ASÍ: Þjónustugjöld bankanna hækka og samkeppni lítil

Þjón­ustu­gjöld bank­anna hafa hækkað vel umfram þróun verð­lags, þrátt fyrir lokun úti­búa og raf­ræna þjón­ustu. Mark­að­ur­inn ein­kenn­ist af fákeppni, að mati verð­lags­eft­ir­lits ASÍ.

ASÍ: Þjónustugjöld bankanna hækka og samkeppni lítil
Arion banki Arion er með lang­hæsta afgreiðslu­gjaldið, sam­kvæmt könnun ASÍ.

Þjón­ustu­gjöld bank­anna hafa hækkað langt umfram verð­lag, þrátt fyrir hag­ræð­ingu bank­anna í formi lok­unar úti­búa og auk­innar raf­rænar þjón­ustu. Þetta kemur fram í úttekt verð­lags­eft­ir­lits ASÍ.

„Dýrt er að sækja sér þjón­ustu í útibú eða í síma­ver en gjöld tengd slíkri þjón­ustu hafa hækkað mikið á síð­ustu árum auk þess sem ýmsir þjón­ustu­liðir hafa bæst við sem ekki voru til áður,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ. „Þá rukka bank­arnir við­skipta­vini enn fyrir ýmsan kostnað sem á ekki við í dag eins og FIT kostnað. Gjald­skrár bank­anna eru þar að auki afar flóknar og ógagn­sæjar sem gerir neyt­endum erfitt fyrir að átta sig á kostn­aði eða gera sam­an­burð milli banka.“

Þá kemur fram að gjald­liðir bank­anna nemi hund­ruðum og erfitt sé að bera þá saman á milli banka þar sem þeir heiti mis­mun­andi nöfnum.

„Bank­arnir eru farnir að rukka hærri gjöld fyrir þjón­ustu sem krefst aðstoðar þjón­ustu­full­trúa, hvort sem það er í gegnum síma eða í úti­búi á meðan þjón­ustan kostar mun minna eða ekk­ert ef fólk fram­kvæmir aðgerð­irnar sjálft,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Þannig hefur Arion banki tekið upp fast afgreiðslu­gjald upp á 195 kr. fyrir aðgerðir sem fram­kvæmdar eru af þjón­ustu­full­trúa en ýmsir liðir kosta þó tölu­vert meira. Mestur er verð­mun­ur­inn á afgreiðslu­gjaldi vegna inn­lagnar reiðu­fjár í annan banka sem kostar 495 kr. hjá Arion banka, 375 kr. hjá Íslands­banka og 100 kr. hjá Lands­bank­anum en það gerir 375% verð­mun á hæsta verð­inu hjá Arion og því lægsta hjá Lands­bank­anum.“

Helmingi færri útibú og 1.500 færri starfsmenn

Í til­kynn­ingu ASÍ kemur fram að úti­búum bank­anna hafi fækkað úr 146 í 74 og starfs­mönnum fækkað úr 4326 í 2850, eða um tæp­lega 1500 manns. Á síð­ustu þremur árum hafi banka­kostn­aður hins vegar hækkað um 11% og kostn­aður við greiðslu­kort um 19%. Vísitala neyslu­verðs á sama tíma hækk­aði um 7% og verð­bólgu því ekki hægt að kenna um alla hækk­un­ina.

„Það vekur því nokkra furðu að verð­hækk­anir þeirra séu jafn­miklar og raun ber vitni,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Þrátt fyrir að ein­hver munur sé á verð­lagn­ingu bank­anna virð­ist lítil sam­keppni vera í verð­lagn­ingu milli þeirra. Ef einn banki hækkar gjöld virð­ist næsti fylgja á eftir með svip­aðar verð­hækk­anir. Það er því ekki að sjá að bank­arnir reyni að keppa um við­skipta­vini í verði og ein­kenn­ist mark­að­ur­inn af fákeppni.“

Fram kom í til­kynn­ingu í síð­ustu viku að þýski net­bank­inn N26 hyggð­ist hefja starf­semi hér á landi, en banka­reikn­ingar N26 eru í evrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálamarkaðurinn á Íslandi

Óljóst hvort samningur Ríkiskaupa við Rapyd verði framlengdur
FréttirFjármálamarkaðurinn á Íslandi

Óljóst hvort samn­ingur Rík­is­kaupa við Rapyd verði fram­lengdur

Ramma­samn­ingur um færslu­hirð­ingu ísra­elska fjár­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd fyrir A-hluta stofn­anir rennur út 19. febr­úar næst­kom­andi. Sara Lind Guð­bergs­dóttir, for­stjóri Rík­is­kaupa, segir að ekki sé búið að ákveða hvort samn­ing­ur­inn verði fram­lengdur en sam­kvæmt skil­málum er Rík­is­kaupum heim­ilt að fram­lengja samn­ing­inn um eitt ár í við­bót.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár