Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
Helena og Eyjólfur Fjöl­skyldan hefur fengið jákvæð svör frá norskum barna­vernd­ar­yf­ir­völdum en ekk­ert sé þó fast í hendi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við höfum fengið að vita að það séu allar líkur á því að hann fái að alast upp á Íslandi. Það er hins­vegar ekki búið að færa það yfir á prent eða skrifa undir eitt­hvað þannig að við erum enn hrædd. Við vonum að sjálf­sögðu það besta,“ segir Helena Brynj­ólfs­dóttir, amma Eyjólfs Kristins, sem steig fram í við­tali við Stundina þann 28. júlí og sagð­ist hafa rænt barna­barni sínu til þess að bjarga því. Helena vildi koma barna­barn­inu undan norsku barna­vernd­inni sem á þeim tíma var komin með for­sjá yfir því og var að leita að fóst­ur­heim­ili. Vista átti Eyjólf Kristinn í var­an­legt fóstur til átján ára ald­urs hjá ókunn­ugri norskri fjöl­skyldu. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var norska barna­verndin búin að velja fóst­ur­fjöl­skyldu fyrir Eyjólf þegar amma hans flaug með hann til Íslands.

Helena var nýbúin að kaupa sér hús í Krist­ans­and  og komin í góða vinnu á hót­eli í borg­inni þegar hún flúði Noreg ásamt dóttur sinni og barna­barni. Hún segir fólk út um allan heim hafa hvatt sig til þess að flýja. Taka barnið og hlaupa eins langt frá Noregi og kostur væri. Fljúga til Íslands. Fela sig. Lög­fræð­ingar hennar sögðu við hana að hún væri komin út í horn.

„Ver­ald­leg gæði skiptu mig engu máli enda varð ég að velja á milli þeirra og barns­ins. Ég valdi að sjálf­sögðu barnið og hljóp.“ 

„Ég ræddi við tvo lög­fræð­inga, bæði á Íslandi og í Noregi. Þeir, eins og gefur að skilja, gátu ekki beint sagt mér að flýja en sögðu að ég væri komin algjör­lega út í horn og það næsta sem myndi ger­ast væri að barnið yrði tekið og þá væri svo gott sem úti­lokað að reyna að fá það aftur. Fólkið sem ég ræddi við í þessum hópi á Facebook bauðst til þess að greiða flug­miða fyrir mig, gist­ingu, láta mig fá dag­pen­inga og í raun hvað sem er til þess að hjálpa mér að kom­ast undan. Þetta var fólk sem hafði misst börnin sín, hafði fundið fyrir órétt­læt­inu og vildi hjálpa mér. Ég var á báðum áttum. Skít­hrædd. Komin með frá­bæra vinnu í Krist­i­ans­and og nýbúin að kaupa mér hús. Hvað átti ég að gera? Ver­ald­leg gæði skiptu mig engu máli enda varð ég að velja á milli þeirra og barns­ins. Ég valdi að sjálf­sögðu barnið og hljóp.“ 

Fá vonandi að eyða með honum jólunum

Helena kom til Noregs í gær til þess að reyna að bjarga hús­inu og ákveða næstu skref. Hún segir fjöl­skyld­una engar fréttir hafa fengið þess efnis að það væri alveg stað­fest að Eyjólfur Kristinn yrði ekki fluttur til Noregs. DV greindi frá því í gær að sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins væri búið að taka ákvörðun um fram­tíð Eyjólfs Kristins og að hann yrði ekki sendur til Noregs heldur fengi hann að alast upp á Íslandi. 

„Það er alla­vega ekki búið að láta okkur vita og það er ekk­ert fast í hendi. Við vonum að þetta sé satt að sjálf­sögðu,“ segir Helena.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur móðir Eyjólfs Kristins, Elva Christina, fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi og þar með dregið sig út úr dóms­máli gegn norsku barna­vernd­inni en um var að ræða áfrýjun vegna for­sjár­svipt­ing­ar­innar. Það á hún að hafa gert með því skil­yrði að Eyjólfur Kristinn fengi að alast upp á Íslandi. Samkvæmt sömu heim­ildum eiga norsk yfir­völd að hafa gengið að þessum samn­ing en þó með einu skil­yrði og það er að Eyjólfur Kristinn fari ekki í fóstur til fjöl­skyldu­með­lima. Það þýðir að hvorki faðir hans né móðir fá að ala hann upp. Bæði föður- og móð­ur­fjöl­skylda Eyjólfs Kristins von­ast eftir því að norska barna­verndin láti undan og flytji málið alfarið til íslensku barna­vernd­ar­innar, skil­yrð­is­laust

Sorglegt að koma aftur inn í húsið

„Nú er bara að bíða og vona. Það eru að koma jól og von­andi fær hann að vera hjá fjöl­skyld­unni sinni um jólin. Ég trúi ekki því að hann verði tek­inn í burtu korter í jól. En á meðan við bíðum eftir því að eitt­hvað sé fast í hendi þá ætla ég að reyna að bjarga hús­ínu mínu hérna í Noregi. Ég hef ekki komð hingað síðan í júní. Það hefur í raun eng­inn komið hingað síðan við brun­uðum út á flug­völl með Eyjólf Kristinn,“ segir Helena.

Hvernig var að koma í húsið þitt í Noregi núna hálfu ári eftir að þú flúðir þaðan í flýti?

„Það var voða­lega sorg­legt að koma inn í húsið og sjá dótið hans, leik­föngin hans og rúmið hans. Þetta var sárt. Ég þurfti nátt­úru­lega fyrst að klof­vega fjallið af reikn­ingum sem biðu mín við úti­dyra­hurð­ina. Ég veit ekk­ert hvort ég nái að bjarga hús­inu. Mér býðst þó vinnan mín aftur og það er ánægju­legt. Framtíð húss­ins ræðst á morgun.“

„Það var voða­lega sorg­legt að koma inn í húsið og sjá dótið hans, leik­föngin hans og rúmið hans. Þetta var sárt.“

Nú. Hvað er að ger­ast á morgun?

„Þá fer ég í við­tal hjá bank­anum. Ég hef ekk­ert greitt frá því í júní og þegar fólk er komið í svona mikil van­skil þá verður róð­ur­inn ansi erf­iður. Annars myndi ég alltaf gera þetta aftur. Ég myndi ekki hugsa mig tvisvar um. Mig langar líka að koma á fram­færi þökkum til allra þeirra sem sýndu okkur stuðn­ing og buðu fram aðstoð sína. Það var ótrú­legur fjöldi fólks. Ég hefði aldrei trúað því að það væri til svona mikið af góðu fólki sem væri til­búið til þess að leggja sig fram við að aðstoða aðra sem þeir mögu­lega þekkja ekki neitt,“ segir Helena sem enn heldur í von­ina um far­sæla lausn.

„Ég fæ von­andi að vera amma hans í fram­tíð­inni. Það skiptir mig öllu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár