Varaþingmaður Pírata vill einkarekstur í mennta- og heilbrigðismálum og segir hið opinbera „glatað“

Álf­heiður Eymars­dóttir telur einu leið­ina til að bæta kjör kenn­ara og heil­brigð­is­starfs­fólks vera að auka einka­rekstur og mynda sam­keppni um starfs­fólk. „Hið opin­bera er ekki best í rekstri eða að hugsa vel um starfs­fólk.“

Varaþingmaður Pírata vill einkarekstur í mennta- og heilbrigðismálum og segir hið opinbera „glatað“
Álf­heiður Eymars­dóttir Vara­þing­mað­ur­inn hefur reglu­lega tekið sæti á Alþingi fyrir Pírata. Mynd: Alþingi

Álf­heiður Eymars­dóttir, vara­þing­maður Pírata, segir einu lausn­ina til að bæta kjör og starfs­um­hverfi í mennta- og heil­brigð­is­kerf­inu vera auk­inn einka­rekstur. „Hið opin­bera sér sér ekki fært um að gera þetta,“ skrifar hún á Facebook.

Álf­heiður er stjórn­mála­fræð­ingur og vara­þing­maður Pírata á Suð­ur­landi fyrir Smára McCarthy. Hún hefur tekið sæti á þingi fyrir flokk­inn í sex skipti síð­ustu tvö ár. „Eina lausnin sem ég sé til að bæta kjör og starfs­um­hverfi kenn­ara, leik­skóla­kenn­ara og heil­brigð­is­starfs­fólks er að hvetja til fjöl­breytt­ari rekst­urs,“ skrifar hún. „Hjalla­stefnu­skólar, Waldorfskólar, einka­skólar, for­eldra­reknir skólar, skólar fyrir börn með sér­þarfir (ADHD skól­inn td) alls­konar skólar og leik­skólar -og svipað í heil­bigð­is­þjón­ust­unni. Hverfarekin heilsu­gæsla hljómar dásam­lega. Sam­vinnu­fé­lög, góð­gerða­fé­lög, einka­hluta­fé­lög.“

Hún segir að með þessu fyr­ir­komu­lagi verði fjár­munir látnir fylgja ein­stak­lingum. „Þá mynd­ast eðli­leg sam­keppni um þetta frá­bæra starfs­fólk og ein­hver von um eðli­leg kjör og mann­eskju­legri starfs­að­stæður,“ skrifar Álf­heiður. „Hjalla­stefnan getur til að mynda boðið upp á sveigj­an­legan vinnu­tíma starfs­fólks í þeirra leik­skólum og skólum. Og sveigj­an­legan sum­ar­leyf­is­tíma fyrir börn á leik­skólum. Hið opin­bera sér sér ekki fært um að gera þetta. Á stöku stað er hægt að velja um sum­ar­leyf­is­tíma en yfir það heila er þetta mjög stíft og kassa­laga.“

„Þá mynd­ast eðli­leg sam­keppni um þetta frá­bæra starfs­fólk og ein­hver von um eðli­leg kjör og mann­eskju­legri starfs­að­stæður“

Loks segir hún þetta munu hafa áhrif á biðlista og bið­tíma. „Því það verður að segj­ast eins og er. Hið opin­bera er ekki best (les­ist: glatað, oft ófært um) í rekstri eða að hugsa vel um starfs­fólk.“

Í stefnu Pírata kemur fram að upp­færa þurfi mennta­kerfið í heild sinni. „Sam­fé­lagið og mennta­kerfið þurfa að vera sam­stíga frá leik­skóla til háskóla,“ segir í stefn­unni. Fyrir kosn­ingar 2017 höfðu Píratar einnig stefnu um gjald­frjálsa heil­brigð­is­þjón­ustu. „Stefnt skal að því að heil­brigð­is­þjón­usta og nauð­syn­leg lyfja­kaup verði gjald­frjáls. Aðbún­aður og kjör heil­brigð­is­starfs­fólks verði bætt veru­lega og fjársvelti heil­brigð­is­kerf­is­ins hætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár