Átta dæmi um ósannindi og villandi málflutning Bjarna Benediktssonar

Á und­an­förnum árum hefur Bjarni Bene­dikts­son ítrekað verið stað­inn að ósann­indum, sett fram full­yrð­ingar sem stand­ast ekki skoðun og við­haft vill­andi mál­flutn­ing. Um leið hefur hann sjálfur sakað aðra rang­lega um að halla réttu máli. Hér á eftir fara átta dæmi um slíkan mál­flutn­ing en list­inn er ekki tæm­andi. Þetta er brot úr ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um Bjarna Bene­dikts­son sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði.

Átta dæmi um ósannindi og villandi málflutning Bjarna Benediktssonar

 

1.  Kenndi skattrannsóknarstjóra um tafirnar

Þann 4. febr­úar 2015 gagn­rýndi Bjarni Bene­dikts­son emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra harð­lega í við­tali RÚV. Sagði hann að kaup á gögnum um aflandseignir Íslend­inga hefðu þvælst fyrir emb­ætt­inu alltof lengi og að málið „strand­aði svo sann­ar­lega ekki á fjár­mála­ráðu­neyt­inu“. Skömmu síðar kom í ljós að þegar ráð­herra lét þessi orð falla var skatt­rann­sókn­ar­stjóri í bið­stöðu vegna skil­yrða sem ráðu­neyti Bjarna hafði sett emb­ætt­inu. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði þá nýverið sent ráðu­neyt­inu bréf sem ekki hafði verið svarað. Gögn sem Stundin fékk aðgang að á grund­velli upp­lýs­inga­laga í fyrra sýna að skatt­rann­sókn­ar­stjóri sendi fjár­mála­ráðu­neyt­inu tölvu­póst í des­em­ber 2014 þar sem fram kom að svo virt­ist sem fjöl­miðla­um­ræða væri að fara af stað á þá lund að tafir á kaupum gagn­anna væru emb­ætt­inu að kenna. Með ummælum sínum ýtti Bjarni undir að dregin væri upp slík vill­andi mynd af stöðu máls­ins. 

2. „Ekki nákvæm tímalína“

Í við­tali við RÚV þann 7. jan­úar síð­ast­lið­inn full­yrti Bjarni Bene­dikts­son ítrekað að hann hefði ekki fengið skýrslu starfs­hóps um umfang aflandseigna Íslend­inga inn í ráðu­neyti sitt fyrr en eftir að þingi var slitið í októ­ber. Daginn eftir stað­festi ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fjöl­miðla að umrædd skýrsla var afhent fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu þann 13. sept­em­ber, þegar um mán­uður var eftir af þing­störfum. Sam­dæg­urs fékk starfs­hóp­ur­inn til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu um að störfum hans væri lokið og voru engar efn­is­legar breyt­ingar gerðar á skýrsl­unni eftir þetta. Þingi var slitið þann 13. októ­ber, en þá hafði ráðu­neytið ekki aðeins fengið skýrsl­una afhenta heldur hafði ráð­herra einnig fengið kynn­ingu á efni hennar. Í sama við­tal­inu sak­aði Bjarni póli­tíska and­stæð­inga um „þvætt­ing“, „fyr­ir­slátt“ og „póli­tík“ en dag­inn eftir baðst hann afsök­unar á óná­kvæmni. „Þetta var kannski ekki nákvæm tíma­lína hjá mér og ég biðst nú vel­virð­ingar á því,“ sagði hann. 

3.  Gaf villandi mynd
af stöðu lekamálsins

Þann 13. febr­úar 2014 setti Bjarni Bene­dikts­son fram rangar full­yrð­ingar um leka­málið og stöðu þess í rétt­ar­vörslu­kerf­inu. Á þessum tíma hafði rík­is­sak­sókn­ari mælt fyrir um saka­mála­rann­sókn á starfs­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og stað­fest þann skiln­ing í svörum við fyr­ir­spurnum DV og RÚV. Engu að síður full­yrti Bjarni á Alþingi að sak­sókn­ara­emb­ættið hefði ein­ungis sent málið til „við­eig­andi með­ferðar“ hjá lög­reglu og alls­endis óljóst væri hvort hafin yrði saka­mála­rann­sókn. Um leið og hann fór sjálfur með rangt mál um stöðu máls­ins sak­aði hann þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar um að halla réttu máli. „Menn verða að halda sig á spor­inu þegar kemur að hug­taka­notkun og því sem rétt er varð­andi form­legan far­veg máls­ins,“ sagði hann. Í sömu vik­unni dró Bjarni upp þá mynd í fjöl­miðlum að leka­málið sner­ist um hefð­bundið kæru­mál innan stjórn­sýsl­unnar þegar raunin var sú að um var að ræða for­dæma­lausa saka­mála­rann­sókn sem beind­ist sér­stak­lega að ráðu­neyt­is­starfs­mönnum og varð­aði brot á almennum hegn­ing­ar­lögum. Nokkrum mán­uðum síðar full­yrti Bjarni að aldrei hefði komið neitt fram sem sýndi að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði sagt ósatt. Þá höfðu DV og fleiri fjöl­miðlar fjallað ítar­lega um ítrekuð ósann­indi ráð­herr­ans.

4. Sagði fréttakonu hafa rangt fyrir sér

Þann 23. sept­em­ber 2016 sak­aði Bjarni Bene­dikts­son Sigríði Hagalín Björns­dóttur, umsjón­ar­mann leið­togaum­ræðna Rík­is­út­varps­ins, um rang­færslu þegar hún benti á að hann hefði ekki staðið við lof­orð sem hann gaf öldruðum um afnám tekju­teng­ingar elli­líf­eyris í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna 2013. Sigríður vís­aði þar til bréfs Bjarna til eldri borg­ara þar sem fram kom að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætl­aði að „aft­ur­kalla kjara­skerð­ingu elli­líf­eyr­is­þega, sem komið var á árið 2009“ en jafn­framt að flokk­ur­inn myndi „afnema tekju­teng­ingar elli­líf­eyris“. Bjarni svar­aði: „Þetta er bara alrangt hjá þér. Við þessi lof­orð var staðið.“ Hið rétta er að tekju­teng­ing elli­líf­eyris er ennþá hluti af líf­eyr­is­kerfi Trygg­inga­stofn­unar og grunn­líf­eyrir líf­eyr­is­trygg­inga skerð­ist ennþá vegna atvinnu­tekna. Síðar í sama þætti við­ur­kenndi Bjarni að vinnu við efndir þess­ara kosn­inga­lof­orða væri ólokið.

5. Sagðist ekki
eiga aflandsfélag

Þann 11. febr­úar 2015 sagði Bjarni Bene­dikts­son í Kast­ljós­svið­tali að hann hefði aldrei átt eignir í skatta­skjólum eða stundað við­skipti í gegnum þau. Nokkrum mán­uðum síðar kom í ljós að Bjarni hafði geymt 40 millj­ónir í aflands­fé­lagi á Seychelles-eyjum án þess að greina frá því í hags­muna­skrá þing­manna. Bjarni hefur gefið þá skýr­ingu að hann hafi haldið að félagið væri skráð í Lúx­em­borg og einnig við­ur­kennt að hafa gefið íslenskum skatta­yf­ir­völdum þær röngu upp­lýs­ingar þegar hann skil­aði skatt­skýrslum. Þegar Reykja­vik Media spurði Bjarna um málið í fyrra sagði hann að til­gangur félags­ins hafi verið að halda utan um eign á einni íbúð í Dúbaí. Í svörum hans til Süddeutsche Zeitung kom hins vegar fram að íbúð­irnar væru fjórar tals­ins og var það stað­fest af verk­tak­anum í Dúbaí. 

6. Gaf kolranga mynd af uppboðsleiðinni

Í For­ystu­sæt­inu á RÚV þann 11. októ­ber 2016 gaf Bjarni Bene­dikts­son vill­andi mynd af upp­boði Fær­ey­inga á fisk­veiði­heim­ildum til að rök­styðja þá skoðun sína að óæski­legt væri fyrir Íslend­inga að fara slíka leið. Þegar spyrill minnt­ist á reynslu Fær­ey­inga svar­aði Bjarni: „Þú ert að tala um heim­ild­irnar sem voru seldar útlend­ing­unum, sem fóru til eins fyr­ir­tækis.“ Hið rétta er að fisk­veiði­heim­ild­irnar í Færeyjum voru ekki seldar einu fyr­ir­tæki heldur mörgum. Þá gátu aðeins fær­eysk fyr­ir­tæki, það er félög í meiri­hluta­eigu Fær­ey­inga, tekið þátt í upp­boð­inu. Auk þess sagði Bjarni: „Eru menn í alvör­unni að tala um það að við eigum núna að taka þessa fisk­veiði­auð­lind sem skapar störf úti um allt land og bjóða hana til útlend­inga?“ Raunin er hins vegar sú að á Íslandi eru í gildi lög um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri sem setja aðkomu útlend­inga að fisk­veiðum og vinnslu sjáv­ar­af­urða mjög þröngar skorður. Enginn sem talar fyrir upp­boðs­leið á Íslandi hefur mælst til þess að þessar reglur verði afnumdar eða að fisk­veiði­auð­lindin verði sér­stak­lega boðin útlend­ingum. 

7. Röng lýsing á aflandsskýrslu

Þann 6. febr­úar full­yrti Bjarni Bene­dikts­son á Alþingi að í skýrsl­unni um aflandseignir Íslend­inga væri „ekk­ert sér­stakt sem skýrslan bendir á að stjórn­völd hafi látið undir höfuð leggj­ast að gera“. Ummælin stand­ast ekki skoðun, enda er sér­stak­lega fundið að því í skýrsl­unni að stjórn­völd hafi, á árunum fyrir hrun, hunsað ráð­legg­ingar sér­fræð­inga um að inn­leiða svo­kall­aða CFC-lög­gjöf á Íslandi. Leitt er líkum að því að með lög­fest­ingu slíkra reglna hefði mátt koma í veg fyrir að afland­svæð­ingin sem átti sér stað á útrás­ar­ár­unum yrði jafn umfangs­mikil og raun ber vitni. Síðar í sama mán­uði fór Bjarni aftur með rangt mál um efn­is­at­riði skýrsl­unnar og sagði höf­unda hennar hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Íslend­ingar hefðu verið „í far­ar­broddi“ þegar kom að því að „breyta laga­lega umhverf­inu í tengslum við skatta­skjól“. Hið rétta er að starfs­hóp­ur­inn gagn­rýnir einmitt íslensk stjórn­völd fyrir að hafa verið eft­ir­bátur nágranna­ríkj­anna að þessu leyti. Í skýrsl­unni er vakin athygli á því að umfang afland­svæð­ingar íslensks efna­hags­lífs var „ein­stakt í heim­inum“ á útrás­ar­ár­unum og þetta sér­stak­lega rakið til þess hve seint lagaum­hverf­inu á Íslandi var breytt. 

8. Röng fullyrðing um greiðendur tekjuskatts

Þann 27. októ­ber síð­ast­lið­inn full­yrti Bjarni Bene­dikts­son rang­lega í stöðu­upp­færslu á Facebook að ein­ungis tekju­hæstu 30 pró­sent fram­telj­enda stæðu undir tekjum rík­is­sjóðs af tekju­skatts­kerf­inu. Gunnar Jörgen Vigg­ós­son, pistla­höf­undur á Stund­inni, hrakti ummælin og sýndi fram á að raunin er sú að a.m.k. tekju­hæstu 50 pró­sent fram­telj­enda standa undir kerf­inu. Þannig kom í ljós að með ummælum sínum hafði Bjarni haldið því rang­lega fram að drjúgur hluti vinn­andi fólks í land­inu greiddi í raun og veru ekki tekju­skatt. Þessi röngu ummæli Bjarna, sem kunna að hafa sprottið af mis­skiln­ingi, voru nær eina fram­lag hans til umræð­unnar um mis­skipt­ing­ar­á­hrif skatta­stefnu þáver­andi rík­is­stjórnar í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga. Fjórir nýkjörnir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins deildu rang­færsl­unni á sam­fé­lags­miðlum og tóku þannig þátt í að dreifa vill­andi upp­lýs­ingum til kjós­enda.  

 

Listinn er hluti af ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um Bjarna Bene­dikts­son sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár