Hækkun lægstu launa ekki líkleg til að smitast út í verðlagið

Seðla­banka­stjóri segir að hækkun launa valdi minni verð­bólgu ef hún er bundin við þá tekju­lægstu. Reynslan sýni að það sé erfitt að hemja hækk­anir upp launa­stig­ann. Samtök atvinnu­lífs­ins, VR og Starfs­greina­sam­bandið eru sam­mála um áherslu á lægstu launin.

Hækkun lægstu launa ekki líkleg til að smitast út í verðlagið
Seðla­banka­stjóri og fjár­mála­ráð­herra Seðla­bank­inn beinir þeim skila­boðum til stjórn­valda að útgjöld í tengslum við kjara­samn­inga þurfi að vera til afmark­aðra hópa. Mynd: Pressphotos

Hækkanir lægstu launa leiða til minni verð­bólgu­á­hrifa ef þær smit­ast ekki upp launa­stig­ann og minni þörf verður á stýri­vaxta­hækk­unum en ella. Ef aðgerðir stjórn­valda til að greiða fyrir kjara­samn­ingum bein­ast að afmörk­uðum hópum styður það við sama mark­mið. Þetta segir Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Í des­em­ber losna 82 kjara­samn­ingar og 153 til við­bótar í febr­úar og mars 2019. Samn­ingar rúm­lega helm­ings starf­andi fólks á íslenskum vinnu­mark­aði eru þar undir. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa fundað með bæði VR og Starfs­greina­sam­band­inu og virð­ist sam­staða um að áherslan verði á lægstu launin hjá þeim félögum. Hætta sé þó á að hækkun lægstu launa smit­ist hlut­falls­lega upp launa­stig­ann þegar önnur félög semja. Stjórn­völd bíða þess að sjá heild­ar­mynd­ina áður en aðkoma þeirra til að greiða fyrir samn­ingum verður kynnt.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, sem Már gegnir for­mennsku í, hefur ítrekað bent á vilja sinn til að sporna gegn auk­inni verð­bólgu und­an­farin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár