Gefur vonir um lækkun vaxta

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segir verð­bólgu­vænt­ingar hafa lækkað í kjöl­far kjara­samn­inga. Ákvæði í kjara­samn­ingum um að þeir losni ef vextir fara yfir mörk geti flækt fram­kvæmd pen­inga­stefn­unnar.

Gefur vonir um lækkun vaxta

Nýsam­þykktir kjara­samn­ingar hafa valdið lækkun verð­bólgu­vænt­inga sem gefur svig­rúm til lækk­unar vaxta Seðla­bank­ans. Þetta skrifar Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

„Aðilar kjara­samn­ing­anna hafa vænt­ingar um að þeir skapi for­sendur fyrir lækkun vaxta,“ skrifar Már. „Eins og ég sagði í við­tölum fyrr í þessum mán­uði eru tölu­verðar líkur á að þessar vænt­ingar muni ganga eftir á næst­unni. Ákvæði í kjara­samn­ingum um að þeir geti losnað ef vextir eru yfir ákveðnum mörkum haustið 2020 eiga ekki og munu ekki breyta því þótt þau geti eitt­hvað flækt fram­kvæmd pen­inga­stefn­unnar í fram­tíð­inni. Það bíður betri tíma að ræða það frekar.“

Í grein­inni segir Már að við­snún­ingur hafi orðið í þjóð­ar­bú­inu að und­an­förnu. Hægt hafi á hag­vexti, við­skipta­kjör versnað og spenna slaknað. Að hluta til hafi það verið vel­komin þróun, þar sem ofvöxtur und­an­far­inna ára hafi ekki getað haldið áfram. Aðlögun eftir slíkt geti endað með óstöð­ug­leika, verð­bólgu­skoti og atvinnu­leysi, sér í lagi ef áföll sem rýra útflutn­ings­tekj­urnar bæt­ast við.

„Slík áföll hafa orðið á þessu ári með loðnu­bresti, falli flug­fé­lags­ins Wow air og mik­illi hækkun olíu­verðs að und­an­förnu,“ skrifar Már. „Neikvæð áhrif þeirra á hag­vöxt og atvinnu eru í ein­hverjum mæli þegar komin fram en munu að lík­indum aukast á næstu mán­uðum.“

Hann bætir því þó við að þjóð­ar­búið sé vel í stakk búið til að takast á við aðstæður. Rík­is­sjóður og bank­arnir standi vel, erlend staða þjóð­ar­bús­ins sé góð, skuldir heim­ila og fyr­ir­tækja lægri en áður og gjald­eyr­is­forði nógu stór til að milda geng­is­sveiflur. Pen­inga­stefnan hafi hins vegar ekki haft mikið svig­rúm til að takast á við nið­ur­sveifl­una í haust þar sem verð­bólgu­vænt­ingar hafi verið háar vegna óvissu um nið­ur­stöðu kjara­samn­inga.

„Þetta breytt­ist nán­ast yfir nótt þegar kjara­samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði náð­ust snemma í þessum mán­uði á nótum sem sam­rýmd­ust mun betur verð­bólgu­mark­miði en ótt­ast hafði verið,“ skrifar Már.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár