Píratar: „Íslenska þjóðin á betra skilið en að gælt sé við öfgaþjóðernishyggju í hennar nafni“

Píratar snið­ganga hátíð­ar­fund­inn á Þing­völlum vegna ræðu­halda Piu Kjærs­gaard.

Píratar: „Íslenska þjóðin á betra skilið en að gælt sé við öfgaþjóðernishyggju í hennar nafni“

Þing­flokkur Pírata ætlar að snið­ganga hátíð­ar­fund Alþingis sem fram fer á Þing­völlum í dag. Fram kemur í til­kynn­ingu að ástæðan sé „ófor­svar­an­leg ákvörðun“ um að bjóða Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana og fyrr­ver­andi for­manni Danska Þjóð­ar­flokks­ins, að ávarpa Alþingi á Þing­völlum á ald­ar­af­mæli full­veldis Íslend­inga.

Eins og Stundin fjall­aði um í gær er Pia þekkt fyrir útlend­inga­andúð og bar­áttu sína gegn fjöl­menn­ingu og íslam. Árið 2010 kall­aði hún eftir því að stjórn­völd bönn­uðu inn­flytj­endum sem ekki væru af vest­rænum upp­runa að setj­ast í Danmörku.

Hér má sjá til­kynn­ingu Pírata í heild:

Þing­flokkur Pírata hefur ákveðið að snið­ganga hátíð­ar­fund Alþingis sem fram fer á Þing­völlum í dag.

Ástæðan er ófor­svar­an­leg ákvörðun um að bjóða einum helsta höf­undi og tals­manni útlend­inga­andúðar í Evrópu að ávarpa Alþingi á Þing­völlum á ald­ar­af­mæli full­veldis Íslend­inga. Engin hefð er fyrir því að erlendir gestir ávarpi þing­fundi af þessu tagi og engin nauð­syn var því að bjóða Piu Kjærs­gaard að ávarpa hátíð­ar­fund á Þing­völllum. Hátíð­ar­fundir eiga að efla sam­stöðu þjóð­ar­innar, ekki að verða vett­vangur fyrir málsvara sundr­ungar.

Hátíð­ar­höld sem þessi eru vand­með­farin á tímum upp­gangs þjóð­ern­is­hyggju um víða ver­öld. Það er sjálf­sagt og eðli­legt að fagna tíma­mótum sem þessum en það er var­huga­vert að gefa þjóð­ern­is­hyggju á nokkurn hátt undir fót­inn við slík til­efni. Íslenska þjóðin á betra skilið en að gælt sé við öfga­þjóð­ern­is­hyggju í hennar nafni.

Piu Kjærs­gaard var boðið á Alþingi vegna þess emb­ættis sem hún gegnir.

Sú stað­reynd að stofn­andi eins mann­fjand­sam­leg­asta flokks Norð­ur­land­anna sitji sem for­seti danska þings­ins er í sjálfu sér mikið áhyggju­efni.

Að utan­þings­manni sem hefur unnið jafn ötul­lega að því að ala á sundr­ungu, útlend­inga­hatri og Pia Kjærs­gaard hefur gert sé boðið heið­ur­sávarp á hátíð­ar­fundi sem sam­eina ætti okkur Íslend­inga, burt­séð frá trú okkar og upp­runa er hneyksli.

Þing­flokkur Pírata vill koma því á fram­færi að þessi ákvörðun reynd­ist okkur erfið. Upp­haf­lega stóð til að taka þátt í hátíð­ar­höldum og segja má að við höfum flotið sof­andi að feigðar­ósi þar sem per­sóna heið­urs­gests­ins varð okkur ekki ljós fyrr en við frétta­flutn­ing í gær.

Grunn­stefna Pírata býður okkur eftir sem áður að skipta um skoðun í ljósi nýrra upp­lýs­inga og við getum ekki, sam­visku okkar vegna, tekið þátt í því að heiðra mann­eskju sem ber hvorki virð­ingu fyrir mann­eskjum af öðrum upp­runa en sínum eigin, né grunn­gildum allra heil­brigðra lýð­ræð­is­sam­fé­laga. Með slíku er minn­ingu um full­veld­is­lög Íslend­inga eng­inn greiði gerður. 

Á þessum tíma­mótum óskum við Íslend­ingum til ham­ingju með áfang­ann og þökkum sömu­leiðis öllum þeim sem komu að und­ir­bún­ingi hátíð­ar­hald­anna. Okkur þykir þetta leitt en við sáum okkur engan annan kost en að láta sam­visk­una ráða ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár