Segir hatursorðræðu áhrifafólks óþekkta á Íslandi: „Íslendingar almennt vel upp aldir í góðum siðum“

Dóms­mála­ráð­herra fjallar um ákæru gegn múslimaklerki í Danmörku og fagnar því að slík mál hafi ekki komið upp á Íslandi.

Segir hatursorðræðu áhrifafólks óþekkta á Íslandi: „Íslendingar almennt vel upp aldir í góðum siðum“

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra segir að hat­ur­orð­ræða áhrifa­manna gegn ein­stökum hópum fólks þekk­ist ekki á Íslandi. Hún leyfir sér að vona að það sé „vegna þess að Íslend­ingar eru almennt vel upp aldir í góðum siðum og náunga­kær­leik, vel upp­lýstir og umburð­ar­lyndir“. 

Þetta kemur fram í pistli eftir ráð­herra sem birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun. Þar gerir hún að umtals­efni að nýlega hafi „ímam (klerkur múslima) nokkur í Danmörku“ verið ákærður fyrir að hvetja til morða á gyð­ingum í predikun. Ráðherra fagnar því að sam­bæri­leg mál hafi ekki komið upp á Íslandi og lýsir áhyggjum af vax­andi gyð­inga­hatri í Evrópu.

„Hatur á ein­stökum hópum manna, sem end­ur­spegl­ast í máli áhrifa­valds eins og því sem nú verður ákært fyrir í Danmörku, þekkjum við ekki hér á landi og skulum aldrei kynn­ast,“ skrifar Sigríður Andersen sem telur að ástæðan sé gott upp­eldi Íslend­inga og gildi sem þjóðin standi vörð um. Þó sé þjóðin oft stór­yrt í netheimum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár