Mæðgurnar segja frá hinni hliðinni eftir dóm Hæstaréttar

Í nýföllnum dómi Hæsta­réttar í máli fimm ára íslensks drengs eru birtar upp­lýs­ingar um heim­il­is­of­beldi og áfeng­is­neyslu sem hvorki móðir né amma drengs­ins hafa greint frá í fjöl­miðlum. Þær segja að upp­lýs­ing­arnar séu að hluta rangar og að þær vísi til ástands sem er löngu yfir­staðið.

Mæðgurnar segja frá hinni hliðinni eftir dóm Hæstaréttar

Amma drengs­ins sem til stendur að senda til Noregs, þar sem norsk barna­vernd hafði úrskurðað að hann skyldi settur í fóstur, var beitt heim­il­is­of­beldi og stund­aði áfeng­is­neyslu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem birt­ast í dómi Hæsta­réttar með ákvörðun um að senda dreng­inn úr landi.

Í dómnum kemur fram að heim­il­is­of­beldi og áfeng­is­neysla séu ástæða þess að Helena Brynj­ólfs­dóttir hafi ekki fengið for­sjá yfir barna­barni sínu í Noregi. Upp­lýs­ing­arnar eru byggðar á gögnum norsku barna­vernd­ar­innar, sem virð­ist byggja á orðum dóttur Helenu, Elvu Christinu, móður drengs­ins.

Þessar upp­lýs­ingar hafa ekki komið fram áður þrátt fyrir að blaða­maður Stund­ar­innar hafi marg­sinnis rætt við bæði móður og ömmu barns­ins. Helena og Elva segja í sam­tali við Stundina að ástandið sem lýst er í dómnum sé löngu yfir­staðið og hafi verið yfir­staðið þegar dreng­ur­inn fædd­ist, og að upp­lýs­ingar um ástandið hafi byggst á orðum Elvu þegar hún hafi verið í neyslu og verið reið í garð fjöl­skyldu sinnar.

Þær segja að sú stað­reynd að Helena hafi átt erfitt tíma­bil eigi ekki að koma í veg fyrir að dreng­ur­inn verði hjá þeim, frekar en að vera sendur í fóstur í Noregi, eins og ákveðið hafði verið áður en Helena flúði með hann til Íslands.

Dæmd á samfélagsmiðlum

Í kjöl­far birt­ingar Hæsta­réttar á for­sendum norsku barna­vernd­ar­innar hefur vaknað umræða á sam­fé­lags­miðlum um hvort rétt­mætt sé að Helena og Elva Christina haldi syni sínum.

„Að draga fram fjöl­skyldu­vand­ræði sem heyrðu sög­unni til löngu áður en barna­barn mitt fæð­ist er bara svo svaka­lega ljótt“

Meðal þess sem kom fram var að norskum barna­vernd­ar­yf­ir­völdum hafi borist upp­lýs­ingar um ölvun Helenu, án til­grein­ingar um heim­ild­ina, og að dóttir hennar, Elva Christina, móðir drengs­ins, hafi sagt að hún treysti ekki móður sinni til þess að ann­ast dreng­inn. „Það er hrika­lega sárt að horfa upp á umræð­una breyt­ast. Eins og þetta sé hin hliðin sem allir voru að bíða eftir. Við fjöl­skyldan höfum átt alveg svaka­lega erfitt. Ég við­ur­kenni það alveg og ég myndi aldrei fara í graf­götur með það en að draga fram fjöl­skyldu­vand­ræði sem heyrðu sög­unni til löngu áður en barna­barn mitt fæð­ist er bara svo svaka­lega ljótt að ég á engin orð yfir það,“ segir Helena.

Átti erfitt eftir að besta vinkonan var myrt 

Erf­ið­leikar Helenu hófust árið 1988 þegar besta vin­kona hennar var myrt. Morðið átti sér stað í íbúð í Kópavogi en þangað hafði Helena farið ásamt vin­konu sinni, Öldu Rafns­dóttur og öðrum manni, Guðmundi Svein­björns­syni. Í íbúð­inni bjó Alda ásamt ungu barni sínu.

„Ég brá mér frá í smá­stund og á meðan þá myrti þessi maður bestu vin­konu mína. Stakk hana þrisvar sinnum í kvið­inn,“ segir Helena sem hefur frá þeim degi kennt sér um hvernig fór. „Hvað ef ég hefði ekki brugðið mér frá? Þá væri hún kannski á lífi. Morðið hafði víð­tæk áhrif á fjöl­skyld­una og hefur enn í dag.“

Helena vill þó ekki ræða morðið frekar. Hún hafi unnið úr áfall­inu ásamt fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum und­an­farin ár, en hann var bróðir Öldu, vin­kon­unnar sem var myrt. Í dómnum er minnst á fyrr­ver­andi eig­in­mann­inn og hann sagður ofbeld­is­hneigður, and­lega og lík­am­lega. Þá er einnig gefið í skyn að hann sé enn á heim­il­inu, sem sé fyrir vikið ekki „nægi­lega stöð­ugur og öruggur upp­eld­is­staður fyrir barnið.“

Helena segir að það sé rangt. „Hann býr ekki inni á heim­il­inu og það hefur aldrei komið neitt upp frá því Eyjólfur fædd­ist enda ákváðum við bæði tvö, ég og pabbi Elvu, að við skyldum vinna úr þessum áföllum saman en í sitt hvoru lagi og það höfum við gert. Norska barna­verndin lætur líta þannig út að inni á heim­il­inu búi ofbeld­is­maður sem haldi fjöl­skyld­unni í gísl­ingu. Það er bara ekki rétt,“ segir Helena sem á þessum tíma, löngu fyrir fæð­ingu Eyjólfs, deyfði sig með áfengi.

„Ég sef­aði sárs­auk­ann með áfengi og Elva Christina og hinar dætur mínar liðu fyrir það. Eyjólfur hefur hins vegar aldrei séð mig undir áhrifum og lífið hefur sem betur ferið farið batn­andi síðan þá. Vandræði fjöl­skyld­unnar voru erfið en staða mín var hins vegar allt önnur þegar Eyjólfur kom í heim­inn. Að draga þetta fram með þessum hætti, eins og norska barna­verndin gerir, er salt í sár sem aldrei virð­ast fá að gróa.“

Óskaði sjálf eftir að skila þvagsýnum

Fram hefur komið í umfjöll­unum Stund­ar­innar að Elva hafi verið svipt for­ræði í kjöl­far þess að hún leidd­ist út í fíkni­efna­neyslu. Í dómi Hæsta­réttar segir meðal ann­ars að Elva hafi neytt vímu­efna frá ell­efu ára aldri, fyrst áfengis og síðan vímu­efna. Á árinu 2015 hafi hún sprautað sig með amfetamíni. Eftir að hún kom úr með­ferð mæld­ist kanna­bis í þvag­sýnum fram í apríl 2016. Elva Christina segir hins vegar að hún hafi óskað eftir því að skila þvag­sýnum til barna­vernd­ar­yf­ir­valda eftir að hún kom til lands­ins. Það hafi hún gert reglu­lega og ávallt mælst hrein. 

Í dómnum segir einnig að Elva Christina hafi ýmist búið með for­eldrum sínum eða ein með barn­inu, en for­eldrar hennar hafi að miklu leyti ann­ast barnið. Faðir hennar hafi árið 2014 sætt lög­reglu­rann­sókn vegna heim­il­is­of­beldis en málið  hafi verið fellt niður. Þá segir að barna­vernd­ar­yf­ir­völdum hafi borist upp­lýs­ingar um ölvum móður hennar og óreglu­lega skóla­sókn drengs­ins á leik­skóla. 

 „Samkvæmt úrskurð­inum við­ur­kenndi sókn­ar­að­il­inn A fyrir fylk­is­nefnd­inni að hún væri ófær um að ann­ast um son sinn eins og sakir stæðu og væru barna­vernd­ar­yf­ir­völd á sama máli. Komið hafi fram hjá sókn­ar­að­il­anum A að móðir hennar hafi mis­notað áfengi um langan tíma, en þótt úr því hefði dregið gerð­ist það enn. Faðir hennar hafi verið mjög ofbeld­is­hneigður, and­lega og lík­am­lega, gagn­vart móður hennar, en einnig gagn­vart sókn­ar­að­il­anum, systrum hennar og börnum þeirra. Hún hafi ítrekað sagt að hún óskaði þess að sonur sinn fengi ekki sams konar upp­eldi og hún sjálf og ótt­að­ist hún um aðstæður hans hjá for­eldrum sínum.“

Upplýsingar sóttar í viðtöl við sálfræðing

Elva Christina átti afmæli í gær. Hún varð 21 árs. Sjálf seg­ist hún lítið hafa spáð í afmæl­inu því það hafi verið mikið áfall þegar þessar upp­lýs­ingar voru birtar í dómi Hæsta­réttar. Þar séu dregnar saman upp­lýs­ingar úr fjöl­mörgum við­tölum sem tekin voru við hana af starfs­mönnum barna­verndar. Í einu þeirra hafi hún til að mynda farið yfir fjöl­skyldu­sögu sína og þann erf­iða upp­vöxt sem hún seg­ist hafa gengið í gegnum. Hún hafi þó aldrei trúað því að barna­verndin ætti eftir að nota það gegn henni eða fjöl­skyldu hennar – við­tölin hafi verið við sál­fræð­ing og Elva hafi talið að þau ættu að nýta til góðs. Því hafi hún rætt upp­vaxt­arár sín opin­skátt og von­ast eftir því að líða betur í kjöl­farið. 

Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að Elva hafi „ítrekað sagt að hún óskaði þess að sonur sinn fengi ekki sams­konar upp­eldi og hún sjálf og ótt­að­ist hún um aðstæður hans hjá for­eldrum sínum.“ 

Þarna segir Elva hlut­ina slitna úr sam­hengi að hún átti sig ekki almenni­lega á því. Það sé rétt að hún hafi óskað þess að sonur sinn myndi ekki fá sams konar upp­eldi og hún sjálf, en að hún hafi aldrei sagt að hún treysti ekki mömmu sinni fyrir barn­inu.

„Ég var spurð að því hvort ég hefði viljað að Eyjólfur hefði alist upp við sömu aðstæður og ég. Auðvitað sagði ég nei. Þá virð­ast þeir bara nota sama­sem­merki þarna á milli og segja að ég hafi ótt­ast um Eyjólf og aðstæður hans á heim­ili mömmu? Það er bara algjört rugl.

„Þetta er ekki staðan í dag.“

Já, ég ólst upp við erf­iðar aðstæður og eins og margir ung­lingar gera þá tal­aði ég illa um mömmu og pabba. Þau eiga það samt ekki skilið. Þetta er ekki staðan í dag. Ég ólst upp við þessar aðstæður og sem betur fer hefur fjöl­skyldan reynt að vinna sig út úr þessum for­tíð­ar­draugum og það hefur gengið vel. Það var bara ótrú­lega erfitt að þurfa að lesa þetta allt á net­inu. Erfið fjöl­skyldu­saga mín er notuð gegn mér og móður minni sem hefur ekk­ert nema gott gert í lífi Eyjólfs, alveg frá því að hann fædd­ist. Síðan er ég líka bara reið yfir því hvernig þetta er sett fram. Hvernig mamma mín er máluð af norsku barna­vernd­inni. Það kemur kannski ekk­ert á óvart enda er margt sem kemur fram þarna bara bein­línis rangt,“ segir Elva.

Svara fyrir óreglulega skólasókn 

Um það sem kemur fram í dómi Hæsta­réttar að barna­vernd „hafi borist upp­lýs­ingar um ölvun móður sókn­ar­að­il­ans og mjög óreglu­lega skóla­sókn barns­ins á leik­skóla,“ segja mæðgurnar að þar hafi barna­vernd farið með rangt mál. 

Helena seg­ist hafa farið í með­ferð árið 2011, sama ár og Eyjólfur fædd­ist. Hún hafi ekki verið í óreglu á þeim tíma sem hún sinnti drengnum og bendir á að þarna sé barna­verndin aðeins að vísa í upp­lýs­ingar sem hafi aldrei verið stað­festar. Skömmu eftir að hún hætti að drekka hafi hún skilið við fyrr­ver­andi eig­in­mann sinn. 

Þegar talað er um „óreglu­lega skóla­sókn“ sé vísað til þess að dreng­ur­inn gisti í níu daga hjá frænku sinni í Noregi, eldri dóttur Helenu, og mætti þá ekki í leik­skól­ann, enda ekki skóla­skylda á leik­skóla­stigi. Leik­skól­inn hafi stað­fest þetta en norska barna­verndin hafi aldrei sætt sig við þá útskýr­ingu þrátt fyrir stað­fest­ingar frá bæði leik­skól­anum og eldri dóttir Helenu. Þá séu upp­lýs­ingar um „ölvun móður sókn­ar­að­il­ans“ sögu­sagnir sem eng­inn fótur er fyrir og engin gögn hafi verið lögð fram til þess að styðja þá „kjafta­sögu“ eins og Helena orðar það.

„Ég var erlendis í níu daga og Eyjólfur var í pössun hjá eldri dóttur minni. Þetta eru einu dag­arnir sem hann missti úr leik­skóla. Ég var ein að ann­ast hann og þurfti að fara erlendis. Á meðan var hann í góðu yfir­læti hjá dóttur minni. Hefur eng­inn lent í þeim aðstæðum? Að þurfa að fá pössun fyrir barnið sitt í nokkra daga? Norska barna­verndin lætur þetta líta út eins og hann hafi bara verið eirð­ar­laus og einn og ekki gengið í leik­skóla. Eins og ég segi. Það er erfitt að eiga við svona stofnun sem setur allt á hvolf og reynir að láta mann líta illa út. Það er erfitt.“

Það eina sem skipti máli og hafi skipt máli und­an­farna mán­uði sé vel­ferð Eyjólfs og að hann fái lausn sinna mála hér á Íslandi.

Hér má lesa dóm Hæsta­réttar um að fjar­lægja beri dreng­inn frá Elvu og Helenu og senda hann aftur til Noregs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár