Steingrímur sendi út tilkynningu í samráði við Piu: Kenna öðrum um að skugga hafi verið varpað á fullveldishátíðina

„Forseti Alþingis harmar að heim­sókn danska þing­for­set­ans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíð­ar­höldin,“ segir í til­kynn­ingu Stein­gríms J. Sig­fús­sonar sem Pia Kjærs­gaard upp­lýsti fyr­ir­fram um að von væri á.

Steingrímur sendi út tilkynningu í samráði við Piu: Kenna öðrum um að skugga hafi verið varpað á fullveldishátíðina

Forseti Alþingis harmar að heim­sókn Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana „hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíð­ar­höldin“ í gær. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Stein­grími J. Sig­fús­syni, for­seta Alþingis, sem birt­ist á þing­vefnum rétt í þessu.

Pia Kjærs­gaard greindi sjálf frá því áðan í við­tali við Politi­ken að von væri á til­kynn­ingu frá þing­for­seta Alþingis með þessum skila­boðum.

Í til­kynn­ing­unni seg­ist Stein­grímur leyfa sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjón­ar­mið að við­eig­andi sé að „sýna danska þing­for­set­anum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þings­ins og dönsku þjóð­ar­innar“. 

Stein­grímur bendir á að hann hafi um nokk­urra mán­aða skeið und­ir­búið þing­fund­inn á Þing­völlum og rætt und­ir­bún­ing­inn jöfnum höndum við for­sætis­nefnd og for­menn þing­flokk­anna. „Sjálf­sagt þótti frá byrjun, í ljósi til­efn­is­ins, að for­seti danska þings­ins yrði í sér­stöku hlut­verki á þessum hátíð­ar­fundi. Danska þing­for­set­anum var því boðið til lands­ins sem full­trúa gagn­að­ila að full­veld­is­samn­ing­unum,“ skrifar hann.

Jón Þór Ólafsson, full­trúi Pírata í for­sætis­nefnd Alþingis, hefur hins vegar gagn­rýnt Stein­grím fyrir að hafa ekki talað um komu Piu Kjærs­gaard á fundum nefnd­ar­innar fyrr en í fyrra­dag. „Ég hef í dag leitað í öllum fund­ar­gerðum For­sætis­nefndar Alþingis frá ára­mótum og Stein­grímur J. sem for­seti Alþingis virð­ist ekki hafa séð ástæðu til að upp­lýsa full­trúa flokk­anna í for­sætis­nefnd fyrr en í gær, degi fyrir hátíð­ar­þing­fund­inn á Þing­völlum,“ skrifar Jón Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár