Segir Stígamót hafa sannfært vændiskonu um að hún sé fórnarlamb: „Taktu bara ábyrgð á sjálfri þér“

Brynjar Níelsson vil afnema lög um að vændis­kaup séu refsi­verð og seg­ist geta rök­stutt að eng­inn kaupi aðgang að lík­ama kvenna nema í neyð. „Menn eru mjög upp­teknir af því að konan ráði yfir lík­ama sínum, hún má meira að segja deyða fóstur.“

Segir Stígamót hafa sannfært vændiskonu um að hún sé fórnarlamb: „Taktu bara ábyrgð á sjálfri þér“
Segir Stígamót búa til fórn­ar­lömb Brynjar Níelsson segir að kona sem sagði frá því hvernig brotið hefði verið gegn henni þegar hún stund­aði vændi hafi ekki áttað sig á því fyrr en Stígamót héldu þeirri hug­mynd að henni. Mynd: Pressphotos

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er þeirrar skoð­unar að Stígamót sann­færi konur sem stundað hafa vændi um að brotið hafi verið gegn þeim. Fram að því að kon­urnar leiti til Stíga­móta sé upp­lifun þeirra önnur. Stígamót hafa boðið Brynjar í heim­sókn til að fræða hann um starf­semi sam­tak­anna, um afleið­ing­arnar sem kyn­ferð­is­of­beldi hefur fyrir brota­þola og til að koma í veg fyrir að hann fari með frek­ari rang­færslur.

Brynjar var gestur í þætt­unum Harma­geddon á útvarps­stöð­inni X-inu í gær­morgun þar sem talið barst meðal ann­ars að við­tali við íslenska konu í kvöld­fréttum Stöðvar 2 síð­ustu helgi. Konan hafði stundað vændi í Reykja­vík um nokk­urra ára skeið og greindi hún frá því að þekktir og valda­miklir menn væru meðal vændis­kaup­enda í Reykja­vík. Hún hafði leiðst út í vændi árið 2010 vegna mik­illar fátæktar en konan er öryrki og ein­stæð móðir. Hún leit­aði sér aðstoðar hjá Stíga­mótum og Bjark­ar­hlíð og gat hætt í vændi árið 2016. Konan sagð­ist vilja kæra menn­ina sem keyptu aðgang að lík­ama hennar en að slíkt hefði ekk­ert upp á sig þar sem brot af þessu tagi fyrn­ast á tveimur árum. Það finnst henni mjög miður þar sem fólk þurfi oft á tíðum lengri tíma en svo til að takast á við ítrekað og alvar­legt ofbeldi sem felist í vændi.

Kallar andstöðu við vændi „feðraveldishugmyndafræði“

Í við­tal­inu í Harma­geddon lýsti Brynjar því að hann teldi að þessar hug­myndir kon­unnar væru partur af póli­tískri hug­mynda­fræði sem hann kall­aði feðra­veld­is­hug­mynda­fræð­ina sem gengi út á að konur bæru enga ábyrgð á hegðun sinni. „Ég hef auð­vitað alltaf sagt að kyn­lífs­við­skipti sem eru auð­vitað á milli tveggja, að annar þeirra sé brot­legur en hinn ekki, það er hluti af þess­ari hug­mynda­fræði, feðra­veld­is­hug­mynda­fræði. Konan er hin kúg­aða og karl­inn er ger­andi. Þess vegna er þetta gert að kyn­ferð­is­broti, kaupin. Þetta er auð­vitað eins vit­laust lög­fræði­lega og allt ein­hvern veg­inn eins og hægt er að hafa það.“

„Þú getur alveg rök­stutt að eng­inn kaupi
vændi nema það sé í ein­hverri neyð“

Annar þátta­stjórn­enda, Frosti Logason, benti þá á að í lögum um að kaup á vændi séu ólög­leg og refsi­verð sé tekið til greina að eng­inn leið­ist út í vændi nema að við­kom­andi sé í mik­illi neyð. Brynjar greip þá fram í og sagði að að slíkt hið sama mætti segja um vændis­kaup­endur. „Þú getur alveg rök­stutt að eng­inn kaupi vændi nema það sé í ein­hverri neyð. Hún er bara öðru­vísi neyð. Ég er bara að segja: Taktu bara ábyrgð á sjálfri þér. Ef þú ert hins vegar neytt út í vændi, ein­hver neyðir þig út í slíkt, þá er það auð­vitað sjálf­stætt brot.“

Brynjar hélt svo áfram og beindi spjótum sínum að Stíga­mótum. Ekki var annað að skilja á honum en að hann teldi Stígamót hafa haldið þeirra skoðun að kon­unni að brotið hefði verið á henni; hún hefði ekki verið þeirrar skoð­unar fyrr en eftir að hafa þegið aðstoð sam­tak­anna. „Núna hefur hún áttað sig á því, þessi kona, mörgum árum seinna, að hún var fórn­ar­lamb ein­hverra karla af því hún er búin að vera í sam­bandi við Stígamót. Hún átt­aði sig greini­lega ekki á því þegar hún var að þessu. Hún aug­lýsti, hún reynir að fá kúnn­ann. Af hverju tekur hún ekki ábyrgð á því?“

Vill afnema lög sem banna vændiskaup

Spurður hvort hann væri þá ósam­mála þeirri skoðun kon­unnar að fyrn­ing­ar­frestur á brotum sem þessum væri of stuttur játti Brynjar því og sagði jafn­framt að hann vildi afnema bann við kaupum á vændi. „Ég hefði bara viljað taka þetta út. Þetta er nú eig­in­lega bara hérna í Skand­in­avíu. Þetta er svona byggt á þess­ari femínísku, feðra­veld­is­hug­myndum.“

Eitt og annað væri gert til að sporna gegn vænd­is­starf­semi en svo lengi sem konur fengju ekki að selja sig og karlar að kaupa aðgang að þeim, réði eng­inn yfir eigin lík­ama í raun. „Við gerum ýmis­legt. Þú getur ekki stofnað fyr­ir­tæki, ráðið til þín fólk til þess að selja þjón­ustu, þú mátt ekki vera að díla með þetta. En það er bara hluti af frelsi kon­unnar og að ráða yfir lík­ama sínum, og karl­inum líka, að stunda kyn­lífs­við­skipti eins og allt annað. Menn eru mjög upp­teknir af því að konan ráði yfir lík­ama sínum, hún má meira að segja deyða fóstur og núna sam­kvæmt nýju frum­varpi miklu lengur, á grund­velli þess að hún ráði yfir lík­ama sínum. Ef hún ræður yfir lík­ama sínum, af hverju má hún þá ekki stunda kyn­lífs­við­skipti? Svo segja menn: Jú, hún má það. Karlinn má bara ekki kaupa. Þá er eng­inn að ráða yfir lík­ama sínum.“

„Ef hún ræður yfir lík­ama sínum, af hverju
má hún þá ekki stunda kyn­lífs­við­skipti?“

Stígamót sendu í dag frá sér eft­ir­far­andi til­kynn­ingu á Facebook-síðu sam­tak­anna: „Starfs­fólk Stíga­móta vill bjóða Brynjari Níels­syni alþing­is­manni í opin­bera heim­sókn til okkar til þess að kynna sér starf­semi Stíga­móta. 
Við teljum afar mik­il­vægt að ráða­menn þjóð­ar­innar séu með­vit­aðir um þær afleið­ingar sem mæta brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis. Við teljum líka afar mik­il­vægt að ráða­menn kynni sér þau við­fangs­efni sem þeir ræða um á opin­berum vett­vangi þannig að ekki sé farið með rang­færslur.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár