Miðflokkurinn tapaði 16 milljónum í fyrra

Rekstur Mið­flokks­ins var nei­kvæður um 16 millj­ónir króna árið 2017 sam­kvæmt árs­reikn­ingi. Flokk­ur­inn skuld­aði rúmar 17 millj­ónir í árs­lok og eigið fé var nei­kvætt um 16 millj­ónir króna. Flokk­ur­inn fékk 3 millj­ónir úr rík­is­sjóði í fyrra en fær 71,5 í ár eftir hækkun á fram­lögum til stjórn­mála­flokka.

Miðflokkurinn tapaði 16 milljónum í fyrra
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Mið­flokk­ur­inn fékkt tæp 11% atkvæða í þing­kosn­ing­unum 2017. Mynd: Pressphotos

Mið­flokk­ur­inn tap­aði 16 millj­ónum króna á árinu 2017, sam­kvæmt útdrætti úr árs­reikn­ingi sem Rík­is­end­ur­skoðun hefur birt. Skuldir flokks­ins voru um 17 millj­ónir króna í árs­lok 2017 og eigið fé nei­kvætt um 16 millj­ónir.

Mið­flokk­ur­inn var form­lega stofn­aður í fyrra og hlaut fram­boðið tæp 11 pró­sent atkvæða í Alþing­is­kosn­ing­unum 2017. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fór fyrir stofnun flokks­ins eftir að hann gekk úr Fram­sókn­ar­flokknum í kjöl­far upp­ljóstrana sem fram komu í Panam­skjöl­unum.

Rekstur flokks­ins kost­aði alls 27,5 millj­ónir á árinu, en tekjur hans námu 11,8 millj­ónum króna í formi fram­laga lög­að­ila og ein­stak­linga, auk rík­is­fram­laga.

Miðflokkurinn fær 71,5 milljón frá ríkissjóði í ár

Lög­að­ilar styrktu flokk­inn um tæpar 7 millj­ónir króna á árinu. Fyr­ir­tækin Brim, Tandra­berg, Óshöfði, Kvika banki, Thorfish, Síminn, HB Grandi og Hafblik styrktu öll flokk­inn um 400 þús­und krónur hvert. Fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi voru áber­andi í hópi styrkt­ar­að­ila, en ein­stak­lingar styrktu einnig flokk­inn um tæpar 2 millj­ónir króna sam­tals með fram­lögum upp á 200 þús­und krónur eða minna á mann.

Loks fékk flokk­ur­inn 3 millj­ónir króna frá rík­is­sjóði í kosn­inga­fram­lag. Ljóst er að flokk­ur­inn mun fá enn hærra fram­lag frá rík­inu í ár, þar sem fjár­fram­lög til flokk­anna á Alþingi voru hækkuð um 127% um ára­mótin. Mun Mið­flokk­ur­inn fá 71,5 milljón króna í slík fram­lög á árinu 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármál stjórnmálaflokka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár