Líkir Piu Kjærsgaard við Dalai Lama

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, segir skoð­anir Piu Kjærs­gaard í útlend­inga­málum vera „við­ur­kenndur hluti meg­in­sjón­ar­miða í evr­ópskum stjórn­málum“. Mótmæli Pírata séu svipuð og þegar kín­verskir náms­menn mót­mæltu komu Dalai Lama.

Líkir Piu Kjærsgaard við Dalai Lama
Björn Bjarna­son Fyrr­ver­andi ráð­herra segir for­mann danska jafn­að­ar­manna­flokks­ins njóta vax­andi virð­ingar flokks­bræðra í öðrum löndum vegna harðrar útlend­inga­stefnu sinnar. Mynd: PressPhotos

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, líkir gagn­rýni á Þing­valla­ræðu Piu Kjærs­gaard, for­seta danska þings­ins, við gagn­rýni kín­verskra náms­manna í Banda­ríkj­unum á komu Dalai Lama. Þá segir hann skoð­anir Piu í útlend­inga­málum vera við­ur­kenndar í evr­ópskum stjórn­málum.

Dalai Lama

Í grein í Morg­un­blað­inu í dag skrifar Björn að kín­verskir náms­menn við háskóla í San Diego hafi mót­mælt fyr­ir­hug­aðri ræðu Dalai Lama við skól­ann vorið 2017. Dalai Lama hefur barist fyrir mann­rétt­indum og frjálsu Tíbet og sætt gagn­rýni kín­verskra stjórn­valda fyrir vikið.

Björn segir gagn­rýni Pírata á hátíð­ar­ræðu Piu á Þing­völlum dæmi um „hvernig póli­tísk öfl vilja ráða skoð­ana­myndun í land­inu með því að þagga niður í erlendum ein­stak­lingi sem þeir eru ósam­mála.“ Pia er þekkt fyrir útlend­inga­andúð og bar­áttu sína gegn fjöl­menn­ingu og íslam. Árið 2010 kall­aði hún eftir því að stjórn­völd bönn­uðu inn­flytj­endum sem ekki væru af vest­rænum upp­runa að setj­ast í Danmörku. Hæsti­réttur Dan­merkur felldi árið 2003 þann dóm að rétt­mætt væri að kalla skoð­anir Piu „rasískar“.

„Þetta er í ætt við við­horfið hjá kín­versku náms­mönn­unum sem gengu þeirra erinda að banna Dalai Lama að flytja ræðu sína,“ skrifar Björn. „Þetta er til­raun til útskúf­unar í því skyni að hefta frjálsa skoð­ana­myndun.“

Samfylkingins stöðvi fylgistap sitt með harðari útlendingastefnu

Björn skrifar að „atlagan að Piu“ hafi verið dæmd til að mis­takast. „Stór­deil­urnar vegna komu Piu Kjærs­gaard á fund Alþingis eru angi af umræðum sem setja sterkan svip á stjórn­mál líð­andi stundar í Evrópu,“ skrifar Björn. „Sjón­ar­mið sem hún boðar í útlend­inga­málum voru fyrir nokkrum árum kennd við öfga­skoð­anir. Þau eru nú við­ur­kenndur hluti meg­in­sjón­ar­miða í evr­ópskum stjórn­málum.“

Þá skrifar Björn að Sam­fylk­ingin ætti að taka upp harð­ari útlend­inga­stefnu til að forð­ast fylgis­tap. „Með for­dæm­ingu sinni á við­horfum Kjærs­gaard skipar Sam­fylk­ingin sér í hóp and­stæð­inga danskra jafn­að­ar­manna í útlend­inga­málum. Formaður danska jafn­að­ar­manna­flokks­ins nýtur á sama tíma vax­andi virð­ingar flokks­bræðra í öðrum löndum en hér vegna harðrar útlend­inga­stefnu sinnar. Slík fyr­ir­staða kunni að stöðva fylgis­tap jafn­að­ar­manna­flokka um alla Evrópu.“

Píratar gangi af þingfundi á „öruggt svæði“

Í grein­inni notar Björn reglu­lega hug­takið „öruggt svæði“, sem er þýð­ing á enska hug­tak­inu „safe space“. Hugtakið á upp­runa sinn í hreyf­ingum kvenna, sam­kyn­hneigðra og ann­arra hópa og táknar rými þar sem mann­eskja úr við­kom­andi hópi getur verið viss að hún mæti ekki for­dómum, mis­munun, áreiti eða ofbeldi vegna hóps­ins sem hún til­heyrir.

Pia Kjærs­gaard

„Hér á landi höfum við kynnst því und­an­farna daga hvernig póli­tísk öfl vilja ráða skoð­ana­myndun í land­inu með því að þagga niður í erlendum ein­stak­lingi sem þeir eru ósam­mála,“ skrifar Björn. „Umburð­ar­lyndið gagn­vart skoð­unum ann­arra er ekk­ert og þess er kraf­ist að sjálft Alþingi sé „öruggt svæði“.“

Segir Björn Pírata ekki sætta sig við „aukna gæslu á landa­mærum eða varð­stöðu um nor­rænan og evr­ópskan menn­ing­ar­arf.“ Þeir sem hafi nasa­sjón af nor­rænum hátíð­ar­ræðum í áranna rás þurfi ekki að láta sér bregða vegna ummæla Piu. „Þurfi þing­menn að ganga af þing­fundi á „öruggan stað“ vegna ummæla af þessum toga, ættu þeir ekki að fara í fram­boð,“ skrifar Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár