Fyrrverandi vændiskona svarar Brynjari: „Að hafa kynlífsþörf er ekki neyð“

Eva Dís Þórð­ar­dóttir, sem sjálf leidd­ist út í vændi eftir kyn­ferð­is­of­beldi, segir ummæli Brynjars Níels­sonar um vændi og vænd­is­konur til marks um fáfræði og skiln­ings­leysi.

Fyrrverandi vændiskona svarar Brynjari: „Að hafa kynlífsþörf er ekki neyð“

Eva Dís Þórð­ar­dóttir, sem leidd­ist út í vændi eftir að hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi í æsku og hefur unnið sem leið­bein­andi hjá Stíga­mótum und­an­farin ár, segir að ummæli Brynjars Níels­sonar alþing­is­manns um vænd­is­konur séu til marks um fáfræði og full­komið skiln­ings­leysi á aðstæðum þeirra.

Brynjar var gestur í þætt­inum Harma­geddon fyrr í vik­unni og tjáði sig meðal ann­ars um sjón­varps­við­tal við fyrr­ver­andi vænd­is­konu sem birt­ist á Stöð 2 síð­ustu helgi. Sagði Brynjar „lög­fræði­lega vit­laust“ að líta á vændis­kaup sem brot eins og gert er í íslenskum lögum. „Þú getur alveg rök­stutt að eng­inn kaupi vændi nema það sé í ein­hverri neyð,“ sagði hann.

Evu finnst mál­flutn­ingur þing­manns­ins frá­leitur. „Það er fjar­stæðu­kennt að halda því fram að vændis­kaup­endur séu í neyð. Að hafa kyn­lífs­þörf er ekki neyð, það er alltaf hægt að leysa úr henni,“ segir hún í sam­tali við Stundina. „Ef þú finnur ekki konu sem sjálf­viljug sefur hjá þér og finnst það dásam­legt, þá get­urðu keypt þér kyn­lífs­dúkku eða ein­hvers konar leik­fang, já eða bara notað hönd­ina. Þú þarft ekki að borga aðila fyrir að fá að riðl­ast á honum.“ 

Í Harma­geddon-við­tal­inu hélt Brynjar því fram að Stígamót sann­færðu konur sem stundað hafa vændi um að brotið hefði verið gegn þeim. „Núna hefur hún áttað sig á því, þessi kona, mörgum árum seinna, að hún var fórn­ar­lamb ein­hverra karla af því hún er búin að vera í sam­bandi við Stígamót. Hún átt­aði sig greini­lega ekki á því þegar hún var að þessu. Hún aug­lýsti, hún reynir að fá kúnn­ann. Af hverju tekur hún ekki ábyrgð á því?“ sagði hann. 

Stundin bar ummælin undir Evu Dís. „Í fyrsta lagi þarf maður ekk­ert að aug­lýsa til þess að fá vændiskúnna. Þeir leita mann uppi og setja oft mik­inn þrýst­ing á konur. Ekki síst þær sem vilja hætta. Þær verða fyrir miklum þrýst­ingi frá mönnum sem hafa keypt þær og mönnum sem hafa heyrt að það sé hægt að kaupa þær.“

Tjáði sig um reynslu sínaEva Dís steig fram í við­tali á Stöð 2 árið 2016.

„Ég var heppin“

Þegar Eva leidd­ist sjálf út í vændi hafði hún orðið fyrir miklu kyn­ferð­is­of­beldi og ekki unnið úr þeirri lífs­reynslu.

„Það er ekki þannig að maður vakni einn dag­inn og hugsi: Jæja, nú ætla ég að byrja í vændi. Nei, þetta er ferli, ákveðin lífs­leið sem er búin að brjóta mann niður. Ég var brotin en hugs­aði: Þetta er fín leið til að geta veitt mér eitt­hvað aðeins auka­lega. Það var það sem ég sagði sjálfri mér: Þetta er bara kyn­líf, frá­bært, svo ger­ist kannski eitt­hvað óþægi­legt og maður gleymir því.

„Það er ekki þannig að maður
vakni einn dag­inn og hugsi: Jæja,
nú ætla ég að byrja í vændi“

En svo fara martrað­irnar að koma og þetta verður óbæri­legt. Ég var heppin, ég eign­að­ist kærasta sem hjálp­aði mér og ég gat hætt. En aðrar halda þessu áfram þótt martrað­irnar og trá­mað sé byrjað, því þær ein­fald­lega neyð­ast. Ég held ég hafi aldrei hitt vænd­is­konu sem hafði ekki áður orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi… eða bíddu, jú eina. En hún reyndar byrj­aði að selja sig 15 ára, meðan hún var ennþá barn.“

Eva segir ómögu­legt að stunda vændi án þess að reiða sig á sjálfs­blekk­ingu. „Þegar maður er í vændi þá verður maður að líta fram hjá því ofbeldi sem maður verður fyrir, ann­ars bara safn­ast þetta upp. Þú þarft að halda blekk­ing­unni gang­andi: að þetta sé bara allt í lagi og maður fái pen­ing, æðis­legt. En svo endar þetta með því að það er ekki hægt að blekkja sig lengur. Ekki þegar maður er kom­inn með verki í lík­amann og getur ekki sofið án þess að taka eitt­hvað inn.“ 

Konan er einmitt að taka ábyrgð

„Taktu bara ábyrgð á sjálfri þér,“ sagði Brynjar í Harma­geddon-við­tal­inu. Eva Dís segir að konan sem steig fram í við­tal­inu á Stöð 2 sé einmitt að gera það, að taka ábyrgð á sjálfri sér. 

„Hún er ekki bara að taka ábyrgð á sjálfri sér heldur líka að taka ábyrgð fyrir sam­fé­lagið allt
og reyna að gera eitt­hvað í þessum málum“

„Og hún er ekki bara að taka ábyrgð á sjálfri sér heldur líka að taka ábyrgð fyrir sam­fé­lagið allt og reyna að gera eitt­hvað í þessum málum. Þetta er hennar leið, að fræða fólk um reynslu sína. Það þarf ein­hverja vakn­ingu til að menn hætti að leita í vændi. Ef þeir gera sér grein fyrir því að þeir geta verið kærðir, þá hugsa þeir sig kannski tvisvar um. Menn eru ekki bara að sækj­ast í konur sem eru sjálfar að aug­lýsa sig, þeir eru að bjóða 14 ára stelpum á Instagram að hitta sig fyrir pen­ing.“

„Sársaukafullt“ að viðhorf Brynjars fái vængi

Eva segir dap­ur­legt að þing­maður leyfi sér að tala með þeim hætti sem Brynjar geri. Að sama skapi sé vont að stjórn­mála­flokkur hampi svona skoð­unum, veiti Brynjari braut­ar­gengi í próf­kjörum og leiði hann til ábyrgð­ar­starfa í íslensku sam­fé­lagi. 

„Mér finnst þetta sárs­auka­fullt,“ segir hún. „Ég hef heyrt í honum áður og mér finnst þetta óásætt­an­legt. Upp til hópa finnst mér reyndar mjög alvar­legt hvað þing­menn og ráða­menn virð­ast aftengdir venju­legu fólki. Það er eins og almenn­ingur og ráða­menn eigi nær ekk­ert sam­eig­in­legt þessa dag­ana, svo kannski er til of mik­ils ætl­ast að Brynjar Níelsson skilji hug­ar­heim vænd­is­konu.“

Hún segir mik­il­vægt að konur sem stunda vændi fái að halda í sjálfs­blekk­ing­una, öðru­vísi lifi þær ekki af. „En þær eru vel­komnar. Þeim er vel­komið að hafa sam­band við mig, Stígamót eða Bjark­ar­hlíð, bara þegar þær eru til­búnar. Og þær þurfa ekk­ert að vera hættar í vænd­inu til þess. Við hjálpum konum að díla við afleið­ing­arnar, trá­mað, sjálfs­morðs­hugs­anir og svo fram­vegis, líka þeim sem eru ennþá að selja sig. Við erum ekk­ert með for­dóma þótt þær séu enn að því. Við gerum bara það sem við getum til að hjálpa.“ 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár