Kveður son sinn sem fór á vistheimili í dag: „Ég hélt að við myndum fá að vera með honum yfir hátíðarnar“
Elva Christina kvaddi son sinn í dag, aðeins fimm dögum fyrir jól. Fjölskylda Eyjólfs Kristins fær ekki að hafa hann hjá sér yfir hátíðarnar að kröfu norsku barnaverndarinnar og því mun hann eyða jólunum á vistheimili í Reykjavík.
FréttirBarnavernd í Noregi
Niðurstaða komin: Norska barnaverndin leyfir Eyjólfi að alast upp á Íslandi
Opinber niðurstaða liggur fyrir í máli Eyjólfs Kristins, fimm ára gamals íslensks drengs, sem norsk barnaverndaryfirvöld vildu fá í sína vörslu. Helena Brynjólfsdóttir, amma drengsins, flúði með hann hingað til lands í júlí. Íslensk yfirvöld fara nú með forsjá Eyjólfs Kristins.
FréttirBarnavernd í Noregi
Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
Á meðan Helena Brynjólfsdóttir reynir að bjarga húsinu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfirvöld að klára samkomulag landanna á milli varðandi framtíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyrirgert rétti sínum í Noregi með því skilyrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barnaverndaryfirvöld vilja að honum sé komið í fóstur utan fjölskyldunnar.
FréttirBarnavernd í Noregi
Mæðgurnar segja frá hinni hliðinni eftir dóm Hæstaréttar
Í nýföllnum dómi Hæstaréttar í máli fimm ára íslensks drengs eru birtar upplýsingar um heimilisofbeldi og áfengisneyslu sem hvorki móðir né amma drengsins hafa greint frá í fjölmiðlum. Þær segja að upplýsingarnar séu að hluta rangar og að þær vísi til ástands sem er löngu yfirstaðið.
FréttirBarnavernd í Noregi
Hæstiréttur staðfestir að Eyjólfur verði sendur til Noregs
Hæstiréttur Íslands staðfesti rétt í þessu dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að fimm ára gamall drengur skuli nauðugur fluttur frá fjölskyldu sinni og til Noregs þar sem hann verður vistaður til 18 ára aldurs. „Hvað á ég að gera?“ spyr Elva Christina, móðir Eyjólfs.
ViðtalBarnavernd í Noregi
„Ekki taka hann frá mér“
Elva Christina var aðeins fimmtán ára gömul þegar hún átti Eyjólf. Fæðingarþunglyndi helltist yfir hana og hún fór út af sporinu í lífinu. Nú, rúmum fimm árum síðar, gæti hún þurft að kveðja son sinn fyrir fullt og allt því norska barnaverndin vill fá Eyjólf í sína vörslu. Hún óttast að sonur hennar gleymi henni.
FréttirBarnavernd í Noregi
Forstjóri Barnaverndarstofu hafði samband við norsku barnaverndina
Nú eru 36 dagar þar til lögreglan fjarlægir hinn fimm ára gamla Eyjólf af heimili ömmu sinnar og móður í Reykjavík. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefur blandað sér í málið og vill að drengurinn fá lausn sinna mála hér á landi.
FréttirBarnavernd í Noregi
Innanríkisráðuneytið neitar að tjá sig: „Ólöf! Ekki leyfa þeim að taka barnið mitt“
Tilfinningaþrunginn samstöðufundur var haldinn á Austurvelli í gær með fimm ára dreng sem norska barnaverndin vill fá sendan til Noregs í fóstur. Síðustu tveir innanríkisráðherrar hafa blandað sér í forsjármál á milli landa með peningastyrkjum en nú neitar ráðuneytið að tjá sig.
FréttirBarnavernd í Noregi
Sýna samstöðu á Austurvelli: 38 dagar þar til norska barnaverndin tekur Eyjólf
Yfir fimm hundruð manns hafa boðað komu sína á Austurvöll klukkan fimm í dag til þess að sýna samstöðu með fimm ára dreng sem senda á í fóstur til ókunnugs fólks í Noregi í þrettán ár. Skora á innanríkisráðherra að beita sér í málinu.
FréttirBarnavernd í Noregi
Örlög íslenska drengsins útskýrð í fréttaskýringaþætti
Ástralski fréttaskýringaþátturinn Dateline fjallaði um norsku barnaverndina aðeins tveimur dögum áður en Helena Brynjólfsdóttir steig fyrst fram í viðtali við Stundina. Hún flúði Noreg með fimm ára gamalt barnabarn sitt. Sjáðu þáttinn hér.
FréttirBarnavernd í Noregi
Dæmd til að afhenda drenginn norsku barnaverndinni: Fær ekki að sjá hann í þrettán ár
Örlög fimm ára drengs réðust fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann skal fluttur til Noregs þar sem hans bíður vistun hjá ókunnugum fósturforeldrum til 18 ára aldurs. Amma drengsins, Helena Brynjólfsdóttir flúði með hann til Íslands fyrr á þessu ári.
FréttirBarnavernd í Noregi
Örlög íslenska drengsins í höndum dómara: „Ég er bara búin að gráta í allan dag“
Helena Brynjólfsdóttir, amma fimm ára gamals drengs, barðist fyrir dómi í dag við norsku barnaverndina, sem vill setja drenginn í fóstur í Noregi. „Þetta er fimm ára gamalt barn sem ég elska meira en allt,“ segir Helena, sem grét í viðtali við blaðamann.
Jón Baldvin við nemanda: „Viltu hitta mig eftir næsta tíma“
Fimmtán ára stúlka í Hagaskóla hélt dagbók vorið 1970 þar sem hún lýsir kynferðislegum samskiptum við Jón Baldvin Hannibalsson sem þá var 31 árs gamall kennari hennar. Í bréfi sem hann sendi stúlkunni segist hann vilja stinga af frá öllu og liggja í kjöltu hennar.
2
Eigin Konur#75
3
Fylgdi móður sinni í einkaflugvél
Ragnheiður er aðeins 15 ára gömul en hún fór með mömmu sinni til Noregs með einkaflugvél að sækja bræður sína. Samfélagsmiðlar gera börnum kleift að tjá sig opinberlega og hefur Ragnheiður verið að segja sína sögu á miðlinum TikTok. Hún talar opinskátt um málið sitt eftir að barnavernd og sálfræðingur brugðust henni. Hvenær leyfum við rödd barna að heyrast? Í þessu viðtali segir Ragnheiður stuttlega frá því sem hún er nú þegar að tala um á TikTok og hver hennar upplifun á ferðalaginu til Noregs var.
3
Eigin Konur#82
Fjölskyldan flakkaði milli hjólhýsa og hótela: Gagnrýnir að barnavernd skyldi ekki grípa fyrr inn í
„Ég byrjaði alla morgna á að spyrja hvert ég ætti að koma eftir skóla, því maður vissi aldrei hvar maður myndi vera næstu nótt,“ segir Guðrún Dís sem er 19 ára. Í viðtali við Eigin Konur segir hún frá upplifun sinni af því að alast upp hjá móður með áfengisvanda. Hún segir að lífið hafa breyst mjög til hins verra þegar hún var 12 ára því þá hafi mamma hennar byrjað að drekka. Þá hafi fjölskyldan misst heimilið og eftir það flakkað milli hjólhýsa og hótela. Guðrún Dís vildi segja frá sinni hlið mála eftir að móðir hennar opinberaði sögu sína á YouTube. Guðrún Dís hefur lokað á öll samskipti við hana. Guðrún segir að þó mamma hennar glími við veikindi eigi hún ekki að bera ábyrgð á henni. Hún gagnrýnir starfsfólk barnaverndar fyrir að hafa ekki gripið inn í miklu fyrr. Ábyrgðarmaður og ritstjóri Eigin kvenna er Edda Falak.
4
Viðtal
1
Þar sem ósýnilega fólkið býr í borginni
„Þetta var öruggasti staðurinn minn,“ segir Alma Lind Smáradóttir þegar hún opnar inn í ruslageymslu í bílakjallara í Reykjavík. Þarna bjó hún hluta þeirra þriggja ára sem hún þvældist um götur bæjarins. Borgin sést í öðru ljósi þegar hún er séð með augum heimilislausra, ósýnilega fólksins, þeirra sem flestir líta fram hjá eða hrekja burt. Ítarlegt og einlgæt viðtal við Ölmu Lind birtist í 162. tölublaði Stundarinnar og má lesa í heild á slóðinni: https://stundin.is/grein/16051/
5
Viðtal
7
„Ég get ekki lifað við þessa lygi“
Sigurlaug Hreinsdóttir segir lögregluna hafa brugðist þegar dóttir hennar hvarf fyrir fimm árum síðan. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu gerir fjölmargar athugasemdir við framgöngu lögreglu í málinu og beinir tilmælum um úrbætur til ríkislögreglustjóra. „Ég biðst einlægrar afsökunar,“ skrifar Grímur Grímsson, sem var hampað sem hetju og tók á móti viðurkenningu sem maður ársins. „Það var ótrúlega sárt,“ segir Sigurlaug. Sér hafi verið fórnað fyrir ímynd lögreglunnar.
6
Fréttir
14
„Hann hefur ekki beðist afsökunar“
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, sem kallar sig Auður, hefur viðurkennt að hafa farið „yfir mörk“ í samskiptum við konur. Konur lýsa ágengni og meiðandi framkomu sem hann hafi aldrei axlað ábyrgð á.
7
Eigin Konur#80
Helga Sif og Gabríela Bryndís
Helga Sif stígur nú fram í viðtali við Eigin konur eftir að barnsfaðir hennar birti gerðardóm í forsjárdeilu þeirra og nafngreindi hana og börnin á Facebook. Helga Sif og börnin hafa lýst andlegu og kynferðislegu ofbeldi föðurins og börnin segjast hrædd við hann. Sálfræðingar telja hann engu að síður hæfan fyrir dómi. Nú stendur til að færa 10 ára gamalt langveikt barn þeirra til föðurins með lögregluvaldi. Gabríela Bryndís er sálfræðingur og einn af stofnendum Lífs án ofbeldis og hefur verið Helgu til aðstoðar í málinu. Ábyrgðarmaður og ritstjóri Eigin kvenna er Edda Falak.
8
Viðtal
9
Lifði af þrjú ár á götunni
Alma Lind Smáradóttir endaði á götunni eftir að hún missti son sinn frá sér. Þar þvældist hún um í þrjú ár með sár sem náðu aldrei að gróa. Þegar hún varð barnshafandi á ný mætti barnavernd á fæðingardeildina og fór fram á að hún myndi afsala sér barninu.
9
Afhjúpun
3
„Hann var ekki að kaupa aðgengi að mér þegar hann lánaði mér pening“
Katrín Lóa Kristrúnardóttir þóttist heppin þegar henni var tjáð af vinnuveitanda sínum, Helga Vilhjálmssyni í Góu, að hann gæti lánað henni fyrir útborgun í íbúð. Hún hefði þó aldrei þegið slíkt lán ef hún hefði vitað hvað það hefði í för með sér en Katrín Lóa lýsir því að eftir lánveitinguna hafi hún þurft að sitja undir kynferðislegri áreitni Helga svo mánuðum skipti. Helgi biður Katrínu Lóu afsökunar á framferði sínu.
10
Úttekt
8
Mata-veldið: Skattaundanskot og samkeppnisbrot í skjóli ríkisins
Mata-systkinin og fyrirtæki þeirra hafa ítrekað verið gerð afturreka með viðskiptafléttur sem fólu í sér að koma mörg hundruð milljóna hagnaði undan skatti. Á sama tíma og fyrirtæki fjölskyldunnar byggja hagnað sinn á sölu matvæla undir tollvernd, hafa þau greitt háar sektir fyrir samkeppnisbrot og lagst í ómælda vinnu við að komast undan því að greiða skatta hér á landi, með viðskiptafléttum í gegnum þekkt skattaskjól.
Þín áskrift hefur áhrif
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni og Kjarnanum með áskriftum og styrkjum síðan 2013. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.