Huginn kvartar undan „karlahatri“ og segir föður lagðan í einelti fyrir að hafa slegið barn

Huginn Þór Grét­ars­son, barna­bóka­höf­undur og einn af for­svars­mönnum Daddytoo-hóps­ins, hefur sent stjórn­endum Háskól­ans í Reykja­vík kvörtun vegna þess sem hann kallar „karla­hatur“ konu sem starfar við skól­ann.

Huginn kvartar undan „karlahatri“ og segir föður lagðan í einelti fyrir að hafa slegið barn

H

uginn Þór Grét­ars­son, barna­bóka­höf­undur og einn af for­svars­mönnum Daddytoo-hóps­ins, hefur sent stjórn­endum Háskól­ans í Reykja­vík kvörtun vegna þess sem hann kallar „karla­hatur“ konu sem starfar við skól­ann. Telur hann fram­göngu kon­unnar mun alvar­legri heldur en hegðun Kristins Sig­ur­jóns­sonar lekt­ors sem var rek­inn eftir að hann lýsti forn­eskju­legum kynja­sjón­ar­miðum á Facebook. 

Í bréfi Hugins, sem birt hefur verið á vefnum For­rétt­inda­femín­ismi.com, vitnar hann í  tölvu­póst­sam­skipti sín við starfs­mann HR sem er vin­kona Maariu Päivinen, barns­móður Hugins sem Stundin tók við­tal við í fyrra þegar hún dvaldi í Kvenna­at­hvarf­inu.

Af tölvu­póst­sam­skipt­unum má ráða að starfs­maður HR trúi Maariu vin­konu sinni og telji Hugin ekki sér­lega vel inn­rétt­aðan. Huginn vitnar einnig í ummæli sem starfs­mað­ur­inn lét falla um hann í athuga­semda­kerfi DV og birtir skila­boð sem hún sendi óvart syni fyrri barns­móður Hugins en ætluð voru bróður barns­móð­ur­innar.

Segir Huginn að í bréf­unum sé farið með ósann­indi og þar birt­ist hat­ursá­róður gegn sér á grund­velli þess að hann sé karl­maður. „Það er ljóst að hún ber hatur gagn­vart karlmönnum í brjósti.“

Ómaklega vegið að Kristni í Karlalistanum

Huginn segir að fjöldi kvenna hafi í sam­vinnu við Stundina rústað mann­orði karl­manna sem berj­ast gegn umgengni­stálm­unum.

„Það hafa birst nokkrar greinar sem hafa tekið menn af lífi (mann­orðs­morð). Stundin hefur farið fremst í flokki í þessum árásum og ein­hliða umfjöllun, sem stang­ast á við fjölmiðlalög, en engum virð­ist skipta það nokkru máli,“ skrifar hann. 

Huginn nefnir sér­stak­lega að maður nokkur, Kristinn Sæmunds­son, sé nið­ur­brot­inn eftir umfjöllun Stund­ar­innar.

Kristinn skip­aði 3. sæti á fram­boðs­lista Karla­list­ans í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum síð­asta vor. Eftir að Kristinn steig sjálfur fram í við­tali við Harma­geddon, tjáði sig um umgengn­is­deilu sem hann stóð í og bar þungar ásak­anir á barns­móður sína birti Stundin frétt um ástæður þess að sýslu­maður hafði sett umgengni Kristins við börnin sín skorður. Fram kom að Kristinn hefði verið hand­tek­inn vegna akst­urs undir áhrifum fíkni­efna með son sinn í bílnum auk þess sem hann hefði við­ur­kennt að hafa slegið son sinn.

Huginn telur að ómak­lega hafi verið vegið að Kristni í umfjöllun Stund­ar­innar. „Hvað hefur þessi hrotti gert? Jú, hann löðrung­aði son sinn einu sinni. Vissu­lega varð honum á en að verða fyrir svona ofbeldi ein­elt­is­hrotta er óafsak­an­legt.“ 

Án atlota

Þá gagn­rýnir Huginn barns­móður Kristins fyrir að ráð­ast að honum án þess að sýna honum atlot. „Ofbeld­is­mann­eskjan sem rústar honum og ræðst að honum án atlota, notar barnið sem tálbeitu og fjölmiðla til að eyði­leggja mann­orð hans. Grein­arnar eru mun fleiri. Stundin hefur verið málsvari þess­arra kvenna sem ákváðu að „rústa“ karlmönnum sem stigu fram.“

Telur Huginn ótækt að starfs­maður HR kom­ist upp með „karla­hatur“ sitt í umræðum á net­inu. Segist hann ætla að kæra kon­una fyrir „ljúg­vitn­is­burð og árásir á sam­fé­lags­miðlum“. Ummæli hennar séu mun alvar­legri en þau sem Kristinn Sig­ur­jóns­son lektor lét falla og leiddu til þess að honum var sagt upp störfum. 

„Sýnir af sér hatur út frá kyni mínu“

„Svona hatur gagn­vart karlmönnum er ólíðandi og skv. fyrri við­brögðum Háskólans í Reykjavík geri ég pass­lega ráð fyrir því að þig legg­ist gegn því að starfsfólk ykkar taki þátt í að úthrópa sak­lausa ein­stak­linga sem ofbeld­is­menn,“ skrifar Huginn.

Þá segir hann að áhuga­vert verði að sjá hvernig HR taki á þessu máli, þar sem starfs­maður skól­ans „ber ítrekað upp á mig ofbeldi, dregur upp af mér stað­alímyndir og sýnir af sér hatur út frá kyni mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár