Danskir stjórnmálamenn sótillir: „Gríðarlega óviðeigandi hegðun“

Þjóð­ern­ispopúlistar gagn­rýna fram­göngu íslenskra stjórn­mála­manna gagn­vart Piu Kjærs­gaard og vilja að hún kenni Íslend­ingum sið­prýði. „Hversu mörgum hæl­is­leit­endum hafa eig­in­lega Íslend­ingar tekið á móti?“ spyr þing­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins.

Danskir stjórnmálamenn sótillir: „Gríðarlega óviðeigandi hegðun“

Danskir stjórn­mála­menn hafa reytt hár sitt og skegg í dag vegna nei­kvæðra við­bragða íslenskra stjórn­mála­manna við komu Piu Kjærs­gaard, for­seta danska þings­ins, til Íslands. 

Inger Støjberg, inn­flytj­enda­ráð­herra Dan­merkur, sendir Íslend­ingum tón­inn á Facebook og segir stjórn­mála­menn­ina sem snið­gengu hátíð­ar­fund­inn á Þing­völlum vegna ræðu­halda Piu hafa sýnt lýð­ræð­is­lega kjörnum full­trúa og öllum kjós­endum hans óvirð­ingu. Fram­gangan sé bein­línis ólýð­ræð­is­leg.

„Sá sem neitar að hlusta eða starfa með lýð­ræð­is­lega kjörnum stjórn­mála­manni, sá hinn sami snýr baki við öllum þeim þús­undum manna sem kusu við­kom­andi. Það er sér­kenni­leg leið til að gefa til kynna að sumar skoð­anir séu rétt­ari en aðrar,“ skrifar ráð­herr­ann.

Inger, sem setið hefur á danska þing­inu fyrir hönd hægri­flokks­ins Venstre frá 2001, er á meðal umdeild­ustu stjórn­mála­manna Dan­merkur og hefur átt lyk­il­þátt í að herða útlend­inga­stefnu Dana. Athygli vakti árið 2016 þegar hún átti frum­kvæði að lög­gjöf sem heim­il­aði dönskum stjórn­völdum að hirða verð­mæti af hæl­is­leit­endum við komu þeirra til lands­ins. Aftur varð svo uppi fótur og fit í mars 2017 þegar Inger birti mynd af sér með köku þar sem hún fagn­aði árangri sínum á þessu sviði. 

„Niðurlægð á Íslandi“

Ekstra­bla­det sló því upp fyrr í dag að Pia hefði verið „nið­ur­lægð á Íslandi“, en Pia er einn af frum­kvöðlum meg­in­straums­þjóð­ern­ispopúl­isma í Evrópu og þekkt fyrir útlend­inga­andúð, for­dóma gagn­vart múslimum og boðun harðrar inn­flytj­enda­stefnu.

Kusu Píratar að snið­ganga hátíð­ar­fund­inn og sögðu þjóð­ina eiga „betra skilið en að gælt sé við öfga­þjóð­ern­is­hyggju í hennar nafni“. Þá gekk Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, út af fund­inum þegar Pia Kjærs­gaard flutti ávarp.

Søren Espersener vara­for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins

„Dóna­legir íslenskir stjórn­mála­menn hefðu gott af kennslu í sið­prýði, manna­siðum og diplómat­ískri hátt­vísi. Reyndar væri ekki hægt að láta sig dreyma um betri kenn­ara en Piu á þeim sviðum,“ skrifar Søren Espersen, vara­for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins á Twitter. 

Rasmus Jarlov, við­skipta­ráð­herra úr Þjóð­ar­flokki íhalds­manna, tekur í sama streng. „Þegar full­trúi Dan­merkur tekur þátt í hátíð í til­efni þess að 100 ár eru liðin frá því að Ísland sleit sig frá Danmörku, þá er það ekki vegna þess að þetta sé meiri­háttar hátíð­is­dagur fyrir okkur, heldur til að votta Íslend­ingum virð­ingu. Ákveðnir íslenskir stjórn­mála­menn þakka fyrir þetta með því að sýna fyr­ir­litn­ingu. Sama og þegið,“ skrifar hann.

Spyr hve mörgum hælisleitendum Íslendingar taki á móti

Jacob Mark, þing­flokks­for­maður Sós­íal­íska þjóð­ar­flokks­ins, leggur einnig orð í belg. „Píratar og einn full­trúi Sós­í­alde­mókrata virð­ast hafa ákveðið að halda sig fjarri þegar þing­for­seti heim­sótti Ísland, sem opin­ber full­trúi Dan­merkur. Galið. Þess fyrir utan, þá skil ég ekki fólk sem heldur að það gagn­ist póli­tískum mál­stað sínum að kúpla sig út úr umræð­unni.“

Kenneth Kristen­sen Berth, þing­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins, er einnig hneyksl­aður á hegðun íslensku stjórn­mála­mann­anna. „Gríð­ar­lega óvið­eig­andi hegðun af hálfu Íslend­inga gagn­vart gesti sem þeir buðu til lands­ins. Hversu mörgum hæl­is­leit­endum hafa eig­in­lega Íslend­ingar tekið á móti? Held þeir ættu að hafa sig hæga, búandi við kjörað­stæður mitt úti á Atl­ants­hafi.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár