Brugðið vegna framgöngu þingmannsins: „Ég veit hvernig mér líður, ekki hann“

„Ég leit­aði mér aðstoðar vegna þess að mér leið illa yfir vænd­inu,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona sem steig fram í kvöld­fréttum Stöðvar 2 síð­ustu helgi. Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, telur Stígamót hafa sann­fært hana um að hún sé fórn­ar­lamb. „Það hvernig hann lýsir atvikum er kol­rangt, enda veit hann ekk­ert um mína hagi,“ segir konan.

Brugðið vegna framgöngu þingmannsins: „Ég veit hvernig mér líður, ekki hann“
Konan steig fram í við­tali við Stöð 2 síð­ustu helgi og lýsti reynslu sinni. Mynd: Skjáskot af Stöð 2

Fyrr­ver­andi vænd­is­kona sem kom fram í við­tali á Stöð 2 síð­ustu helgi segir óskilj­an­legt að Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skuli leyfa sér að draga álykt­anir um til­finn­inga­líf hennar án þess að þekkja hana eða vita nokkurn skap­aðan hlut um aðstæður hennar. 

Brynjar var gestur í þætt­inum Harma­geddon í vik­unni og tjáði sig meðal ann­ars um vændi, lagaum­hverfið á Íslandi og sjón­varps­við­talið við kon­una. Konan tjáði sig nafn­laust við Stöð 2 til að vernda fjöl­skyldu sína, en hún er öryrki og ein­stæð móðir, varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi í æsku og leidd­ist út í vændi árið 2010 vegna sárrar fátæktar. 

Fram kom á Stöð 2 að konan hefði leitað sér aðstoðar hjá Stíga­mótum og Bjark­ar­hlíð og hætt í vændi árið 2016.

Brynjar tjáði sig um þetta í Harma­geddon og sagði meðal ann­ars: „Núna hefur hún áttað sig á því, þessi kona, mörgum árum seinna, að hún var fórn­ar­lamb ein­hverra karla af því hún er búin að vera í sam­bandi við Stígamót. Hún átt­aði sig greini­lega ekki á því þegar hún var að þessu. Hún aug­lýsti, hún reynir að fá kúnn­ann. Af hverju tekur hún ekki ábyrgð á því?“ 

Stundin hafði sam­band við kon­una og bar ummælin undir hana. „Mér finnst orðin vera niðr­andi. Lít­il­lækk­andi, bæði gagn­vart mér og Stíga­mótum. Mér finnst að hann mætti kynna sér mál betur áður en hann fabúlerar um þau á opin­berum vett­vangi,“ segir hún.

„Það hvernig hann lýsir atvikum er kol­rangt, enda veit hann ekk­ert um mína hagi. Ég leit­aði mér aðstoðar vegna þess að mér leið illa yfir vænd­inu, fór bæði til Bjark­ar­hlíðar og Stíga­móta. Þar losn­aði ég við skömm­ina og gat farið að tala um þetta og átta mig á því að vændið væri ekki mér að kenna. Ég upp­lifði mig sem þol­anda löngu áður en ég leit­aði mér aðstoðar.“

„Ég leit­aði mér aðstoðar vegna
þess að mér leið illa yfir vænd­inu“

Þá bætir hún við: „ Ég er orðin alveg nógu gömul til að átta mig á til­finn­ingum mínum. Mér finnst smætt­andi að jafn valda­mik­ill maður og Brynjar telji að ég og konur eins og ég getum ekki ákveðið sjálfar hvernig okkur líður. Ég veit hvernig mér líður, ekki hann.“

Erfitt að skila skömminni

Í umfjöllun Stöðvar 2 var rætt við Rögnu Björgu Guð­brands­dóttur, verk­efna­stjóra hjá Bjark­ar­hlíð, sem sagði að það tæki konur oft langan tíma að opna sig um vændi. „Oft eru konur sem kannski leita sér aðstoðar vegna van­líð­unar og ann­arra ein­kenna kyn­ferð­is­of­beldis en nefna ekki vændi fyrr en það er búið að byggja upp traust og þær eru búnar að vera í við­tölum eða með­ferðum í ein­hvern tíman,“ sagði hún. 

Konan segir að svo virð­ist sem mis­skiln­ings hafi gætt í Harma­geddon-við­tal­inu. „Í við­tal­inu var talað eins og það þyrfti að draga upp úr konum að þær hefðu stundað vændi. En ástæðan fyrir því að stundum tekur langan tíma fyrir kon­urnar að ræða þetta er að þær skamm­ast sín. Þær bera rosa­lega skömm og eru hræddar um að með­ferð­ar­að­il­inn dæmi þær, því auð­vitað er ekki hægt að treysta því að allt fag­fólk líti vændi sömu augum og til dæmis Stígamót. Hjá Stíga­mótum líður manni ekki eins og maður þurfi að skamm­ast sín en oft tekur langan tíma að vinna traustið. Það er þetta sem Ragna í Bjark­ar­hlíð sagði í við­tal­inu, en því var snúið á haus í Harma­geddon.“ 

„Ég vil spyrja á móti: Bera menn­irnir
sem nýttu sér neyð mína enga ábyrgð?“

Í við­tal­inu minnt­ist Brynjar tví­vegis á ábyrgð. „Hún aug­lýsti, hún reynir að fá kúnn­ann. Af hverju tekur hún ekki ábyrgð á því?“ sagði hann. Og svo: „Þú getur alveg rök­stutt að eng­inn kaupi vændi nema það sé í ein­hverri neyð. Hún er bara öðru­vísi neyð. Ég er bara að segja: Taktu bara ábyrgð á sjálfri þér.“

Konan sem steig fram á Stöð 2 seg­ist einmitt gera sitt allra besta til að axla ábyrgð. „Ég hef tekið ábyrgð með því að leita mér aðstoðar, vinna í mínum málum. Í dag er ég að fræða aðra um hætt­urnar í þessum heimi og þar er ég rétt að byrja. En ég vil spyrja á móti: Bera menn­irnir sem nýttu sér neyð mína enga ábyrgð? Þeir vissu allir að þeir voru að brjóta lög, hver einn og ein­asti.“

Vont ef ungir karlar í Sjálfstæðisflokknum líta upp til Brynjars

Hún bætir því við að það sé ábyrgð­ar­hluti fyrir mann eins og Brynjar Níelsson, lög­fræð­ing sem nú er alþing­is­maður og virð­ing­ar­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum, tali með þeim hætti sem hann gerir.

„Þú getur rétt ímyndað þér hvaða áhrif það hefur þegar for­ystu­maður eins og hann talar svona og ungir menn í flokknum líta upp til hans. Það virð­ast ýmsir í flokknum hans vera sam­mála honum, til dæmis ungur áber­andi maður í Sjálf­stæð­is­flokknum sem nýtti sér neyð mína fyrir nokkrum árum.“ 

Þarna vísar hún til sama aðila og hún vék að í við­tal­inu á Stöð 2 með þeim orðum að það væri „óþægi­legt að geta ekki horft á fréttir án þess að sjá einn af ger­endum sínum“. Konan seg­ist ekki hafa ætlað að gefa neitt upp um hver sá aðili væri, en eftir ummæli Brynjars Níels­sonar og þögn flokks­for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um þau geti hún ekki orða bund­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár