Akureyri heiti bær en ekki kaupstaður

Tillaga liggur fyrir hjá bæj­ar­stjórn Akur­eyrar að nafni sveit­ar­fé­lags­ins verði breytt úr Akur­eyr­ar­kaup­staður í Akur­eyr­ar­bær.

Akureyri heiti bær en ekki kaupstaður

Bæjarráð Akur­eyrar lagði á fundi sínum í gær til að heiti sveit­ar­fé­lags­ins verði breytt úr Akur­eyr­ar­kaup­staður í Akur­eyr­ar­bær.

Tillagan var lögð fram af sviðs­stjóra stjórn­sýslu­sviðs, en málið var áður á dag­skrá bæj­ar­ráðs 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Eftir umræðu á þeim fundi sagði Halla Margrét Tryggva­dóttir, sviðs­stjóri stórn­sýslu­sviðs, í sam­tali við blaðið Vikudag að nafnið Akur­eyr­ar­kaup­staður væri lítið notað. Helst væri það hjá ráðu­neytum og hjá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga.

„Ég tel að margir bæj­ar­búar átti sig ekki á því að bær­inn heiti í raun Akur­eyr­ar­kaup­staður en ekki Akur­eyr­ar­bær,“ sagði Halla. Á þeim tíma­punkti hafði ekki verið tekin ákvörðun um þá til­lögu að sveit­ar­fé­lagið skyldi heita Akur­eyr­ar­bær.

Bæjarráð vís­aði í gær mál­inu til umræðu og afgreiðslu bæj­ar­stjórnar. Jafn­framt faldi bæj­ar­ráð sviðs­stjóra að óska umsagnar örnefna­nefndar um breyt­inga­til­lög­una.

Nokkur umræða spratt upp um nöfn sveit­ar­fé­laga í mars 2018 eftir fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, á Alþingi. Spurði hann meðal ann­ars um nafn sam­ein­aðs …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár