Örlög íslenska drengsins útskýrð í fréttaskýringaþætti

Ástr­alski frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Dateline fjall­aði um norsku barna­vernd­ina aðeins tveimur dögum áður en Helena Brynj­ólfs­dóttir steig fyrst fram í við­tali við Stundina. Hún flúði Noreg með fimm ára gam­alt barna­barn sitt. Sjáðu þátt­inn hér.

Örlög íslenska drengsins útskýrð í fréttaskýringaþætti
Mótmæla barna­vernd í Noregi Aðferðir stofn­un­ar­innar eru mjög umdeildar en þeim hefur verið mót­mælt af tugum þús­unda víða um heim.

Umfjöllun ástr­alska frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Dateline um norsku barna­vernd­ina útskýrir yfir­vof­andi örlög fimm ára gam­als íslensks drengs sem Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sam­þykkti að senda ætti úr landi í morgun.

Hér­aðs­dómur féllst þannig á kröfu norsku barna­vernd­ar­innar, sem vill fá dreng­inn sendan til Noregs svo taka megi hann úr höndum móður hans og ömmu og setja í fóstur hjá ókunn­ugum, norskum fóst­ur­for­eldrum.

Amma drengs­ins, Helena Brynj­ólfs­dóttir, fær ekki að sjá hann í þrettán ár, sam­kvæmt nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms.

Í þætti sínum um norsku barna­vernd­ina birtir Dateline átak­an­leg mynd­skeið úr földum mynda­vélum á heim­ili for­eldra sem fengu börnin sín í heim­sókn undir eft­ir­liti norsku barna­vernd­ar­innar. Þeir for­eldrar sem missa for­sjá yfir börnum sínum til norsku barna­vernd­arnnar fá aðeins að hitta þau tvisvar sinnum á ári í tvo klukku­tíma í senn.

Í þætt­inum er fjallað um þann gríð­ar­lega fjölda barna sem tekin eru frá for­eldrum sínum og færð í fóstur hjá ókunn­ugu fólki til átján ára ald­urs.

Norways sto­len children? Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Dateline um norsku barna­vernd­ina. 

Mótmælt út um allan heim

Umdeildar aðferðir norsku barna­vernd­ar­innar hafa verið for­dæmdar út um allan heim, meðal ann­ars á Íslandi. Nú stendur til að afhenda norsku barna­vernd­inni fimm ára gamlan íslenskan dreng sem Stundin hefur fylgst náið með frá því amma hans, Helena Brynj­ólfs­dóttir, flúði með hann til Íslands fyrr á þessu ári.

Helena og dreng­ur­innSamkvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur frá því í morgun þá ber Helenu að afhenda norskum barna­vernd­ar­yf­ir­völdum dreng­inn innan sex­tíu daga.

Norskur dóm­stóll hafði dæmt for­sjá drengs­ins af móð­ur­inni, dóttur Helenu, og til norsku barna­vernd­ar­innar. Þar hafði verið ákveðið að vista dreng­inn hjá ókun­ugu fólki til átján ára ald­urs eða í rúm þrettán ár. Því gat Helena ekki lifað með og flúði Noreg ásamt dóttur sinni og litla drengnum.

Helena fór yfir atburð­ar­rás­ina í opin­skáu og ein­lægu við­tali í Stund­inni þann 28. júlí en tveimur dögum áður fór frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn um þessar umdeildu aðferðir norsku barna­vernd­ar­innar í loftið.

Helenu ber að skila barn­inu í hendur norsku barna­vernd­ar­innar og hefur til þess tvo mán­uði. Þetta kemur fram í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem les­inn var upp fyrir lög­fræð­ing hennar í dag.

Þetta þýðir að Helena fær ekki að sjá barna­barnið sitt, fimm ára gamlan dreng, í 13 ár þar sem reglur barna­verndar í Noregi heim­ila aðeins heim­sóknir for­eldra barn­anna. Dóttir Helenu, sem missti for­sjá yfir drengnum í Noregi, fær að hitta son sinn tvisvar á ári, tvo klukku­tíma í senn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár