„Við eigum aldrei að leyfa hatursorðræðu að verða lögmæt í okkar samfélagi“

For­sæt­is­ráð­herra vék að mik­il­vægi fjöl­breytni og jafn­réttis í hátíð­ar­ræðu sinni. Stein­grímur J. Sig­fús­son sagði að það væri Alþingi „mik­ill heiður“ að hafa Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana, við­stadda en Helga Vala Helga­dóttir gekk út af fundi þegar Pia tók til máls.

„Við eigum aldrei að leyfa hatursorðræðu að verða lögmæt í okkar samfélagi“

„Við eigum að fagna þeirri mik­il­vægu fjöl­breytni sem gerir þjóð­ina rík­ari og tryggja að við öll sem hér búum saman höfum hvert um sig sterka rödd í sam­fé­lagi okkar, óháð upp­runa, óháð trú­ar­brögðum. Við eigum aldrei að leyfa hat­urs­orð­ræðu að verða lög­mæt í okkar sam­fé­lagi.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í hátíð­ar­ræðu sinni á Þing­völlum í dag. Hátíð­ar­dag­skráin fór fram í skugga harð­vít­ugra deilna um ræðu­höld og veru Piu Kjærs­gaard á fund­inum, þing­for­seta Dana sem er þekkt fyrir útlend­inga­andúð og boðun harðrar inn­flytj­enda­stefnu. Kusu Píratar að snið­ganga fund­inn og sögðu þjóð­ina eiga „betra skilið en að gælt sé við öfga­þjóð­ern­is­hyggju í hennar nafni“. Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, gekk út meðan Pia Kjærs­gaard flutti ræðu sína.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, setti fund­inn og þakk­aði Piu Kjærs­gaard sér­stak­lega fyrir að heiðra þing­heim með nær­veru sinni. „Það er [...] Alþingi mik­ill heiður að hafa hér með okkur í dag for­seta danska þjóð­þings­ins. Það er okkur líka mikil ánægja að þing­for­setar fjöl­margra ann­arra vina­landa og aðrir erlendir gestir heiðra okkur með nær­veru sinni á þessum hátíð­is­degi. Fyrir þann virð­ingar- og vin­áttu­vott færi ég þeim þakkir Alþingis,“ sagði Stein­grímur.

Katrín sagði í hátíð­ar­ræðu sinni að gildin sem Íslend­ingar höfðu að leið­ar­ljósi fyrir 100 árum væru enn í dag þung­væg þótt sam­fé­lagið hefði breyst. „Um leið og við tök­umst saman á við þá áskorun að efla íslenska tungu í gjör­breyttum heimi fögnum við því að á Íslandi eru núna töluð svo miklu fleiri tungu­mál en fyrir 100 árum,“ sagði hún. 

„Landið hefur einnig tekið miklum breyt­ingum, ekki síst fyrir gjörðir okkar mann­anna. Þar stöndum við á tíma­mótum, þar hvílir sú skylda á okkur að vernda þá ósnortnu nátt­úru og víð­erni sem við eigum og eru orðin sjald­gæf verð­mæti í heimi sem er orð­inn mun mann­gerð­ari en fyrir 100 árum.“ 

Katrín sagði að sam­fé­lög ættu ekki síst að vera mæld eftir því hvernig þau koma fram við börn og hvernig þau tryggja að öll börn fái tæki­færi til að þroska hæfi­leika sína þannig að þau nái að dafna og fylgja draumum sínum eftir. „Þannig tryggjum við gott sam­fé­lag, þannig tryggjum við jafn­að­ar­sam­fé­lag,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár