Meira en tífalt líklegra að barn sé tekið af íslensku foreldri í Noregi en á Íslandi

Norska barna­verndin hefur tekið 11 íslensk börn á aðeins tveimur árum í Noregi og komið fyrir í var­an­legu fóstri. „For­eldrar geta áfrýjað ár hvert en á hinn bóg­inn er sjald­gæft að slíkar áfrýj­anir séu teknar til skoð­unar,“ segir einn æðsti yfir­maður norsku barna­vernd­ar­innar.

Meira en tífalt líklegra að barn sé tekið af íslensku foreldri í Noregi en á Íslandi
Mótmælt víða um heim Starfs­að­ferðum norsku barna­vernd­ar­innar hefur verið mót­mælt víða um heim.

Sjö íslensk börn voru í fyrra tekin af for­eldrum sínum í Noregi og þeim komið fyrir á fóst­ur­heim­ili. Aðeins níu þús­und Íslend­ingar búa í Noregi og er hlut­fall þeirra barna sem norska barna­verndin tekur frá íslenskum for­eldrum meira en tífalt hærra en á Íslandi.

For­ræð­is­svipt­ingar íslenskra for­eldra í Noregi voru gerðar að und­an­gengnum úrskurðum sem norska barna­verndin krafð­ist. Árið 2014 voru fjögur íslensk börn tekin af for­eldrum sínum og komið fyrir á norskum fóst­ur­heim­ilum og er því um að ræða 11 börn á tveimur árum, sam­kvæmt tölum sem Stundin hefur fengið afhendar frá æðsta yfir­manni norsku barna­vernd­ar­innar, Kristin U. Steinrem.

Á sama tíma­bili voru 35 börn sett í fóstur á Íslandi. Í Noregi búa rúm­lega níu þús­und Íslend­ingar, en á Íslandi bjuggu á tíma­bil­inu 325 til 332 þús­und manns. Þess ber að geta að fjölda barna á Íslandi er ekki skipt eftir þjóð­erni í töl­unum eins og í Noregi. Þrátt fyrir það er sam­an­burð­ur­inn slá­andi. 11,5 sinnum lík­legra er að íslenskt for­eldri sé svipt for­ræði yfir barni sínu sam­kvæmt kröfu barna­verndar í Noregi en á Íslandi.

Ekkert formlegt samstarf

Stundin hefur á und­an­förnum vikum reynt að ná tali af norska ráð­herr­anum Solveig Horne vegna norsku barna­vernd­ar­innar og mál þeirra íslenska barna sem nú eru fyrir dóm­stólum en þau eru fleiri en eitt og fleiri en tvö. Illa hefur þó gengið að ná tali af Solveig Horne sem síð­ast baðst undan við­tali fyrir mán­uði síðan. Þeim skila­boðum kom ráð­herr­ann á fram­færi við blaða­mann Stund­ar­innar í gegnum ráðu­neyt­is­stjóra sinn. Sá sagði yfir­mann norsku barna­vernda­stof­unnar geta svarað umræddum spurn­ingum. Sú heitir Kristin U. Steinrem og Stund­inni hefur nú borist svör frá henni.

Þar kemur meðal ann­ars fram að ekk­ert form­legt sam­starf er á milli þess­ara frænd­þjóða, Íslands og Noregs, þegar það kemur að barna­vernd­ar­málum. Ef norsk yfir­völd fá beiðni eða ósk frá Íslandi eða öðrum þjóðum er við kemur barna­vernd­ar­málum þá hlýtur hún eðli­legan far­veg, sé metin af norsku barna­vernd­inni og hún sam­þykkt eða hafnað í sam­hengi við norsk barna­vernd­ar­lög.

Örlög Eyjólfs?
Örlög Eyjólfs? Ekki er vitað hver örlög hins fimm ára gamla Eyjólfs verða en von­ast er eftir því að hann fái að alast upp á Íslandi.

Leitað að heimili fyrir Eyjólf

Blaða­maður greindi Steinrem frá mót­mælum og sam­stöðu­fundi sem var haldin fyrir framan Alþingi á dög­unum vegna hins fimm ára gamla Eyjólfs. Stundin hefur á und­an­förnum mán­uðum ítar­lega fjallað um mál hans og var það kveikjan að fyr­ir­spurn­inni til norskra yfir­valda. Enn er ekki vitað hvaða örlög bíða Eyjólfs en það síð­asta sem aðstand­endur hans fengu að heyra var að hann yrði ekki fluttur til Noregs. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur illa gengið að semja við Norðmenn um að fá að finna fóst­ur­heim­ili fyrir Eyjólf á Íslandi þar sem íslensk yfir­völd hafi ekki að verið aðilar að samn­ingi sem var gerður í Haag árið 1966 og snýr að sam­vinnu landa í málum sem þessum. Steinrem minn­ist á það þegar spurt er um mál Eyjólfs.

„Við getum ekki tjáð okkur um ein­stök mál sem snerta börn þar sem við erum bundin trún­aði. En svona almennt þá gefur Haag-samn­ing­ur­inn aðild­ar­ríkjum grund­völl til sam­vinnu í barna­vernd­ar­málum.  Þannig skap­ast tæki­færi til þess að fóstra börn hjá öðrum aðild­ar­ríkjum. Ísland hefur ekki að fullu gengið að þessum Haag-samn­ing frá árinu 1996. Ef Ísland myndi hins vegar gera það þá væru slík fóstur­úr­ræði mögu­leiki.“

18 börn á 7 árum

Svo því sé haldið til haga þá er ekki um að ræða sama Haag-samn­ing og var dæmt eftir þegar for­sjá norsku barna­vernd­ar­innar var stað­fest fyrir íslenskum dóm­stólum. Um er að ræða annan samn­ing sem snýr sér­stak­lega að sam­vinnu aðild­ar­ríkja. Sá sem dæmt var eftir fyrir nokkrum vikum síðan snéri að brott­námi barna. Margir samn­ingar eru und­ir­rit­aðir í Haag og eru þeir flestir kall­aðir Haag-samn­ingar án þess þó að fjalla um það sama eða vera tengdir á ein­hvern hátt. Slíkt leiðir iðul­lega til mis­skiln­ings. Óskað hefur verið eftir upp­lýs­ingum frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu af hverju Ísland er ekki aðili að umræddum Haag-samn­ing sem Steinrem minn­ist á.

En hversu mörg íslensk börn hafa verið tekin frá fjöl­skyldum sínum og komið fyrir í fóstri í Noregi? 

„Frá árinu 2008 til 2015 hefur 18 íslenskum börnum verið komið fyrir í fóstri sam­kvæmt úrskurði. Árið 2015 voru það sjö og árið 2014 voru það fjögur. Samkvæmt reglum um trúnað og nafn­leynd getum við ekki gefið þér upp nákvæma tölu fyrir hin árin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár