Ríkisstjórnin sammála um að draga úr eignarhaldi á bönkum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra úti­lokar ekki sam­ein­ingu Arion banka og Íslands­banka, en segir að flókið væri ef ríkið ætti eign­ar­hlut í banka með einka­að­ilum.

Ríkisstjórnin sammála um að draga úr eignarhaldi á bönkum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vill að ríkið dragi úr umsvifum sínum á fjár­mála­mark­aði. Hún telur hug­myndir um sam­ein­ingu Arion banka og Íslands­banka mögu­lega stang­ast á við sam­keppn­is­sjón­ar­mið.

„Við úti­lokum það ekki en höfum að sama skapi ekki skoðað kost­inn sér­stak­lega,“ segir hún í við­tali við Morg­un­blaðið í dag. „Þetta eru hug­myndir sem komið hafa upp og eru því ekki nýtil­komnar. Það hefur verið bent á að hægt sé að ná fram auk­inni hag­ræð­ingu í banka­kerf­inu með sam­ein­ingum.“

Morg­un­blaðið hefur að und­an­förnu fjallað um mögu­leik­ann á að auka megi verð­mæti eign­ar­hluta rík­is­ins í bönk­unum tveimur með 40% hlut í sam­ein­uðum banka. Katrín segir hins vegar að erfitt geti reynst að sam­eina banka sem eru bæði í eigu rík­is­ins og einka­að­ila.

„Það þyrfti að greina slíkt mjög vand­lega enda getur það verið afar vanda­samt fyrir ríkið að vera með­eig­andi í áhættu­sömum fjár­mála­rekstri. Þess utan eykur það mjög á flækju­stigið að vera með bæði einka­að­ila og ríkið í rekstri á einum og sama bank­anum,“ segir Katrín.

Þá telur hún mögu­legt að sam­ein­ing Íslands­banka og Arion banka stang­ist á við sam­keppn­is­sjón­ar­mið. Hags­munir lands­manna verði hafðir að leið­ar­ljósi við ákvarð­anir, en til dæmis komi til greina að heim­ila bönk­unum að vinna saman að inn­viða­þróun að und­an­gengnu sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

„Rík­is­stjórnin er sam­mála um að draga verði úr eign­ar­haldi á bönk­unum,“ segir Katrín. „Að okkar mati er mik­il­væg­ast að tryggja að kostn­aður og áhætta almenn­ings verði lág­mörkuð. Þetta er ákveðin áhætta fyrir ríkið þó að ekk­ert bendi til þess núna að eign­ar­hlutur rík­is­ins í bönk­unum rýrni. Það er samt ekki að ástæðu­lausu sem við teljum skyn­sam­legt fyrir ríkið að vera ekki eins umsvifa­mikið á banka­mark­aði og raun ber vitni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálamarkaðurinn á Íslandi

Óljóst hvort samningur Ríkiskaupa við Rapyd verði framlengdur
FréttirFjármálamarkaðurinn á Íslandi

Óljóst hvort samn­ingur Rík­is­kaupa við Rapyd verði fram­lengdur

Ramma­samn­ingur um færslu­hirð­ingu ísra­elska fjár­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd fyrir A-hluta stofn­anir rennur út 19. febr­úar næst­kom­andi. Sara Lind Guð­bergs­dóttir, for­stjóri Rík­is­kaupa, segir að ekki sé búið að ákveða hvort samn­ing­ur­inn verði fram­lengdur en sam­kvæmt skil­málum er Rík­is­kaupum heim­ilt að fram­lengja samn­ing­inn um eitt ár í við­bót.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár