Fundu hrjótandi mann í hjónarúminu eftir jólamessu

Arin­björn Snorra­son, for­maður Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur, segir slys og voveif­lega atburði á jólum sitja meira í lög­reglu­mönnum heldur en slíkir atburðir á öðrum tímum árs.

Fundu hrjótandi mann í hjónarúminu eftir jólamessu
Getur verið þung­bært Arin­björn segir að voveif­legir atburðir sem verði yfir hátíðir sitji í öllum lög­reglu­mönnum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lög­reglan er ekki aðgerð­ar­laus um hátíðir fremur en aðra daga og þarf að takast á við allra handa upp­á­komur yfir jóla­há­tíð­ina, allt frá því að aðstoða sam­borg­ara sína vegna raf­magns­leysis til þess að þurfa að takast á við mjög þung­bæra atburði, slys og fjöl­skyldu­harm­leiki. Því þarf að manna lög­reglu­vakt á hátíð­ar­dögum rétt eins og á öðrum dögum.

Arin­björn Snorra­son, for­maður Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur, hefur staðið vakt­ina yfir fjöl­mörg jól og ára­mót, rétt eins og flestir kollega hans hafa einnig gert. „Ég var fyrst á vakt yfir hátíðir fyrsta árið mitt í lög­regl­unni, árið 1987. Ég hef síðan nán­ast öll ár tekið vaktir á aðfanga­dag, jóla­dag, gamla­árs­dag eða nýárs­dag. Gamla­árs­kvöld og nýársnótt eru mann­frek­ari en jóla­há­tíð­arnar en sem betur fer finnst mér sem hafi dregið úr þörf á mann­afla yfir ára­mótin frá því sem var. Ég held kannski að fólk sé farið að ganga hægar um gleð­innar dyr, eða þá að skemmt­ana­hald …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Þau standa vaktina um jólin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár