Þakkar íslensku þjóðinni: „Guð blessi ykkur öll“

Albanski fjöl­skyldu­fað­ir­inn Pëllumb Ndoka þakkar fyrir íslenska rík­is­borg­ara­rétt­inn. „Íslenska þjóðin bjarg­aði lífi stráks­ins míns,“ segir Pëllumb í sam­tali við Stundina.

Þakkar íslensku þjóðinni: „Guð blessi ykkur öll“
Börnin Systir Arjan er þriggja ára. Mynd: Facebook

Albanski fjöl­skyldu­fað­ir­inn Pëllumb Ndoka var væg­ast sagt him­in­lif­andi þegar Stundin náði tali af honum í dag. Réttar sagt er Pëllumb nú orðin Íslend­ingur enda fékk hann og fjöl­skylda hans rík­is­borg­ara­rétt síð­ast­lið­inn laug­ar­dag.

Íslenskur ríkisborgari
Íslenskur rík­is­borg­ari Pëllumb segir íslensku þjóð­ina hafa bjargað lífi sonar síns.

Pëllumb og fjöl­skyldu hans var vísað úr landi í skjóli nætur fyrr í mán­uð­inum eftir ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar. Pëllumb hafði sótt um hæli á Íslandi vegna hót­anna sem honum hafði borist vegna skiln­aðar sem og vegna veik­inda sonar hans, Arjan, sem er árs­gam­all og fædd­ist með opna fósturæð og op á milli hjarta­gátta. Alþingi tók ákvörðun um að veita fjöl­skyldu hans rík­is­borg­ara­rétt eftir hörð við­brögð almenn­ings vegna brott­vís­un­ar­innar.  

„Ó, já, ég er mjög glaður. Íslenska þjóðin bjarg­aði lífi stráks­ins míns. Ég veit ekki hvað ég á að gera til að þakka þjóð­inni. Ég ætla að gera eitt­hvað mjög mikið fyrir landið. Um leið og kem ætla ég að finna starf, und­ir­eins. Ég vil vinna, ég nenni ekki að hanga heima,“ segir Pëllumb. Hann seg­ist til­bú­inn og við­bú­inn að koma til Íslands sem fyrst.

„Íslenska þjóðin bjarg­aði lífi stráks­ins míns.“

Hann er þó ekki viss hvenær hann komi. „Ég veit það ekki, það hefur eng­inn haft sam­band við mig og sagt mér hvenær ég megi koma. Ég get komið hvenær sem er. Bara þegar þið viljið að ég komi, þegar þið eruð til­búin. Ég hefði helst viljað koma sem fyrst þar sem sonur minn þyrfti að fara í lækn­is­skoðun,“ segir Pëllumb.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár