Kveður son sinn sem fór á vistheimili í dag: „Ég hélt að við myndum fá að vera með honum yfir hátíðarnar“

Elva Christina kvaddi son sinn í dag, aðeins fimm dögum fyrir jól. Fjöl­skylda Eyjólfs Kristins fær ekki að hafa hann hjá sér yfir hátíð­arnar að kröfu norsku barna­vernd­ar­innar og því mun hann eyða jól­unum á vist­heim­ili í Reykja­vík.

Elva Christina og Eyjólfur Kristinn
Elva Christina og Eyjólfur Kristinn Elva kvaddi son sinn í dag en barna­vernd­ar­nefnd Reykja­vík­ur­borgar hefur komið honum fyrir á vist­heim­ili fyrir börn. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Eftir smá­stund þarf ég að kyssa son minn bless. Ég veit ekk­ert hvenær ég fæ að hitta hann aftur. Það eru fimm dagar í jól og ég hélt að við myndum fá að vera með honum yfir hátíð­arnar en svo er ekki. Við þurfum að kveðja hann í dag,“ segir Elva Christina, móðir Eyjólfs Kristins. Stundin hefur fylgst með máli Eyjólfs frá því í júlí á þessu ári þegar amma hans, Helena Brynj­ólfs­dóttir, flúði með hann hingað til lands. Forsjá Eyjólfs Kristins hafði verið dæmd af Elvu og átti að koma honum fyrir hjá norskri fóst­ur­fjöl­skyldu þegar Helena ákvað að flýja til Íslands.

Nú, rúmum fimm mán­uðum síðar, er komið að kveðju­stund. Fjöl­skylda Eyjólfs Kristins hefði viljað fá að eyða með honum jól­unum. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var það krafa norsku barna­vernd­ar­innar að hann yrði sam­stundis fjar­lægður af heim­il­inu. Elva Christina og þeir sem standa Eyjólfi næst eru að sjálf­sögðu þakk­lát fyrir að hann fái að alast upp á Íslandi en það sé þyngra en tárum taki að hann verði fjar­lægður af heim­il­inu fyrir jólin.

Eyjólfur Kristinn er því kom­inn á vist­heim­ili í Reykja­vík. Þangað kom hann um klukkan þrjú í dag og þar kemur hann til með að eyða jól­unum. Eyjólfur Kristinn mun reyndar ekki vera eina barnið sem eyðir jól­unum á umræddu vist­heim­ili. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Stund­inni barst verða þar sjö til átta önnur börn, sem barna­vernd­ar­nefnd Reykja­vík­ur­borgar telur nauð­syn­legt að vista þar yfir hátíð­arnar. Samkvæmt fjöl­skyldu Eyjólfs mun hann dvelja á vist­heim­il­inu þar til valin verður fóst­ur­fjöl­skylda á nýju ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár