Mæla með nýrri flugstöð á BSÍ reit

Verk­efna­hópur ráð­herra leggur til að ríkið taki þátt í hug­mynda­sam­keppni borg­ar­innar um BSÍ reit. Hópurinn telur að sam­göngu­mið­stöð þar nýt­ist þrátt fyrir að flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýr­inni.

Mæla með nýrri flugstöð á BSÍ reit
Reykja­vík­ur­flug­völlur Deilt hefur verið um stað­setn­ingu flug­vall­ar­ins í ára­tugi.

Verk­efna­hópur sam­göngu­ráð­herra leggur til að ný flug­stöð við Reykja­vík­ur­flug­völl rísi á BSÍ reit. Hún verði hluti af sam­göngu­mið­stöð sem nýt­ist þrátt fyrir að flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýr­inni og kosti tæpa 2,8 millj­arða í fram­kvæmd.

Hópurinn var skip­aður af Jóni Gunn­ars­syni, fyrr­ver­andi sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, og skil­aði hann til­lögum í dag. Hópurinn nefndi tvo aðra mögu­leika fyrir nýja flug­stöð. Annars vegar nýbygg­ingu við Hótel Natura og hins vegar nýbygg­ingu norð­austan við núver­andi flug­stöð. Voru báðir mögu­leik­arnir taldir dýr­ari og óhent­ugri en sam­göngu­mið­stöð á BSÍ reit.

Sam­göngu­mið­stöðSam­göngu­mið­stöð á BSÍ reit yrði tengd með und­ir­göngum undir Miklu­braut.

Undirgöng tengi við flugvöll eða mögulega byggð í Vatnsmýri

Hópurinn taldi sam­legð og hag­ræði nást af því að tengja flugið öllum almenn­ings­sam­göngum innan borg­ar­innar og við flug­völl­inn í Keflavík. „Gera má ráð fyrir að teng­ing flugs­ins við almenn­ings­sam­göngur á þessum stað bjóði upp á ýmis tæki­færi til að bæta rekstr­ar­grund­völl flug­rek­enda,“ segir í skýrslu verk­efna­hóps­ins. „Gangi áætl­anir eftir mun far­þega­fjöldi með flugi, almenn­ings­sam­göngum og ferða­þjón­ustu sem fer um sam­göngu­mið­stöð á BSÍ reitnum verða a.m.k. 10 millj­ónir manns á ári.“

Í skýrsl­unni kemur fram að full­trúar Reykja­vík­ur­borgar hafi komið því á fram­færi við ríkið að það geti gerst aðili að hug­mynda­sam­keppni um BSÍ reit­inn sem fyr­ir­huguð er á næst­unni. Tæki ríkið þátt gæti flug­stöð orðið hluti af sam­keppni um fyr­ir­hug­aða sam­göngu­mið­stöð. „Þá er kostur við þessa leið að öll fjár­fest­ing nýt­ist áfram þótt flug­völl­ur­inn fari, ekki þarf að byggja með hlið­sjón af mögu­legum flutn­ingi flug­stöðv­ar­innar eins og reiknað var með í hinum kost­unum tveimur sem skoð­aðir voru,“ segir í skýrsl­unni. „Sömu­leiðis nýt­ast und­ir­göng undir Miklu­braut áfram við að tengja flug­vall­ar­svæðið við sam­göngu­mið­stöð­ina, Lands­spít­alareit­inn og miðbæ Reykja­víkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flugvallarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár