Fjölskyldurnar koma í heimsókn á slökkviliðsstöðina

Oft er mikið að gera um jólin þó ekki logi eldar um borg og bí. Flytja þarf marga sjúk­linga sem fá leyfi til að halda jólin heima hjá sér.

Fjölskyldurnar koma í heimsókn á slökkviliðsstöðina
Jólin vekja stórar til­finn­ingar Þor­steinn segir að í sjúkra­flutn­ingum verði menn vel varir við að hátíð­arnar geti verið erf­iður tími fyrir þá sem standi höllum fæti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jóla­há­tíð­irnar eru oft býsna eril­samur tími fyrir slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ekki vegna þess að þá logi eldar um alla borg þó, heldur vegna þess að þá er oftar en ekki mikið að gera við sjúkra­flutn­inga. Sjúkra­flutn­ingar eru sem kunn­ugt er á hendi slökkvi­liðs­ins og á aðfanga­dag er gjarnan tals­vert um að sjúk­lingar fái leyfi frá sjúkra­stofn­unum til að fara heim og halda jólin hátíð­leg með fjöl­skyldum sínum. Því er ekki hægt að koma því við að vaktir slökkvi­liðs­ins séu fámenn­ari en vana­legt er þó að hátíð ein að höndum beri, heldur miklu fremur þvert á móti.

Eril­samur tímiÞað er yfir­leitt mikið að gera í sjúkra­flutn­ingum á aðfanga­dag, þegar verið er að keyra sjúk­linga til síns heima til að halda jól með fjöl­skyldum sínum, og svo til baka á sjúkra­stofn­anir að jóla­haldi loknu.

Þor­steinn Gunn­ars­son hóf störf hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þau standa vaktina um jólin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár