Nefndasvið Alþingis taldi andstætt stjórnarskrá að aðrir en þingmenn, ráðherrar og forseti flyttu ræður á þingfundum

Ræðuhöld Piu Kjærs­gaard á hátíð­ar­þing­fund­inum í síð­ustu viku eru ósam­rým­an­leg lög­fræði­á­liti sem þing­maður Pírata fékk í fyrra vegna hug­mynda um að hleypa óbreyttum borg­urum í ræðu­stól. Sérstök und­an­þága var veitt fyrir Piu, en stjórn­mála­fræð­ingur segir gjörn­ing­inn vera „þvert á allar venjur sem gilt hafa um hátíð­ar­fundi Alþingis á Þing­völl­um“.

Nefndasvið Alþingis taldi andstætt stjórnarskrá að aðrir en þingmenn, ráðherrar og forseti flyttu ræður á þingfundum

Samkvæmt lög­fræði­legri ráð­gjöf sem nefnda­svið Alþingis veitti þing­mönnum í fyrra stang­ast það á við stjórn­ar­skrá Íslands að aðrir en þing­menn, ráð­herrar og for­seti taki til máls á fundum Alþingis.

Engu að síður var brugðið sér­stak­lega frá þing­sköpum í síð­ustu viku svo Pia Kjærs­gaard, þing­for­seti Dana sem er þekkt fyrir útlend­inga­andúð og bar­áttu sína gegn inn­flytj­endum og fjöl­menn­ingu, gæti flutt hátíð­ar­á­varp á Þing­völlum í til­efni 100 ára full­veldis Íslands.

Björn Leví Gunn­ars­sonþing­maður Pírata

Í fyrra hafði Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í hyggju að leggja fram frum­varp til breyt­inga á þing­sköpum þannig kveðið yrði á um sér­stakan dag­skrár­lið einu sinni í mán­uði þar sem óbreyttir borg­arar, valdir af handa­hófi úr þjóð­skrá, fengju að tjá sig úr ræðu­stól Alþingis. „Hug­myndin var sú að af og til færi fram umræða sam­bæri­leg liðnum störf þings­ins, nema að þar yrði valið fólk af handa­hófi úr þjóð­skrá sem fengi tæki­færi til að halda stutta ræðu á þingi,“ segir Björn Leví í sam­tali við Stundina. 

Það var álit lög­fræð­inga af nefnda­sviði Alþingis að stjórn­skipu­legir ann­markar væru á slíkri laga­breyt­ingu. Birni var bent á að sam­kvæmt 31. gr. stjórn­ar­skrár­innar ættu 63 þjóð­kjörnir þing­menn sæti á Alþingi, kosnir leyni­legri kosn­ingu til fjög­urra ára. 

Kveðið væri á um und­an­tekn­ingu frá þess­ari meg­in­reglu í 51. gr. stjórn­ar­skrár­innar, en þar segir:  Ráð­herrar eiga sam­kvæmt emb­ætt­is­stöðu sinni sæti á Alþingi, og eiga þeir rétt á því að taka þátt í umræð­unum eins oft og þeir vilja, en gæta verða þeir þing­skapa. Atkvæð­is­rétt eiga þeir þó því aðeins að þeir séu jafn­framt alþing­is­menn. Ómögu­legt væri sam­kvæmt gild­andi stjórn­ar­skrá að leyfa öðrum en kjörnum full­trúum þjóð­ar­innar að taka til máls á þing­fundi. 

„Slíkt frum­varp [frum­varps­hug­mynd Björns Levís] fer því í bága við stjórn­ar­skrána og þá hugsun að þjóðin hafi rödd með vali á kjörnum full­trúum sínum,“ sagði lög­fræð­ingur í tölvu­pósti vegna máls­ins. „Það getur eng­inn tekið til máls á þing­fundi úr ræðu­stóli Alþingis nema kjörnir full­trúar.“

Samkvæmt þess­ari túlkun á stjórn­ar­skrá og stjórn­ar­skip­un­ar­venjum fór Alþingi á svig við lög með því að leyfa Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana, að halda ræðu á þing­fund­inum sem fram fór á Þing­völlum í síð­ustu viku. Gildir þá einu þótt Alþingi hafi sam­þykkt að bregða frá þing­sköpum. 

Full­veld­is­há­tíðHaldið var upp á 100 ára full­veld­is­af­mæli Íslands á Þing­völlum í síð­ustu viku.

Stjórnmálafræðingur segir ávarpið þvert á allar venjur

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata og full­trúi þing­flokks­ins í for­sætis­nefnd Alþingis, sagði í við­tali við Mbl.is á dög­unum að hann hefði, á þessum grund­velli, gert athuga­semd við lög­mæti þess að er­lend­ur full­trúi ávarp­aði Alþingi. Þá vék Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, að þessu álita­máli í Viku­lok­unum á Rás 1 um helg­ina. 

„Ávarp for­seta danska þings­ins var
í raun þvert á allar venjur sem gilt hafa
um hátíð­ar­fundi Alþingis á Þing­völl­um“

Birgir Her­manns­son stjórn­mála­fræð­ingur furð­aði sig á því í grein sem birt­ist á Kjarn­anum í gær að þing­for­seta Dana hefði verið boðið að halda ræðu á fundi Alþingis. „Stein­grímur og aðrir skipu­leggj­endur fund­ar­ins fengu þá flugu í höf­uðið að aðkoma danska þings­ins væri nauð­syn­leg á hátíð­ar­fund­in­um. Því væri eðli­legt að for­seti danska þings­ins ávarp­aði hátíð­ar­fund­inn. En þetta er furðu­leg hug­mynd sem ekki styðst við neinar hefð­ir,“ skrifar hann. „Ávarp for­seta danska þings­ins var í raun þvert á allar venjur sem gilt hafa um hátíð­ar­fundi Alþingis á Þing­völl­um. Sjálf­sagt var bjóða for­seta þjóð­þinga Norð­ur­land­anna að vera við­stadd­ir, en engin þörf var á ávarpi.“

Ísland hafi varðveitt „upphaflega sjálfsmynd norrænna manna“

Hávær umræða hefur átt sér stað und­an­farna daga vegna ræðu­halda Piu Kjærs­gaard, en hún er þekkt fyrir útlend­inga­andúð, for­dóma gagn­vart múslimum, boðun harðrar inn­flytj­enda­stefnu og hug­myndir um yfir­burði vest­rænnar og evr­ópskrar menn­ingar.

Pia Kjærs­gaarder for­seti danska þjóð­þings­ins

Í ræðu sinni á Þing­völlum tal­aði Pia um Ísland sem „vöggu nor­rænnar menn­ingar“ og sagði frá hug­myndum Dana um að Ísland væri „það land þar sem hin upp­haf­lega sjálfs­mynd nor­rænna manna var varð­veitt.“ Þá vék hún að því hvernig sjálf­stæð­is­bar­átta Íslend­inga á 19. öld hefði átt þátt í að „kynda undir danskri þjóð­ern­is­kennd sem þá var í blóma“. 

Björn Leví segir í sam­tali við Stundina að ef það stand­ist stjórn­ar­skrána að Pia Kjærs­gaard flytji ræðu á Alþingi hljóti hug­myndir hans um að hleypa óbreyttum borg­urum í ræðu­stól Alþingis undir sér­stökum dag­skrár­lið einnig að stand­ast lög. „Ég er búinn að biðja um að málið verði tekið upp aftur með til­liti til atburð­anna í síð­ustu viku,“ segir hann í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár