„Ég get ekki verið í flokki sem situr í ríkisstjórn sem semur ekki við ljósmæður og býður alræmdum rasista á hátíðlegustu athafnirnar“

Hildur Knúts­dóttir, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi vara­þing­kona Vinstri grænna, er hætt í flokknum.

„Ég get ekki verið í flokki sem situr í ríkisstjórn sem semur ekki við ljósmæður og býður alræmdum rasista á hátíðlegustu athafnirnar“

Hildur Knúts­dóttir, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi vara­þing­kona Vinstri grænna sem skip­aði átt­unda sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar, er hætt í flokknum.

„Ég get ekki verið í flokki sem situr í rík­is­stjórn sem semur ekki við ljós­mæður og býður alræmdum ras­ista á hátíð­leg­ustu athafn­irnar,“ skrifar Hildur á Facebook. „Það er fullt af frá­bæru fólki í VG með hjartað á réttum stað, en ég vil ekki vera þar lengur.“

VG hefur sætt harðri gagn­rýni vegna stjórn­ar­sam­starfs­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn und­an­farna mán­uði.

Loka þurfti með­göngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­al­ans nú í vik­unni vegna ljós­mæðra­deil­unnar auk þess sem fljúga hefur þurft þung­uðum konum norður á land vegna álags á spít­al­anum í Reykja­vík.

Und­an­farna daga hefur mikið mætt á Stein­grími J. Sig­fús­son, þing­for­seta og fyrr­ver­andi for­manni Vinstri grænna vegna þeirrar ákvörð­unar for­sætis­nefndar Alþingis að bjóða Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana sem er þekkt fyrir útlend­inga­andúð og harða inn­flytj­enda­stefnu, að halda hátíð­ar­ræðu á afmæl­is­há­tíð full­veldis Íslend­inga.

Ísland hafi varðveitt „upphaflega sjálfsmynd norrænna manna“

Pia Kjærs­gaardþing­for­seti Dana og þekkt bar­áttu­kona gegn fjöl­menn­ingu.

Í ræðu sinni á Þing­völlum tal­aði Pia Kjærs­gaard um Ísland sem „vöggu nor­rænnar menn­ingar“ og sagði Dani hafa litið svo á að Ísland væri „það land þar sem hin upp­haf­lega sjálfs­mynd nor­rænna manna var varð­veitt.“ Þá vék hún að því hvernig sjálf­stæð­is­bar­átta Íslend­inga á 19. öld hefði átt þátt í að „kynda undir danskri þjóð­ern­is­kennd sem þá var í blóma“. 

Stein­grímur J. Sig­fús­son hefur harmað þá ákvörðun Pírata að snið­ganga hátíð­ar­fund­inn og varið af hörku þá ákvörðun að bjóða Piu að halda hátíð­ar­ræðu á Þing­völlum. Nokkrir Íslend­ingar af erlendum upp­runa hafa lýst því hvernig valið fór fyrir brjóstið á sér.

„Þið megið skamm­ast ykkar marg­falt. Þetta er ekki bara móðgun við alla krakk­ana af erlendum upp­runa sem munu ekki kjósa ykkur aftur heldur móðgun við íslensku þjóð­ina í heild sinni,“ skrif­aði Unn­steinn Manuel Stef­áns­son tón­list­ar­maður á Facebook. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, er sama sinnis. „Það er dóna­skapur og hreint út sagt óvirð­ing við alla þá fjöl­breyttu ein­stak­linga, sem hér búa á þessu landi, að fagna und­ir­ritun sam­bands­laga­sátt­mál­ans sem síðar leiddi til full­veldis Íslands, með því að gefa öfga­þjóð­ern­is­sinna orðið, rými og auka vægi,“ skrifar hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár