Rekinn úr Karlalistanum vegna fréttar Stundarinnar

Fram­bjóð­and­anum Kristni Sæmunds­syni hefur verið vikið úr flokknum og stjórn hans í kjöl­far frétta­flutn­ings Stund­ar­innar af fram­göngu hans gagn­vart barni sínu og barns­móður.

Rekinn úr Karlalistanum vegna fréttar Stundarinnar

Kristni Sæmunds­syni, fram­bjóð­anda í 3. sæti hjá Karla­list­anum fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, hefur verið vikið úr flokknum og stjórn hans. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Karla­list­anum.

Ástæða brott­vikn­ing­ar­innar er frétt Stund­ar­innar frá því í morgun, en þar kom fram að Kristinn hefði slegið son sinn, beitt dreng­inn and­legu ofbeldi að mati sál­fræð­ings og verið hand­tek­inn fyrir að keyra með hann undir áhrifum kanna­bis­efna.

„Karla­list­anum er brugðið að heyra fréttaum­fjöllun Stund­ar­innar um fram­göngu Kristins Sæmunds­sonar gagn­vart barni sínu og barns­móður. Stjórn Karla­list­ans telur það hafið yfir skyn­sam­legan vafa að Kristinn hafi gengið þannig fram og hefur því stjórn lagt fram van­traust­til­lögu á Kristin og hefur honum verið vikið úr stjórn,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Á grund­velli sam­þykkta flokks­ins hefur stjórn einnig ákveðið að víkja honum úr flokknum. Hvorki stjórn né heldur fram­bjóð­endur vissu af þess­ari sögu Kristins þegar skipað var á lista og bregst því stjórn við með afger­andi hætti.“

Einnig er vikið stutt­lega að for­ræðis- og umgengn­is­deilu Gunnars Waage við barns­móður sína sem Stundin fjall­aði um í dag: „Mál Gunnars Waage er með öllu eðl­is­ó­líkt, þar sem hann öðl­að­ist aftur for­sjá árið 2016 fyrir dõmi. Slík er ekki gert nema faðir telj­ist full­kom­lega hæft for­eldrið. Stjórn lýsir yfir fullum stuðn­ingi með Gunnari Waage.“ 

Kristinn skip­aði í fyrstu fjórða sæti á fram­boðs­lista Karla­list­ans en færð­ist í raun upp um sæti eftir að Stefán Páll Páluson sam­þykkti að víkja af list­anum eftir kosn­ingar. Í ljós hafði komið að Stefán var dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir þjófnað í fyrra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár