Niðurstaða komin: Norska barnaverndin leyfir Eyjólfi að alast upp á Íslandi

Opinber nið­ur­staða liggur fyrir í máli Eyjólfs Kristins, fimm ára gam­als íslensks drengs, sem norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vildu fá í sína vörslu. Helena Brynj­ólfs­dóttir, amma drengs­ins, flúði með hann hingað til lands í júlí. Íslensk yfir­völd fara nú með for­sjá Eyjólfs Kristins.

Niðurstaða komin: Norska barnaverndin leyfir Eyjólfi að alast upp á Íslandi
Ham­ingju­samur Stundin hitti fyrir Eyjólf Kristinn og eyddi með honum degi nú fyrir skömmu. Hann elskar að mæta í leik­skól­ann sinn á morgn­ana, leika við vini sína og spila fót­bolta.

Í dag fékkst end­an­leg nið­ur­staða í mál Eyjólfs Kristins, fimm ára gam­als íslensks drengs, sem Stundin hefur fjallað um frá því í júlí á þessu ári. Norsk yfir­völd hafa fall­ist á þá ósk íslenskra yfir­valda og fjöl­skyldu drengs­ins að hann fái að alast upp á Íslandi. Þetta stað­festir Oddgeir Ein­ars­son, lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar. Íslensk barna­vernd­ar­yf­ir­völd fara með for­sjá drengs­ins frá og með deg­inum í dag.

Móðir drengs­ins, Elva Christina, hefur sóst eftir því að fá annað tæki­færi til þess að ala son sinn upp en líkt og Stundin greindi frá þá fór Elva út af spor­inu í líf­inu, flækt­ist í viðjar fíkni­efna sem leiddi til þess að hún var svipt for­sjánni í Noregi. Þangað hafði hún flutt ásamt móður sinni, Helenu Brynj­ólfs­dóttur, sem á end­anum flúði með dreng­inn til Íslands í lok júní á þessu ári. Þá hafði fjöl­skyldan búið í Noregi í um þrjú ár.

Ekki liggur hvernig málið verður end­an­lega leitt til lykta en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er stór­fjöl­skylda Eyjólfs Kristins, í bæði föður- og móð­ur­ætt him­in­lif­andi, með frétt­irnar.

„Fyrir hönd umbjóð­anda míns er þakkað fyrir þann hlý­hug og stuðn­ing sem henni og fjöl­skyldu hennar hefur verið sýndur á síð­ast­liðnum mán­uðum,“ segir í frétta­til­kynn­ingu sem Oddgeir sendi frá sér rétt í þessu.

Dagur í lífi Eyjólfs

Blaða­maður eyddi degi með Eyjólfi sem vakn­aði með bros á vör og fór að sofa með bros á vör.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár