Stjórnmálaflokkar fá sögulega há framlög úr ríkissjóði

Flokk­arnir á Alþingi fá 100 milljón króna hærri fram­lög úr rík­is­sjóði en þegar þau fór hæst 2008. Þing­maður Pírata telur að verið sé að bæta upp lægri fram­lög einka­að­ila.

Stjórnmálaflokkar fá sögulega há framlög úr ríkissjóði
Björn Leví Gunn­ars­son Þing­maður Pírata telur rík­is­sjóð bæta stjórn­mála­flokkum upp lægri fram­lög frá einka­að­ilum. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Framlög rík­is­ins til stjórn­mála­flokka eru nú 100 milljón krónum hærri að núvirði en þegar þau fór hæst árið 2008. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, óskaði eftir og birti á Facebook.

Fjár­fram­lög til stjórn­mála­flokka hækk­uðu um 127%, úr 286 millj­ónum króna um 362 millj­ónir króna um ára­mótin. Standa þau nú í 648 millj­ónum króna, en fóru hæst í tæpar 546 millj­ónir króna að núvirði árið 2008.

„Rökin fyrir því að hækka fjár­fram­lögin voru að styrkja lýð­ræðið og laga þá rýrnun sem orðið hefur á fjár­fram­lögum til stjórn­mála­sam­taka frá hruni,“ skrifar Björn Leví. „Hvort tveggja eru alveg mál­efna­leg rök en upp­hæðin er það ekk­ert endi­lega.“

Ár Framlög á fjár­lögum Framlög einka­að­ila
2007 511.810.000 kr. 358.134.258 kr.
2008 545.733.000 kr. 134.490.484 kr.
2009 501.153.000 kr. 218.044.500 kr.
2010 416.118.000 kr. 173.596.242 kr.
2011 364.127.000 kr. 120.333.197 kr.
2012 335.824.000 kr. 115.866.181 kr.
2013 317.440.000 kr. 236.322.635 kr.
2014 281.126.000 kr. 159.797.260 kr.
2015 302.016.000 kr. 127.174.525 kr.
2016 296.868.000 kr. 141.316.284 kr.
2017 291.720.000 kr. upp­lýs­ingar vantar
2018 648.000.000 kr. upp­lýs­ingar vantar

Telur ríkissjóð fjármagna lækkandi framlög einkaaðila

Björn Leví fékk einnig gögn um fjár­fram­lög einka­að­ila til stjórn­mála­flokka. Framlög einka­að­ila voru hæst árið 2007, eða 358 millj­ónir króna að núvirði. Kosn­inga­árin 2009 og 2013 hækk­uðu þau tölu­vert miðað við önnur ár, en kosn­inga­árið 2016 námu fram­lög einka­að­ila ein­ungis 141 milljón króna.

Björn Leví ber hækk­un­ina saman við þróun á fjár­fram­lögum einka­að­ila. „Nið­ur­staðan lítur sem­sagt út fyrir að vera að lækk­andi fram­lög einka­að­ila til stjórn­mála­sam­taka séu nú fjár­mögnuð úr rík­is­sjóði,“ skrifar Björn Leví. „100 millj­óna upp­bót, úr rík­is­sjóði.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár