Leita að örvingluðu fólki um jólin

Anna Filbert segir bestu jóla­gjaf­irnar hafa verið þegar fólk sem leita hefur þurft eftir á aðfanga­dag hefur fund­ist heilt á húfi. Margir finni fyrir sorg á jólum.

Leita að örvingluðu fólki um jólin
Ákveðin stemn­ing í útköll­unum Anna Filbert hefur upp­lifað það marg­sinnis að fara til hjálpar fólki yfir hátíðar og segir hún stundum mynd­ist að hátíð­legt and­rúms­loft hjá björg­un­ar­sveit­ar­fólki sem leggi þannig sitt af mörkum til að hjálpa með­bræðrum sínum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þótt björg­un­ar­sveit­irnar séu upp­byggðar af sjálf­boða­liðum og eng­inn sé því í raun og sann til­neyddur til að vera á vakt yfir hátíðar er það engu að síður þannig að flestir þeir sem taka þátt í starfi sveit­anna eru til­búnir þegar kallið kemur, hvaða dagur sem er. Það er í það minnsta upp­lifun Önnu Filbert, aðgerð­ar­stjóra og sjálf­boða­liða hjá björg­un­ar­sveit­inni Kili á Kjal­ar­nesi.

„Fólk hefur auð­vitað val um það hvort það bregst við útköllum, þetta er ekki bak­vakt eða skylda, en ég held að flestir félaga minna hendi öllu frá sér hafi þeir nokkur tök á og fari til leitar eða björg­unar. Hvort sem það er jóla­hald, afmæli eða annað,“ segir Anna, sem hefur starfað í björg­un­ar­sveit­inni í sautján ár. Hún segir algengt að sveitin sé kölluð út yfir hátíð­arnar. „Ég hef lent í þessu nokkrum sinnum, að fara í útköll á aðfanga­dag, og þá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þau standa vaktina um jólin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár