Leggur frá sér sleifina ef fara þarf að hughreysta fólk

Djákni við Land­spít­al­ann finnur fyrir því hversu við­kvæmt mann­fólkið getur orðið um jólin.

Leggur frá sér sleifina ef fara þarf að hughreysta fólk
Gerist ekk­ert annað en að jóla­haldið frest­ast aðeins Rósa Krist­jáns­dóttir djákni á Land­spít­ala hefur upp­lifað það að þurfa að stökkva af stað frá pott­unum heima hjá sér til að veita sálu­sorg á aðfanga­dag. Hún telur það ekk­ert eftir sér, aðrir þurfa meira á tíma hennar að halda heldur en jóla­haldið heima við. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það er aldrei auð­velt þegar fólk verður fyrir áföllum en yfir jóla­há­tíð­ina er óhætt að segja að margir séu veik­ari fyrir heldur en ann­ars. Rósa Krist­jáns­dóttir, djákni við Land­spít­al­ann, hefur fundið fyrir því hversu við­kvæmt fólk getur verið yfir hátíð­arnar, þegar það saknar þess að geta kannski ekki verið hjá þeim sem standa því næst. Þeir sem sinna sál­gæslu við spít­al­ann eru þá alltaf til­búnir að reyna að veita fólki stuðn­ing sem á um sárt að binda.

Sjálf­boða­liðar gleðja sjúk­lingaSjálf­boða­liðar, meðal ann­ars úr hópi tón­list­ar­fólks, mæta árlega á starfs­stöðvar Land­spít­ala. Þeir taka þátt í helgi­haldi, syngja og flytja tón­list, til að gleðja sjúk­linga og færa þeim hátíð­ar­anda.

Rósa hefur ára­tuga reynslu af störfum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, í fleiri en einu hlut­verki, og hefur þar af leið­andi margoft gengið vaktir um jólin og ára­mót. „Ég hef verið hér í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þau standa vaktina um jólin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár