Fjölskyldu Eyjólfs sagt að ræða ekki við fjölmiðla ef þau vilja farsæla lausn

Norska barna­verndin færði fjöl­skyldu hins fimm ára gamla Eyjólfs þau skila­boð að þau ættu ekki að tala meira við fjöl­miðla ef það ætti að vera mögu­leiki á því að finna honum fóst­ur­heim­ili á Íslandi. 13 dagar eru þar til Eyjólfur verður fluttur til Noregs.

Fjölskyldu Eyjólfs sagt að ræða ekki við fjölmiðla ef þau vilja farsæla lausn
13 dagar til stefnu Patt­staða er komin í mál Eyjólfs litla sem norska barna­verndin vill fá í sína vörslu.

Allir fjöl­skyldu­með­limir hins fimm ára gamla Eyjólfs, bæði úr föður- og móð­ur­fjöl­skyldu hans, hafa frá og með gær­kvöld­inu tekið þá ákvörðun að hætta að ræða við fjöl­miðla. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er það gert af ótta við gagn­að­gerðir norsku barna­vernd­ar­innar, en fjöl­skyldan fékk þau skila­boð í gær að hún ætti ekki að tala meira við fjöl­miðla á Íslandi um mál Eyjólfs ef það ætti að vera mögu­leiki á því að finna honum fóst­ur­heim­ili á Íslandi.

13 dagar eru þar til Eyjólfur verður fluttur til Noregs og allt útlit fyrir að kraf­ist verði aðfarar lög­reglu á heim­ili móð­ur­fjöl­skyldu Eyjólfs nú í byrjun des­em­ber.

„Þetta eru ekk­ert nema hót­anir, en hvað eigum við að gera? Nú þorum við ekki að tjá okkur um þetta mál lengur því við viljum ekki missa Eyjólf til Noregs. Pældu í því hvað það er ljótt. Fyrst áttu krakk­arnir að afsala sér öllum rétti til þess að sækj­ast eftir for­sjá drengs­ins og núna er búið að múl­binda alla fjöl­skyld­una með hót­unum um að ef við segjum eitt­hvað þá bara taka þeir hann til Noregs,“ segir fjöl­skyldu­með­limur Eyjólfs litla sem vildi ekki koma fram undir nafni. Rætt var um að það „borg­aði sig ekki að gera Norð­menn­ina reiða.“

Stillt upp við vegg

Málið er í algjörri patt­stöðu. Beðið sé eftir við­brögðum for­eldra Eyjólfs við þeim „kostum í stöð­unni“ sem kynntir voru fyrir þeim á fundi Barna­vernd­ar­stofu á föstu­dag­inn. Líkt og Stundin hefur greint frá þá var upp­lifun fjöl­skyldu Eyjólfs ekki sú sama og upp­lifun Barna­vernd­ar­stofu af umræddum fundi. Fjöl­skyldu Eyjólfs fannst eins og sér væri stillt upp við vegg með ósann­gjörnum skil­yrðum en Barna­vernd­ar­stofa sagði að ein­ungis hefðu verið ræddir kostir í stöð­unni en engin skil­yrði.

Umræddir kostir voru, líkt og fjöl­skyldu­með­limur Eyjólfs bendir á, að móðir Eyjólfs geri sér­staka dómsátt við norsku barna­vernd­ina í dóms­máli sem hún höfð­aði á hendur stofn­un­inni eftir að hafa verið svipt for­ræði. Það mál er enn í gangi í Noregi en norska barna­verndin vill það út af borð­inu. Þá þarf faðir Eyjólfs einnig að stað­festa skrif­lega að hann muni ekki sækj­ast eftir for­sjá drengs­ins með aðstoð dóm­stóla þar­lendis. Ef þau gera það þá mun norska barna­verndin skuld­binda sig til þess að finna fóst­ur­heim­ili handa drengnum á Íslandi í sam­starfi við íslensk barna­vernd­ar­yf­ir­völd. Eyjólfur yrði þó aldei vistaður hjá fjöl­skyldu­með­limum, hvorki hjá föður- né móð­ur­fjöl­skyldu hans.

Binda vonir við Bjarna Benediktsson

„Þá höfum við engin svör fengið af hverju faðir drengs­ins fær ekki tæki­færi á að ala son sinn upp. Hann er í sömu stöðu og fjöl­margir ein­stæðir feður sem ekki voru skráðir í sam­búð eða giftir þegar börn þeirra fædd­ust. Þegar það ger­ist þá fær móð­ir­inn fulla for­sjá strax. Þarna er vegið að rétt­indum föður Eyjólfs ein­fald­lega vegna þess að við erum með bilað kerfi sem útdeilir for­sjá án þess að taka til skoð­unar aðkomu feðra. Þá er líka skrítið að gefa ekki þess­ari ungu móður tæki­færi. Hún hefur greini­lega átt mjög erf­iða æsku og fór snemma út af braut­inni en hvers á hún að gjalda? Á fólk ekki skilið annað tæki­færi? Af hverju er þetta ekki sett upp þannig að hún yrði áfram undir vök­ulu auga barna­vernd­ar­yf­ir­valda, skilar þvagprufum og sýnir í verki að hún geti staðið undir þeirri ábyrgð að ala upp barn og á meðan er sonur hennar í tíma­bund­inni vistun. Af hverju fær hún ekki það tæki­færi?“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa fjöl­skyldu­með­limir Eyjólfs reynt að ná sam­bandi við sitj­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son, en án árang­urs.

Orð Bjarna Bene­dikts­sonar, sitj­andi fjár­mála- og inn­an­rík­is­ráð­herra, í útvarps­við­tali hjá Harma­geddon hafi gefið þeim von en síðan þá hafi þau ekk­ert heyrt í Bjarna eða öðrum í rík­i­s­tjórn­inni. Í við­tal­inu sagð­ist Bjarni meðal ann­ars að hann væri að fylgj­ast mjög vel með mál­inu en bíða þyrfti dóms Hæsta­réttar. Þeir fjöl­skyldu­með­limir sem Stundin ræddi við sögðu að nú væri komið dálítið síðan að dómur féll en þau hafi ekk­ert heyrt. Þau hafi reynt að ná sam­band við Bjarna, bæði í gegnum fjár­mála­ráðu­neytið og inn­an­rík­is­ráðu­neytið en ekki haft erindi sem erf­iði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár