Norska barnaverndin setur skilyrði: Eyjólfur fær nýja fjölskyldu fyrir jól

Móðir og faðir Eyjólfs þurfa að fyr­ir­gera rétti sínum til þess að sækja mál gegn norsku barna­vernd­inni ef stofn­unin á að taka það til greina að vista son þeirra á Íslandi. Ef þau gera það ekki verður Eyjólfur fluttur með valdi til Noregs í byrjun des­em­ber, þar sem búið er að finna honum fjöl­skyldu.

Norska barna­verndin vill að móðir og faðir Eyjólfs, fimm ára íslensks drengs sem norska stofn­unin vill fá í sína vörslu, afsali sér rétti sínum til þess að sækja rétt sinn gagn­vart norsku barna­vernd­inni ef það á að vera mögu­leiki að sonur þeirra fái fóstur á Íslandi, ella verður hann fluttur með valdi til Noregs þann 5. des­em­ber. Norska barna­verndin hefur þegar valið fjöl­skyldu fyrir Eyjólf og er hans nú beðið ytra.

Í skil­yrðum barna­vernd­ar­innar í Noregi felst að móðir Eyjólfs geri sér­staka dómsátt við norsku barna­vernd­ina í dóms­máli sem hún höfð­aði á hendur stofn­un­inni eftir að hafa verið svipt for­ræði. Það mál er enn í gangi í Noregi en norska barna­verndin vill það út af borð­inu. Þá vill stofn­unin að faðir Eyjólfs stað­festi skrif­lega að hann muni ekki sækj­ast eftir for­sjá drengs­ins með aðstoð dóm­stóla þar­lendis. Ef þau gera það þá mun norska barna­verndin skuld­binda sig til þess að finna fóst­ur­heim­ili handa drengnum á Íslandi í sam­starfi við íslensk barna­vernd­ar­yf­ir­völd. Eyjólfur yrði þó aldei vistaður hjá fjöl­skyldu­með­limum, hvorki hjá föður- né móð­ur­fjöl­skyldu hans.

Norska barna­verndin hefur þá afstöðu að hvorki móðir drengs­ins, amma hans né faðir hans, eigi að hafa for­ræði yfir honum. Meðal ann­ars byggir barna­verndin nið­ur­stöðu sína á fíkni­efna­neyslu móð­ur­innar, sem nú hefur farið í með­ferð, seg­ist hafa tekið upp breyttan lífs­stíl og hefur und­ir­geng­ist fíkni­efna­próf frá komu sinni til lands­ins í sumar. Þá voru þær for­sendur barna­verndar reif­aðar í dómi Hæsta­réttar að amma Eyjólfs hefði verið gagn­rýnd af móður hans í við­tölum við barna­vernd­ina á sínum tíma, meðal ann­ars fyrir heim­il­is­á­stand og áfeng­is­neyslu, en báðar hafa síðan sagt að þær aðstæður sem þar er lýst séu ýmist rangar eða aðstæð­urnar yfir­staðnar. Ekki fást upp­lýs­ingar um það af hverju faðir Eyjólfs er ekki tek­inn til greina af norsku barna­vernd­inni aðrar en þær að stofn­unin vill ekki að neinn fjöl­skyldu­með­limur komi nálægt fram­tíð­ar­fóst­ur­heim­ili hans.

Sagt að hætta að tjá sig um málið

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er þó ekki ljóst hvort norska barna­verndin megi, sam­kvæmt norskum lögum, finna barni fóstur utan Noregs, en verið sé að kanna leiðir fram hjá því ytra. Ekki er langur tími til stefnu og því hafi báðir for­eldrar Eyjólfs aðeins örfáa daga til þess að ákveða sig. Þau hafi bæði fengið að vita þetta rétt fyrir helgi en eftir því sem Stundin kemst næst þá ætlar hvorki móðir né faðir drengs­ins að fyr­ir­gera rétti sinn til þess að sækj­ast eftir for­sjá hans.

„Bæði móður- og föð­ur­fjöl­skylda Eyjólfs von­ast eftir því að ráð­herrar stígi inn í málið“

„Á manna­máli þá er verið að biðja þessa ungu for­eldra að gefa upp alla von á að fá að umgang­ast barnið sitt aftur. Með þessu ættu þau engan rétt. Þau ættu ekki einu sinni rétt á að sækja rétt sinn. Fárán­legt,“ sagði einn fjöl­skyldu­með­limur sem ekki vildi láta nafns síns getið og það ekki af ástæðu­lausu. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur norska barna­verndin einnig kraf­ist þess að bæði föður- og móð­ur­fjöl­skylda drengs­ins hætti að tjá sig um málið í fjöl­miðlum.

Erfið kveðju­stundElva Christina ætlar ekki að fyr­ir­gera rétt sinn til þess að sækja mál gegn norsku barna­vernd­inni og því gæti farið svo að lög­reglan sæki Eyjólf fyrir hönd norskra barna­vernd­ar­yf­ir­valda í byrjun des­em­ber.

Foreldrar fallast líklega ekki á skilyrðin

Stundin hafði sam­band við Barna­vernd­ar­stofu en þar feng­ust þær upp­lýs­ingar að enn væri unnið í mál­inu. Það væri við­kvæmt en nið­ur­staðan færi dálítið eftir afstöðu og vilja for­eldr­anna til þess að leysa það.

„Með deg­inum í dag eru fimmtán dagar þar til Eyjólfur skal fluttur til Noregs“

Eins og áður segir er ekki útlit fyrir að móðir og faðir Eyjólfs gangi að skil­yrðum norsku barna­vernd­ar­innar og því allt útlit fyrir að starfs­menn íslensku barna­vernd­ar­innar óski eftir aðstoð lög­reglu vegna aðfarar á heim­ili fjöl­skyld­unnar þann 5. des­em­ber næst­kom­andi. Þá verður Eyjólfur sóttur og honum fylgt til Noregs þar sem norsk fóst­ur­fjöl­skylda er sögð bíða eftir því að fá hann. Ef það ger­ist þá þarf móðir Eyjólfs að halda sínu máli til streitu fyrir norskum dóm­stólum og faðir hans að sækja rétt sinn gagn­vart norsku barna­vernd­inni ytra sömu­leiðis ef þau ætla að eiga ein­hvern mögu­leika á að halda drengnum.

Eyjólfur fær nýja fjölskyldu fyrir jól

Ef þau ganga að skil­yrðum norsku barna­vernd­ar­innar þá, eins og áður segir, mun norska barna­verndin skuld­binda sig til þess að finna fóst­ur­heim­ili handa drengnum á Íslandi í sam­starfi við norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar gæti Eyjólfur hitt nýju íslensku fjöl­skyld­una sína um mán­að­ar­mótin. En allt fer þetta eftir afstöðu for­eldr­anna og hvort norska barna­verndin finnur leið í kring um lög sem banna vistun fóst­ur­barna erlendis. Eitt er þó ljóst og það er að sama hvernig málið verður leitt til lykta, hvort sem það verður á Íslandi eða í Noregi, þá mun Eyjólfur fá nýja fjöl­skyldu fyrir jól.

Fær ekki for­sjáNorska barna­verndin hefur hafnað þeirri beiðni föður Eyjólfs að fá for­sjá yfir syni sínum. Þau vilja að faðir Eyjólfs lofi stofn­un­inni að sækj­ast ekki eftir for­sjá drengs­ins ef það á að vera mögu­leiki að vista hann á Íslandi.

Með deg­inum í dag eru fimmtán dagar þar til Eyjólfur skal fluttur til Noregs sam­kvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem var síðar stað­festur af Hæsta­rétti Íslands, eftir að amma Eyjólfs fór með frá Noregi án leyfis norsku barna­vernd­ar­innar. Forsenda dóms­ins var að með brott­flutn­ingnum á drengnum hefði verið brotið gegn Haag-sam­komu­lag­inu, sem kveður á um að ekki megi flytja með barn úr dval­ar­landi án heim­ildar for­sjárað­ila, sem í þessu til­felli var norska barna­verndin.

Vonast eftir inngripi ráðherra

Bæði móður- og föð­ur­fjöl­skylda Eyjólfs von­ast eftir því að ráð­herrar stígi inn í málið.

Orð Bjarna Bene­dikts­sonar, sitj­andi fjár­mála- og inn­an­rík­is­ráð­herra, í útvarps­við­tali hjá Harma­geddon hafi gefið þeim von en síðan þá hafi þau ekk­ert heyrt í Bjarna eða öðrum í rík­i­s­tjórn­inni. Í við­tal­inu sagð­ist Bjarni meðal ann­ars að hann væri að fylgj­ast mjög vel með mál­inu en bíða þyrfti dóms Hæsta­réttar. Þeir fjöl­skyldu­með­limir sem Stundin ræddi við sögðu að nú væri komið dálítið síðan að dómur féll en þau hafi ekk­ert heyrt. Þau hafi reynt að ná sam­band við Bjarna, bæði í gegnum fjár­mála­ráðu­neytið og inn­an­rík­is­ráðu­neytið en ekki haft erindi sem erf­iði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár