Ástin í franskri lauksúpu

Daníel E. Arn­ars­son seg­ist hafa dottið niður á bestu slök­un­ar­að­ferð í heim­inum og hún sé að elda og baka.

Þegar ég fatt­aði að besta slök­un­ar­að­ferð í heimi er að elda og baka, og ekki nóg með að það sé slök­un­ar­að­ferð, heldur er það mjög gef­andi af því að ég er ekki bara að gefa mér það heldur er ég líka að gefa öðru fólki, til dæmis með því að smakka. Þá fatt­aði ég að þetta er ein­hvers konar frum­þörf, að gefa fólki að borða. Þá er ég að gleðja það, með minni vinnu. Mér fannst það mjög magnað.

Sér­stak­lega var það þegar ég í fyrsta skipti eld­aði franska lauk­súpu, og frönsk lauk­súpa á sér langa sögu í mat­ar­gerð­ar­hefð. Ég eld­aði hana, tók mér mik­inn tíma í það, skar mik­inn lauk, grét, skar mig, blóð og gaf allt í þessa súpu. Og svo gaf ég hana ein­hverjum. Þau borð­uðu, það kom bros, ég var ánægður og þau voru ánægð. Þá fatt­aði ég líka að í raun og veru getum við gefið á svo marga vegu í líf­inu. Við þurfum ekki bara að vera góð við hvert annað með því að faðma hvert annað. Við getum líka verið góð við hvert annað með því að skilja hvert annað, með því að hrósa hvert öðru og kannski fyrst og fremst að bera virð­ingu fyrir hvert öðru. Það er það sem mat­ar­gerð gerir. Ég er að bera virð­ingu fyrir sjálfum mér, hrá­efn­inu, öllum þeim sem komu að því að rækta lauk­inn, rækta hveitið, mjólka kúna fyrir smjörið og svo soðið. Ég er líka að bera virð­ingu fyrir naut­inu sem í raun gaf líf sitt fyrir súp­una en ég er byrj­aður að nota græn­met­is­soð núna. Þarna er svo mikið þakk­læti, svo mikil gjöf, svo mikið hrós, svo mikil ást og vænt­um­þykja í mjög ein­földu atriði eins og að búa til lauk­súpu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár