Rammaskipulag tilbúið þar sem „neyðarbraut“ var áður

„Nýi Skerja­fjörður“ verður 1.200 íbúða byggð með nýjum skóla, stúd­enta- og verka­manna­í­búðum og teng­ingu við Kársnes. Upp­bygg­ingin er á svæð­inu þar sem svokölluð „neyð­ar­braut“ flug­vall­ar­ins var áður.

Rammaskipulag tilbúið þar sem „neyðarbraut“ var áður
„Nýi Skerja­fjörður“ Hverfið snýr að hverf­inu í Skerja­firði í vestri, Reykja­vík­ur­flug­velli í norðri og austri, með strönd í suðri.

Borg­ar­ráð sam­þykkti í lok júní ramma­skipu­lag fyrir svæðið sem kallað er „Nýi Skerja­fjörður“. Gert er ráð fyrir 1.200 íbúðum, nýjum skóla, verslun og þjón­ustu á svæð­inu sem áður fór undir svo­kall­aða „neyð­ar­braut“ Reykja­vík­ur­flug­vallar.

Nýja hverfið verður austan megin við núver­andi Skerja­fjörð og liggur það að strönd­inni í átt að Fossvogi. Gert er ráð að teng­ingu yfir til Kársness með bygg­ingu brúar yfir Fossvog fyrir umferð gang­andi, hjólandi og almenn­ings­sam­gangna. Einnig er hugsað um teng­ingu við áfram­hald­andi byggð í Vatns­mýr­inni „þegar flug­völl­ur­inn víkur þaðan,“ sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Stúd­entar og Bjarg, bygg­ing­ar­fé­lag verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, hafa fengið vil­yrði fyrir lóðum á svæð­inu. Gert er ráð fyrir að flug­sög­unnar verði minnst með svoköll­uðu „flug­torgi“ og einnig verður byggð upp aðstaða til þess að stunda sigl­ingar. „Ramma­skipu­lagið gerir ráð fyrir fjöl­breyttum húsa­gerðum og ríku­legum, grænum almenn­ings­rýmum sem hönnuð verða út frá sól­ar­áttum og skjóli,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur mótmæltu

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins kusu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flugvallarmál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár