Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar enn

39 pró­sent aðspurðra segj­ast styðja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sam­kvæmt könnun MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram stærsti flokkur lands­ins með 19 pró­sent.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar enn
Formenn stjórn­ar­flokk­anna Rík­is­stjórnin lækkar í áliti sam­kvæmt nýrri könnun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist 19,1 pró­sent í nýrri könnun MMR og helst óbreytt frá síð­ustu mæl­ingu í júlí. Sam­fylk­ingin mælist með 16,8 pró­senta fylgi og hefur hækkað um fjögur pró­sentu­stig á milli mæl­inga.

Samkvæmt könn­un­inni heldur fylgi rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks áfram að dvína. Mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 38,8 pró­sent, sam­an­borið við 40,3 pró­sent í síð­ustu könnun.

Mið­flokk­ur­inn mælist þriðji stærsti flokkur lands­ins með 13 pró­senta fylgi. Vinstri græn mæl­ast með 11,5 pró­senta fylgi, en flokk­ur­inn mæld­ist með 12,5 pró­sent í síð­ustu könnun. Það er hins vegar fylgi Pírata sem dregst mest saman á milli mæl­inga, er nú 11,3 pró­sent en var 14,1 pró­sent áður. Mælist flokk­ur­inn nú fimmti vin­sæl­asti stjórn­mála­flokkur lands­ins, en hann var í öðru sæti í júlí.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,4 pró­senta fylgi, en var með 8,3 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Við­reisnar mælist 9,3 pró­sent, en fylgi Flokks fólks­ins dregst saman á milli mæl­inga. Mældist flokk­ur­inn með 6,8 pró­sent í júlí, en 4,1 pró­sent nú. Loks mælist Sós­í­alista­flokkur Íslands með 2,9 pró­senta fylgi. 990 manns í spurn­inga­vagni MMR voru spurðir og var könn­unin fram­kvæmd 12. til 19. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár