2,5 millj­ónir króna sem kjör­inn full­trúi bæði á lands­vísu og sveita­stjórn­ar­stigi, seg­ist hafa greint frá fyr­ir­tæl­unum sínum fyrir kosn­ingar og að for­dæmi séu fyrir stöð­unni. Hún segir að þing­menn­irnir Gunnar Birg­is­son, Ármann Kr. Ólafsson og Birkir Jón Jónsson hafi einnig setið í bæj­ar­stjórn sam­hliða þing­mennsku. „Ég kynnti mér þetta sér­stak­lega fyrir kosn­ingar og fór yfir sög­una hér í Kópavogi. Það eru fjöl­margir bæj­ar­full­trúar hér í gegnum tíð­ina sem hafa verið þing­menn og bæj­ar­full­trúar. Og jafn­vel for­menn bæj­ar­ráðs. Þetta voru, held ég, allt karl­menn. Mér fannst það sama eiga að gilda um konur. Mig langar til þess að vera hér áfram bæj­ar­full­trúi. Það er bara eins og allir aðrir. Mér finnst það bara út frá jafn­ræði. Þegar ein­hver getur verið læknir eða skóla­stjóri eða hvað sem er, í 100 pró­sent starfi, finnst mér það alveg eiga við það að vera þing­maður. Það er auð­vitað þannig að ráð­herrar eru í 100 pró­sent starfi sem ráð­herrar og líka þing­menn. Og ég tal­aði alveg skýrt um þetta fyrir kosn­ingar. Ég var marg­spurð að þessu,“ sagði hún í sam­tali við Stundina.

Verði af skerð­ingu á end­ur­greiðslum til þing­manna munu laun Theodóru enda í um 2,4 millj­ónum króna, en hún hefur boðað að hún end­ur­skoði hluta af störfum sínum og sitji ekki áfram í stjórn Isavia eftir aðal­fund félags­ins í vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár