Trúnaður ríki um ráðgjöf sem ráðherrar fá vegna siðareglna

Gagnsæi um sið­ferði­lega ráð­gjöf er talið geta „komið í veg fyrir að emb­ætt­is­menn leiti sér slíkrar ráð­gjafar þegar á þarf að halda,“ segir skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Styrking máls­hraða­á­kvæðis upp­lýs­inga­laga er til skoð­unar.

Trúnaður ríki um ráðgjöf sem ráðherrar fá vegna siðareglna

Stjórn­völd munu fá sér­staka heim­ild til að neita almenn­ingi um upp­lýs­ingar er varða ráð­gjöf sem ráð­herrar og aðrir emb­ætt­is­menn fá um siða­reglur og fram­fylgd þeirra. Þetta er á meðal þess sem lagt verður til í fyr­ir­hug­uðu frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á upp­lýs­inga­lögum. Fyrir vikið yrði leynd yfir upp­lýs­ingum á borð við þær sem hér er að finna.

„Þessi áform eiga rætur að rekja til ábend­inga GRECO í fimmtu úttekt sam­tak­anna á Íslandi, sem beind­ist m.a. að vörnum gegn spill­ingu hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmda­valds (sjá efn­is­grein nr. 47 í skýrsl­unni),“ segir Páll Þór­halls­son, skrif­stofu­stjóri lög­gjaf­ar­mála hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. „Ráðu­neytið hefur túlkað gild­andi upp­lýs­inga­lög þannig að veita verði almenn­ingi aðgang að upp­lýs­ingum um ráð­gjöf um siða­reglur og veitti fjöl­miðlum til dæmis slíkan aðgang í kjöl­far fyr­ir­spurnar á Alþingi. Mat GRECO og nið­ur­staða starfs­hóps um efl­ingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu byggja hins vegar á sjón­ar­miðum um að þetta fyr­ir­komu­lag geti komið í veg fyrir að emb­ætt­is­menn leiti sér slíkrar ráð­gjafar þegar á þarf að halda.“

Stefnt er að því að frum­varp til breyt­inga á upp­lýs­inga­lögum verði lagt fyrir Alþingi í febr­úar næst­kom­andi. Efni þess er lýst með eft­ir­far­andi hætti í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar sem birt hefur verið á stjórn­ar­ráðsvefnum: Ein­földun og sam­ræm­ing (orða­lag lag­fært og til­vís­anir til lag­anna í öðrum lögum upp­færðar, lög um upp­lýs­inga­rétt um umhverf­is­mál felld niður og ákvæðum þeirra bætt við upp­lýs­inga­lög). Gild­is­svið útvíkkað þannig að nái til stjórn­sýslu Alþingis og dóm­stóla í tengslum við fyr­ir­hug­aða full­gild­ingu á samn­ingi Evr­ópu­ráðs­ins um aðgang að opin­berum upp­lýs­ingum. Bætt við heim­ild til að tak­marka upp­lýs­inga­rétt almenn­ings hvað varðar upp­lýs­ingar um ráð­gjöf um siða­reglur og fleira.

Lýsingin sam­rým­ist vel til­lögum sem fram komu í nýlegri skýrslu starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra um efl­ingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu. Þar er lagt til að gild­is­svið upp­lýs­inga­réttar nái til hand­hafa lög­gjaf­ar­valds og dóms­valds, laga­á­kvæði um upp­lýs­inga­rétt um umhverf­is­mál verði færð inn í hin almennu upp­lýs­inga­lög og að mælt verði fyrir um „heim­ild til að virða trúnað um ráðlegg­ingar þar til bærra aðila til opin­berra starfs­manna um siða­reglur og skyld efni“. 

Starfs­hóp­ur­inn lagði einnig til að lög­festur yrði hámarkstími afgreiðslu á upp­lýs­inga­beiðnum með sams konar hætti og gert hefur verið í lögum um end­ur­not opin­berra upp­lýs­inga. Ekki er minnst á slíkar laga­breyt­ingar í þing­mála­skránni. Páll Þór­halls­son bendir á að í þing­mála­skránni birt­ist ekki tæm­andi upp­taln­ing á fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum. „Hámarks­tími afgreiðslu beiðni um upp­lýs­ingar er eitt af þeim atriðum sem mun koma til skoð­unar,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár