„Vona að Sjálfstæðisflokkurinn taki upp sjálfstæðisstefnuna í þessu máli“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son gagn­rýnir Bjarna Bene­dikts­son harð­lega fyrir að hafa ekki boðað neitt nýtt í orku­pakka­mál­inu á opnum fundi í Valhöll í dag.

„Vona að Sjálfstæðisflokkurinn taki upp sjálfstæðisstefnuna í þessu máli“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hvetur Sjálf­stæð­is­menn til að taka upp „sjálf­stæð­is­stefn­una“ í orku­pakka­mál­inu og standa vörð um full­veldið.

Þetta kemur fram í hug­leið­ingu sem Sig­mundur birtir á Facebook-síðu sinni.

Tilefnið er fundur sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hélt um þriðja orku­pakk­ann og fleira í Valhöll fyrr í dag.

„Maður hefði haldið að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sá ágæti maður, myndi boða eitt­hvað nýtt í orku­pakka­mál­inu fyrst blásið var til opins fundar í Valhöll,“ skrifar Sig­mundur.

„Í stað­inn flutti hann gömlu lín­una um að orku­pakk­inn hafi þegar verið orð­inn til þegar ég var í rík­is­stjórn. Jú pakk­inn hafði lengi verið til en samt inn­leiddum við hann ekki. Auk þess heyrði málið ekki undir mig, ekki frekar en fjár­mála­ráð­herra á þeim tíma (hver sem það nú var). Málið heyrði hins vegar undir ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins en ekki ætla ég að gagn­rýna þann góða ráð­herra enda inn­leiddi hann ekki orku­pakk­ann.“

Eins og Stundin fjall­aði um í vor átti rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs frum­kvæði að því árið 2014 að reglur úr þriðja orku­pakk­anum voru inn­leiddar í íslensk lög án þess að þær hefðu verið sam­þykktar í sam­eig­in­legu EES-nefnd­inni og teknar upp í EES-samn­ing­inn. Sumum þótti þetta óþarfa óða­got og eðli­legra að bíða með inn­leið­ing­una en Sig­mundur var á meðal þeirra sem greiddu atkvæði með frum­varp­inu þann 28. maí 2015 – fyrsta laga­frum­varp­inu sem sam­þykkt var vegna inn­leið­ingar þriðja orku­pakk­ans. Um er að ræða 22. gr. til­skip­unar nr. 2009/72/EB um kerf­is­á­ætlun flutn­ings­fyr­ir­tækja.  „Mark­miðið með því ákvæði til­skip­un­ar­innar er að stuðla að betri teng­ingu innri mark­að­ar­ins þannig að raf­orku­þörf hans verði betur mætt með ásætt­an­legu afhend­ingar­ör­yggi,“ segir í grein­ar­gerð stjórn­ar­frum­varps­ins sem Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra lagði fram árið 2014 og Sig­mundur Davíð studdi. Með frum­varp­inu var lög­fest að gerð kerf­is­á­ætl­unar skyldi meðal ann­ars byggja á sviðs­myndum um þróun raf­orku­flutn­ings til ann­arra landa. Við þing­lega með­ferð máls­ins var lagt til að sú vísun yrði felld brott en Sig­mundur og tveir aðrir þing­menn sem nú til­heyra Mið­flokknum, þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Þor­steinn Sæmunds­son, greiddu atkvæði gegn þeirri til­lögu.  

Sig­mundur bendir á að á fund­inum í Valhöll í dag komu fram end­ur­teknar full­yrð­ingar um að inn­leið­ing þriðja orku­pakk­ans fæli ekki í sér fram­sal valds yfir orku­málum eða að það væri að minnsta kosti „afmarkað”.

„Á meðan ger­ist það í raun­heimum að ESB fer í mál við Belgíu fyrir að fram­fylgja ekki 3. orku­pakk­anum nógu vel. Hvað gerðu Belgar af sér? Þeir létu sér detta í hug að belgískir kjós­endur og full­trúar þeirra ættu áfram að hafa eitt­hvað um orku­mál að segja þrátt fyrir inn­leið­ing­una.“

Rétt er að taka fram að Belgía er aðild­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu ólíkt Íslandi. Segir þó Sig­mundur að þarna sé komið fram raun­dæmi um það sem Arnar Þór Jónsson hér­aðs­dóm­ari og fleiri hafi varað við. „Ég vona að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn taki upp sjálf­stæð­is­stefn­una í þessu máli og öðrum full­veld­is­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár